Síða 1 af 1

Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Lau 20. Júl 2019 19:24
af DoofuZ
Ég er búinn að prófa nokkur svona AR (Augmented Reality) öpp en hef ekki fundið neitt nógu gott sem virkar fyrir mínar aðstæður. Mig vantar bara eitthvað einfalt svoleiðis app þar sem ég get staðsett mynd (eða módel) af húsgagni eða einhverju öðru og séð í gegnum símann hvernig það kemur út í íbúðinni. Það væri best ef það er hægt að setja inní appið 2d myndir.

Vitiði um eitthvað slíkt app? :-k

Re: Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Lau 20. Júl 2019 21:05
af olihar
IKEA AR appið

Re: Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Lau 20. Júl 2019 23:05
af DoofuZ
Heitir það IKEA Place? Google Play segir mér að það virki ekki á mínum síma, er með Samsung Galaxy S9+ :| Er ekki til eitthvað app þar sem ég get sett inn 2d myndir af húsgögnum, vil geta náð í myndir frá húsgagnaverslunum og smellt þeim inn.

Kannski spurning um að finna frekar einfalt myndvinnsluapp þar sem ég get unnið með layers eins og í Photoshop, þá gæti ég bara tekið mynd af staðnum þar sem ég vil sjá húsgagn og svo bara sett mynd af því inná :-k

Re: Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Sun 21. Júl 2019 12:01
af olihar
Þú vilt ná í 2D mynd af Google og setja hana inn í 3D með Augmented Reality...... held þú sért aðeins að misskilja hvernig AR virkar.

Re: Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Sun 21. Júl 2019 15:45
af DoofuZ
Neinei, er ekki að misskilja hvernig það virkar :lol: Það er bara þannig að það eru ekki til módel af öllum húsgögnum í heiminum í svona öppum svo maður þyrfti líklega að gera sitt eigið 3d módel og það hljómar ekki einfalt þannig að mér datt í hug að athuga hvort það væri kannski til bara eitthvað myndvinnsluapp þar sem ég gæti tekið mynd af rýminu og sett svo mynd af húsgögnum inná til að sjá hvernig það kemur út. Nema það sé kannski til svona AR app þar sem maður geti auðveldlega búið til 3d módel útfrá 2d mynd af húsgagni? :-k

Hefur enginn hérna notast við svona öpp af einhverju viti?

Re: Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Mán 22. Júl 2019 08:58
af Viktor
Þetta sem þú ert að lýsa hljómar eins og Photoshop :-k

Re: Vantar gott og einfalt AR app fyrir breytingar á heimilinu

Sent: Mán 22. Júl 2019 13:21
af DoofuZ
Já, ef það er ekki til svona AR app sem getur breytt 2d myndum í 3d eða einhver leið til þess að gera það mjög auðveldlega með öðru appi eða í tölvu þá myndi duga fyrir mig svona Photoshop app þar sem ég get bara tekið mynd af rýminu og sett svo myndir af húsgögnum inná, þarf ekkert að sjá allt endilega í AR, vil bara geta séð hvernig allt kemur út á einfaldan máta.

Væri kannski best fyrir mig að taka mynd af rýminu, setja þá mynd í tölvuna og máta myndir af húsgögnum við myndina í Photoshop? :-k Vil helst gera þetta með símanum alla leið en ef það er ekki til nein einföld lausn á því hvernig ég vil gera þetta þá geri ég það kannski bara.