Síða 1 af 1

Hvað er best í fartölvu kaupum?

Sent: Fös 24. Jún 2005 14:30
af Friðrik G.
Sælt veri fólkið.

Ég er til búinn að borga svona 190 þúsund fyrir fartölvu.
Ég vill hafa:

Widescreen skjá, ágætis upplausn (meira en 1024x768)
40-60GB HDD (er með flakkara)
1.6 Ghz+
512mb vinnsluminni
64+ skjákort langar samt meira í 128mb óþarfi samt sem áður
CD-RW/DVD-RW skrifari
Verður að vera hljóðlát!!
Þyngd á bilinu 2.5-3.0 kg má vera minna ef það er til :roll:
Vera með ágætis batterý endingu
Þráðlaust netkort (samt ekkert möst)
Ágætis hljóðkort, þarf samt ekkert að vera neitt uber.

Já ég held að þetta sé about it.

Mér datt í hug HP Compaq NX7010 er hún góð ?

p.s. ég vill helst geta keypt tölvuna hérna heima. Er annars betra að kaupa í gegnum USA? Hvernig er með tolla og skatta?

Sent: Fös 24. Jún 2005 17:44
af wICE_man
Hvernig lýst þér á þessa:
Acer Travelmate 4101WLMI

Sent: Fös 24. Jún 2005 18:44
af hahallur
Ég hef slæma reynslu af Asus fartölvum.....annars ánægður með HP tölvanu mína.

Sent: Fös 24. Jún 2005 19:16
af Friðrik G.
Ég er í Asus L2000, og hún er ÖMURLEG. 1.6 ghz örgjörvi, 128mb minni og svona allt í lagi en algjört junk. Heyrist óendanlega mikið í henni. Annars lýst mér vel á þessa travelmate tölvu, mjög ódýr miðað við innihald. Komið endilega með fleiri tölvur og segið endilega hvernig HP tölvan er sem ég nefndi hérna uppi.

Sent: Fös 24. Jún 2005 19:49
af vldimir
Er sammála wice_man um Acer vélina. Mjög traustar og góðar vélar og eru alls ekki mjög háværar.

Ekki skemmir fyrir að þær eru ekki mjög dýrar.

Re: Hvað er best í fartölvu kaupum?

Sent: Fös 24. Jún 2005 21:33
af Stutturdreki
Friðrik G. skrifaði:Mér datt í hug HP Compaq NX7010 er hún góð ?
Myndi frekar fara í nc6120 eða nx8220 en þær eru 40þ kr dýrari. Varðandi tölvur undir 2.5kg .. nc4200 1.8kg með batteríi, alvöru 'ferðatölva' :)

Varðandi merki þá myndi ég aldrei kaupa mér neitt nema IBM, HP eða Dell (í þessari röð) nema kannski ef ég væri að endurnýja HP nc8000 vélina mína í dag myndi ég sennilega fara í nc8230..

Þú átt að borga vsk. af tölvubúnaði keyptum erlendis en það eru engir innfluttnings tollar. Sleppur við vsk. ef þú labbar sjálfur (eða einhver fyrir þig) með tölvuna í gegnum tollinn í Keflavík og ert með íslenskt lykklaborð (og tölvan ekki í umbúðunum).

Sent: Fös 24. Jún 2005 22:02
af zream
Það heyrist ekki neitt í Acer vélinni minni, mæli með þeim.

Re: Hvað er best í fartölvu kaupum?

Sent: Fös 24. Jún 2005 23:34
af Friðrik G.
Stutturdreki skrifaði:
Friðrik G. skrifaði:Mér datt í hug HP Compaq NX7010 er hún góð ?
Myndi frekar fara í nc6120 eða nx8220 en þær eru 40þ kr dýrari. Varðandi tölvur undir 2.5kg .. nc4200 1.8kg með batteríi, alvöru 'ferðatölva' :)


Mér lýst mjög vel á 8220 vélina, virkilega flott!

Sent: Þri 28. Jún 2005 22:43
af gnarr
ég mæli með travelmate

Sent: Mið 29. Jún 2005 20:40
af kristjanm
Dell Latitude eru frábærar.

Sent: Fim 30. Jún 2005 10:02
af danielr
Fyrst tek ég fram að ég vinn hjá fyrirtækinu Svar tækni, umboðsaðila Acer á Íslandi.

Hinsvegar, eins og flestir á þessu spjallborði geta staðfest, hafa Acer vélarnar verið að standa sig fáránlega vel, og mæli ég hiklaust með þeim(Keypti mér sjálfur TravelMate 4501 í fyrrasumar og svínvirkaði hún í skólanum).

Þú ert með verðþakið 190, en ég held að þessi vél gæti uppfyllt allt sem þú ert að leita að fyrir 180kall.

http://www.svar.is/vorur/?path=/resourc ... 8#1694wlmi

Örgjörvi: Intel Pentium M 2.0Ghz - Centrino - Dothan
- Týpa: 760, 2mb Cache/Skyndiminni, 533mhz FSB
Vinnsluminni: 512mb DDR 333
Harðdiskur: 100GB Ultra ATA 100
Drif: CD skrifari og DVD skrifari double layer
Skjár: 15.4" WXGA TFT (1280x800 uppl.) - Widescreen
- CrystalBrite tækni
Skjákort: ATi Radeon X600 128mb

Hafðu samband í daniel@svar.is ef þú hefur einhverjar spurningar.

Sent: Fim 30. Jún 2005 11:44
af W.Dafoe
Mér hefur nú fundist þessar skólavélar frá HP háværar. Ef þú vilt vera pottþéttur á hljóðlátri vél þá eru það IBM og DELL vélarnar, auk þess sem þjónustan er óaðfinnanleg og traust.

Ég er núna á IBM41, var skeptískur í fyrstu en núna er IBM alveg búinn að vinna mig yfir.

Sent: Fös 01. Júl 2005 01:59
af MezzUp
W.Dafoe skrifaði: Ef þú vilt vera pottþéttur á hljóðlátri vél þá eru það IBM og DELL vélarnar, auk þess sem þjónustan er óaðfinnanleg og traust.
Ég heyrði í dag að það væri mjög erfitt að fá að tala við tæknimann hjá Nýherja(um hlut sem er í ábyrgð) nema að hringja í 900 númer og borga hátt mínútugjald. Þekkirðu eitthvað til þess?

Sent: Fös 01. Júl 2005 07:59
af gnarr
það er satt.

Ég hringdi einhverntíman vegna galla í server sem við vorum með. Ég talaði við einhvern aula á verkstæðinu, sem btw gat ekki hjálpað mér neitt, svo 2 vikum seinna fengum við sendann reikning uppá 7.000kr. Við vorum ekkert látnir vita af því að það væri rukkað fyrir að tala við verkstæðið, og hvað þá að það væru 7.000kr fyrir umþaðbil 10mínútur (sem að fóru aðalega í bið).

Sent: Fös 01. Júl 2005 09:23
af W.Dafoe
MezzUp skrifaði:
W.Dafoe skrifaði: Ef þú vilt vera pottþéttur á hljóðlátri vél þá eru það IBM og DELL vélarnar, auk þess sem þjónustan er óaðfinnanleg og traust.
Ég heyrði í dag að það væri mjög erfitt að fá að tala við tæknimann hjá Nýherja(um hlut sem er í ábyrgð) nema að hringja í 900 númer og borga hátt mínútugjald. Þekkirðu eitthvað til þess?


Ég hef ekkert nema gott að segja um verkstæðið þeirra, hef ekki reynslu á því að vera að þurfa að hringja inn bilanir.

Spurning um að horfa bara á allar Sopranos og The Shield seríurnar og fara svo niðureftir og "take no shit from noone!" :D

Sent: Fös 01. Júl 2005 09:25
af W.Dafoe
Eitt í viðbót! Ekki gera þau MISTÖK að kaupa LEIKJALAPPA með DESKTOP örgjörva!! (þó hann sé frá DELL)

Ekki nema þú vilt láta gera grín af þér fyrir að vera alltaf með blásið hár ...

sammala

Sent: Fim 13. Okt 2005 16:02
af Mazi!
hahallur skrifaði:Ég hef slæma reynslu af Asus fartölvum.....annars ánægður með HP tölvanu mína.

Re: sammala

Sent: Fim 13. Okt 2005 17:12
af MezzUp
maro skrifaði:
hahallur skrifaði:Ég hef slæma reynslu af Asus fartölvum.....annars ánægður með HP tölvanu mína.
Sæll maro og velkominn á Spjallið. Þegar þú skrifar póst þá skaltu skrifa eitthvað í póstinn sjálfan. Það er ekki nóg að skrifa eitthvað í titilinum þar sem þeir eru svo lítið áberandi.

Sent: Fös 14. Okt 2005 18:43
af Xtremerer
Já ég held að málið sé að fá sér IBM. Bæði því nafnið hefur alltaf staðið fyrir sitt og að þjónustan hjá Nyherja er fyrirtaks.

Mæli með IBM ThinkPad T43 hjá Nyherja( http://www.nyherji.is/tolvur//nr/575 ). Þessi er allveg top véla, og að mínu mati besta velin sem hægt er að fá á Íslenskum markaði nú til dags:D

Sent: Fös 14. Okt 2005 21:39
af Yank
IBM Thinkpad áður en þær verða of kínverskar :wink:

Re: sammala

Sent: Fös 14. Okt 2005 23:01
af Veit Ekki
maro skrifaði:
hahallur skrifaði:Ég hef slæma reynslu af Asus fartölvum.....annars ánægður með HP tölvanu mína.


Af hverju ertu að svara svona gömlum pósti með orðinu sammála? :roll: