3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?


Höfundur
Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?

Pósturaf Vaski » Þri 29. Jún 2010 19:32

Jæja núna er HM á fullu en líka sumar, þannig að maður þarf að hunskast uppí sumarbústað. Það er ekkert sjónvarp þar og því eru góð ráð dýr. Eina lausnin sem ég sé fyrir þér að að fá mér 3g frá símanum og horfa á leikina um helgina í gegnum vefin http://www.ruv.is. Þannig að spurning mín er til ykkar sem að eruð með 3g frá símanum, hafði þið horft á ruv í gegnum þetta? Ræður það alveg við að stream rúv?
Takk fyrir svörin :)



Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1860
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 219
Staða: Ótengdur

Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?

Pósturaf Nariur » Þri 29. Jún 2010 21:23

það verður allt of dýrt, þú borgar fyrir allt gagnamagn, líka innlent og video stream tekur ekki beint lítið... fyrir utan að það er ég er ekki viss hvort 3G sé með nóga bandbreidd.


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?

Pósturaf Daz » Þri 29. Jún 2010 21:24

Það virkar að streama frá þarna eurovision síðunni í gegnum 3g hjá Nova. Höktir, en virkar. Hver leikur þar er ca hálft gígabæt.




wicket
FanBoy
Póstar: 778
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 75
Staða: Ótengdur

Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?

Pósturaf wicket » Þri 29. Jún 2010 21:28

Ég gerði þetta akkúrat á þriðjudaginn, notaði 3G hjá símanum og það svínvirkaði.

Lítið sem ekkert hökt enda straumurinn hjá rúv ekki í neinum blússandi gæðum.




Höfundur
Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?

Pósturaf Vaski » Þri 29. Jún 2010 21:51

wicket skrifaði:Ég gerði þetta akkúrat á þriðjudaginn, notaði 3G hjá símanum og það svínvirkaði.

Lítið sem ekkert hökt enda straumurinn hjá rúv ekki í neinum blússandi gæðum.

gott að vita að þetta virkar. þá er bara að skoða hvort að þetta sumarhús sé ekki örugglega á 3g svæði :)



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1395
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?

Pósturaf kubbur » Þri 29. Jún 2010 22:34

ég get allavega horft á þetta í símanum, og það er Edge hérna


Kubbur.Digital