Síða 1 af 1

Kaup á fartölvu !!

Sent: Mið 30. Nóv 2005 16:23
af Kiddi27
Hvernig fartölvu mælið þið með og hvar er best að kaupa ? Er að pæla í fyrir 150k. Lýst sammt best á sony tölvunar hjá tölvulistanum.



Fartölva - Sony VAIO FS315B ferðatölva
Örgjörvi - 1.73 GHz Intel Pentium M Dothan740 - Centrino með 2MB flýtiminni
Vinnsluminni - 512 MB DDR2 400MHz 240pin - Stækkanlegt í 2GB
Harðdiskur - 80 GB Ultra ATA100 hljóðlátur harðdiskur 4200RPM
Combodrif - 8xDVD±RW Dual Layer skrifari sem einnig skrifar CD-RW
Skjár - 15.4" WideScreen WXGA X-black tveggja lampa með 1280x800dpi
Skjákort - Intel GMA900 með allt að 128MB DVMT3 minni
Hljóð - Hljóðkerfi með 2 hátölurum
Lyklaborð - 84 hnappa lyklaborð
Mús - Innbyggð snertinæm músarstýring
Netbúnaður - Gigabit 10/100/1000 netkort og 56K mótald
Þráðlaust net - Innbyggt þráðlaust 54Mbps 802.11g netkort með loftneti í skjá
Stýrikerfi - Windows XP Home - SP2 - á íslensku eða ensku
Annað - 3xUSB 2.0, FireWire, Memory Stick kortalesari o.fl.
Annað - Aðeins 2.85Kg, W 364 x D 264.3 x H 36mm
Annað - Li-ion rafhlaða, ending allt að 3.5 tímar



Aðeins kr. 139.900. með vsk

Sent: Mið 30. Nóv 2005 16:41
af Ic4ruz
Þetta er alveg ágæt fartölva enn eg mæli ekki með sony fartölvum.

Sent: Mið 30. Nóv 2005 17:39
af kristjanm
Of lítið minni og of stutt batterísending fyrir of mikinn pening :)

Gætir fengið þó nokkuð betri tölvu fyrir þennan pening.

Sent: Mið 30. Nóv 2005 18:22
af Pandemic
Ég sniðgeng sony þessa dagna vegna rootkits málsins.

Sent: Mið 30. Nóv 2005 19:30
af Birkir
Getur t.d. ekki haft mismunandi domain á Win XP Home.

Sent: Mið 30. Nóv 2005 20:45
af Kiddi27
hvernig fartölvu er þá best að kaupa :o

Sent: Mið 30. Nóv 2005 20:56
af gumol
Ef þú getur þá myndi ég bíða aðeins fram á næsta ár og fá mér lappa með dual core örgjörfa þegar þeir koma.

Ég hef ekkert verið að skoða fartölvur svo ég veit ekkert hvað þú ættir að fá þér. Ég sá auglýsingu fyrir Gateway fartölvu hjá Odda sem mér leyst vel á, Gateway M460X. Reyndar einn stór galli á þessari tölvu og það er upplausnin á skjánum. http://www.oddi.is/index.php?flid=8&pid=167

Sent: Mið 30. Nóv 2005 22:15
af kristjanm
Ég er með XP Home sem fylgdi með upprunalegu BT-tölvunni minni og get ekki séð að ég sé að missa af neinu.

Reyndar get ég ekki uppfært í XP64 sem er galli, en ég á hvort sem er eftir að fá mér Windows Vista áður en ég færi að græða eitthvað á því :)

Sent: Mið 30. Nóv 2005 23:20
af gumol
Ef þú ætlar að tengja ferðatölvuna þína inn á net í mörgum framhaldsskólum virðist það, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, skipta máli hvort þú sért með Windows XP home eða Professional.

Sent: Mið 30. Nóv 2005 23:57
af MezzUp
Verður að vera með XP Pro til þess að join'a AD domain. Simple :)

Sent: Fim 01. Des 2005 22:16
af Veit Ekki
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1771

Hér er ein HP tölva á 119.950 kr., sem er ekkert síðri en þessi frá Sony og bara betri ef eitthvað er og er með Windows XP Professional.

http://www.att.is/index.php?cPath=44_190

Ein á 149.950 kr. sem er mun betri en þessi frá Sony.

Sent: Fös 02. Des 2005 08:32
af Gestir
Ætla menn aldrei að læra af reynslunni.

Kaupa aldrei óþekkt eða cheap merki í fartölvum.

Það bilar og er erfitt að fá það þjónustað. PERsónulega fengi ég mér Sony upp á stöðugleika og góða vél, en HP, og Dell -koma þar strax á eftir.

Aldrei líta á Siemens, Ace, eða álíka frat.

Hef heyrt bara of margar slæmar sögur af þannig vélum og það er ekkert leiðinlegra en að vera með bilaða tölvu og líklegast ekki fá það alveg bætt.
Og þurfa að standa í margra daga eða þessvegna vikna veseni :S

Það hljóta einhverir hérna að kannast við þetta .

Sent: Fös 02. Des 2005 10:40
af gnarr
Ég er með 7 Acer vélar. ekkert nema topp vélar!

Sent: Fös 02. Des 2005 11:29
af kristjanm
Mamma er með Dell Latitude vél sem er algjör snilld.

Eini gallinn við þessar ferðavélar finnst mér er þessi ógeðslega hægvirki harði diskur.

Sent: Fös 02. Des 2005 15:11
af Andri Fannar
Dell Inspiron og Latitude eru einfaldlega bestar :8)

Sent: Mið 11. Jan 2006 21:34
af bluntman
En hver eru álit ykkar á Makka ?

Sent: Mið 11. Jan 2006 21:40
af ezkimo
Nýu intel dual core lapparnir frá apple eru spennandi. verður væntanlega hægt að dual boota í windows. Ég er búinn að leggja inn pöntun.

Sent: Mið 11. Jan 2006 21:49
af bluntman
Er nefnilega að pæla í fartölvu kaupum og mér líst langbest á einhverja Mac.

Er að fara að vinna í C#, Dreamweaver og Photoshop og slíku...

Sent: Mið 11. Jan 2006 23:05
af gnarr
ezkimo skrifaði:Nýu intel dual core lapparnir frá apple eru spennandi. verður væntanlega hægt að dual boota í windows. Ég er búinn að leggja inn pöntun.


Þú getur ekki dualbootað með windows nema að þú sért með minnst 2 diska. MacOsX styður ekki meira en 1 partition á disknum "sínum".

Sent: Fim 12. Jan 2006 10:46
af wICE_man
Bráðum verða öll forrit samhæfð milli Makka og PC og það gildir líka um vírusa, þetta er því bara spurning um stýrikerfi.

Hættu að berja höfðinu við steininn og fáðu þér linux vél segi ég ](*,)