Síða 1 af 1

BIOS/CMOS rafhlaða

Sent: Fim 15. Des 2005 19:02
af so
Sælir félagar,

Nú er ég ekki mjög vel að mér í fartölvum svo ég spyr ykkur.
Er ekki örugglega BIOS/CMOS rafhlaða á fartölvumóðurborðum eins og öðrum móðurborðum?

Og ef svo er, er þá venjulega eitthvað patent eða þægilegt að komast að til að skipta um það eða þarf að rífa þessar helv.... beyglur í tætlur til að skipta um rafhlöðu.

Ástæða þess að ég spyr er sú að klukkan í HP nx eitthvað ferðatölvunni hjá systur minni er farinn að seinka sér og helst ekki rétt sem myndi benda til þess að rafhlaðan væri farinn að gefa sig.

Hins vegar vélin 500 km í burtu og ég get því ekki skoða hana en var að spá í hvort ég gæti skipt um það þegar hún kemur heim um jólin.

Sent: Fös 16. Des 2005 03:05
af gumol
Já, það er svona battery á fartölvum.

Á minni dell er þetta í litlu hólfi undir þar sem "stóra" rafhlaðan er, þarft bara að opan eina hlíf með puttunum, ekkert að skrúfa.

Sent: Fös 16. Des 2005 12:45
af so
Flott, takk fyrir :)