Síða 1 af 1

Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 25. Júl 2024 18:01
af NoComment
Sælir

Ég er að leita að góðri útivaktmyndavél (outdoor security cam) sem er hægt að skilja eftir í langan tíma og þarf ekki að tengja við neitt, hvorki stjórnstöð né rafmagn. Ég fann Xiaomi Solar Camera BW400 Pro sem lofaði góðu þar til í las í smáa letrinu að það þarf að hafa eitthvað indoor base station tengt innandyra sem vélin tengist svo þráðlaust við. Það er ekki í boði hjá mér, mig vantar bara myndavél sem þarf ekki á wifi, base station eða neinu slíku að halda til að virka og getur bara verið í gangi 24/7 að fylgjast með svæðinu. Er einhver slík vél til? Hvað með Mi Outdoor Camera BW500, eitthvað varið í hana?

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 25. Júl 2024 18:24
af Gunnar
þessir 2 hlutir saman eru ekki til eins og er held ég. þráðlaus og enga heimastöð
var sjálfur að kaupa þessa. þráðlaus með sólarsellu sem þarf bara 2 tíma af sól á dag til að ganga nánast endalaust. en hún er með heimastöð
https://www.eufy.com/eu-en/products/t88 ... 9089709208

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 25. Júl 2024 18:59
af TheAdder
Getur skoðar eitthvað hér, frændi minn setti upp eina svona um daginn.
https://www.aliexpress.com/w/wholesale- ... amera.html

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 25. Júl 2024 20:06
af Manager1
Mögulega er trail camera eða game camera það sem þig vantar, þær eru gerðar til þess að vera úti í skógi og þar sem ekki er hægt að stinga í samband.

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 25. Júl 2024 21:34
af NoComment
Gunnar skrifaði:þessir 2 hlutir saman eru ekki til eins og er held ég. þráðlaus og enga heimastöð
var sjálfur að kaupa þessa. þráðlaus með sólarsellu sem þarf bara 2 tíma af sól á dag til að ganga nánast endalaust. en hún er með heimastöð
https://www.eufy.com/eu-en/products/t88 ... 9089709208

Já, hef séð þessa líka. En ég fann reyndar Hombli - Smart Solar Cam 2K, hún virðist vera án base stöðvar en ég set bara spurningu við það hvort hún virki án þess að vera tengd við net. Get ekki fundið neitt um það á netinu :-k

TheAdder skrifaði:Getur skoðar eitthvað hér, frændi minn setti upp eina svona um daginn.
https://www.aliexpress.com/w/wholesale- ... amera.html

Ég gleymdi kannski að taka fram að ég vil forðast það að versla erlendis frá, vil geta keypt þessa vél hér og helst á næstu dögum.

Manager1 skrifaði:Mögulega er trail camera eða game camera það sem þig vantar, þær eru gerðar til þess að vera úti í skógi og þar sem ekki er hægt að stinga í samband.

Hvar fæ ég svoleiðis græju? Sé tvær í Veiðiflugunni en eru fleiri til hér í bænum?

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 25. Júl 2024 23:27
af Gunnar
NoComment skrifaði:
Gunnar skrifaði:þessir 2 hlutir saman eru ekki til eins og er held ég. þráðlaus og enga heimastöð
var sjálfur að kaupa þessa. þráðlaus með sólarsellu sem þarf bara 2 tíma af sól á dag til að ganga nánast endalaust. en hún er með heimastöð
https://www.eufy.com/eu-en/products/t88 ... 9089709208

Já, hef séð þessa líka. En ég fann reyndar Hombli - Smart Solar Cam 2K, hún virðist vera án base stöðvar en ég set bara spurningu við það hvort hún virki án þess að vera tengd við net. Get ekki fundið neitt um það á netinu :-k


Sýnist þú þurfa tengja hana við wifi til að setja upp en svo geturðu sett 256gb sd kort i hana og það er allveg spurning hvort hun haldi áfram að virka og taki upp á sd kortið ef myndavélin fer frá wifi-inu.

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Sun 04. Ágú 2024 00:15
af Gunnar
þú ert kannski kominn með einhverja lausn en ég datt inná þetta.

eufy 4G LTE Cam S330

https://www.eufy.com/eu-en/products/t86 ... 6672181400

sýnist þetta vera allt sem þú ert að leita að.

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Fim 08. Ágú 2024 20:21
af MuffinMan

Re: Vantar góða útivaktmyndavél

Sent: Mið 04. Sep 2024 08:59
af NoComment
Gunnar skrifaði:þú ert kannski kominn með einhverja lausn en ég datt inná þetta.

eufy 4G LTE Cam S330

https://www.eufy.com/eu-en/products/t86 ... 6672181400

sýnist þetta vera allt sem þú ert að leita að.

MuffinMan skrifaði:https://elko.is/vorur/eufy-oryggismyndavel-4g-starlight-308325/T8151321

Ég vildi helst vera bara með myndavél, ekki eitthvað auka eins og þessar tvær eru með (sólarsella sem er tengd við). Keypti Hombli vélina og hún virkar bara mjög vel. Hún verður notuð þar sem er ekkert wifi svo ég stillti hana þannig að ef ég kveiki á hotspot á símanum mínum til að deila netinu á honum þá tengist hún við það net og þá kemst ég inná vélina þegar ég er nálægt og get þá skoðað upptökur. Batteríið er líka geðveikt gott, prófaði hana heima fyrst, var með hana útí glugga og hún hlóð sig á meðan hún var í gangi sem er geggjað :8)