Síða 1 af 1

Fartölvu móðurborð?

Sent: Sun 10. Júl 2005 23:53
af sloth
Veit einhver hvar hægt sé að fá móðurborð í fartölvu? lenti í því óhappi að brjóta tengi á því þegar ég var að skipta um harðandisk :(

Sent: Mán 11. Júl 2005 00:18
af MezzUp
Ég myndi telja mjög líklegt að þú getur bara fengið það frá framleiðanda fartölvunnar, og það fyrir mjög mikinn pening. Þarft örugglega líka þónokkra kunnáttu til þess að skipta um fartölvumóðurborð.

Mætti ég spurja hvernig fartölva þetta er, og hvaða stykki brotnaði?

Sent: Mán 11. Júl 2005 11:16
af sloth
þetta er ekki nein ákveðin tegund því að kunningi minn setti hana saman fyrir mig.... Enn hún er búin að vera biluð í 2 vikur og mig er farið að vanta nauðsynlega að ná í dótið af harðadisknum... Þannig að á ákvað að rífa hana í sundur, taka harða diskinn úr. Fá mér stykki til að tengja fartölvudiska við PC vélar og leysa vandann þannig....
Allavega þá braut ég tengið þar sem snertimúsin fer í samband....
það er skemtilegra að hafa hana virka enn það er svo sem hægt bara að stinga USB mús í samband :)

Sent: Mán 11. Júl 2005 14:21
af gnarr
ég skal lofa þér að kunningi þinn getur ekki sett saman fartölvu fyrir þig. Þetta ER einhver ákveðin tegund.

Sent: Mán 11. Júl 2005 14:23
af Snorrmund
sloth skrifaði:þetta er ekki nein ákveðin tegund því að kunningi minn setti hana saman fyrir mig.... Enn hún er búin að vera biluð í 2 vikur og mig er farið að vanta nauðsynlega að ná í dótið af harðadisknum... Þannig að á ákvað að rífa hana í sundur, taka harða diskinn úr. Fá mér stykki til að tengja fartölvudiska við PC vélar og leysa vandann þannig....
Allavega þá braut ég tengið þar sem snertimúsin fer í samband....
það er skemtilegra að hafa hana virka enn það er svo sem hægt bara að stinga USB mús í samband :)
taktu mynd af henni og póstaðu..

Sent: Mán 11. Júl 2005 16:15
af Birkir
gnarr skrifaði:ég skal lofa þér að kunningi þinn getur ekki sett saman fartölvu fyrir þig. Þetta ER einhver ákveðin tegund.
Það er alveg hægt . :)
Ég veit samt ekkert hvers konar kunnáttu það krefst.

Sent: Mán 11. Júl 2005 16:19
af gnarr
hann gæti sett saman einhverja ákveðna tegund af fartölvu ef hann fengi hana í pörtum. en hann getur ekki bara púslað saman hlutum og búið til fartölvu.

IBM fartölvu móðurborð passa tildæmis bara í IBM fartölvu boddí, og sama með HP, acer, dell og öll önnur fartölvu móðurborð.

Sent: Mán 11. Júl 2005 19:05
af MezzUp
Gæti reyndar verið að hann hafi keypt barebone fartölvu, en þá væri samt eitthvað merki á henni. Og engu að síður þykir mér það mjög ólíklegt.

Sent: Mán 11. Júl 2005 19:42
af axyne
ég sendi einu sinni tölvulistanum fyrirspurn um eina af fartölvuna hjá þeim, spurði hvaða merki tölvan væri.

svarið frá þeim var það allra gáfulegasta sem ég hef heyrt frá þeim.
man ekki alveg orðrétt hvað þeir skrifuðu mér, en svarið var einhvernvegin á þá leið að þeir væru með ferðatölvuverksmiðju í bakgarðinum. :shock:

"við gerum okkur ferðatölvur sjálfir og því er ekkert merki" eða eitthvað svoleiðis.