Nú er komið að því að fá sér dual simcard síma, er búinn að vera á leiðinni að gera það síðustu mánuði, spurningin er hvaða sími. Ég hef aldrei átt samsung síma, búinn að vera með Lg og Htc þar áður. Hvað segja símaspekingar.
Aldei séð þetta, eru þessir að koma vel út, allavega ódýrir, sem er kostur.
Hef heyrt bara góða hluti um pocophone, Xiaomi eru bestu símar sem ég hef átt. Hef átt 3 svoleiðis, minn núverandi sími er Xiaomi Mi Mix 2s, og ég eeeeeeeelska þennan síma, keypti minn á gearbest, og kostaði hann ca 42þ hingað til landsins kominn með öllum opinberum gjöldum
Ég hef verið að skoða dual sim síma svolítið undanfarna daga og mér sýnist öll flaggskipin sem eru dual sim vera með svokallað stand-by dual sim. Þeir eru þá með tvö slot en geta bara notað eitt kort í einu. Kortið sem er ekki virkt hverju sinni getur þá ekki tekið á móti símtölum. Fyrir mér er þetta álíka gagnslaust og að vera bara með eitt sim kort. Það eru auðvitað til einhverjir símar með active dual sim en enginn sími sem mig langar í. Væntanlega forðast framleiðendur active dual sim vegna auka kostnaðar við að bæta við öðru loftneti og þeirrar auknu rafmagnsnotkun sem það veldur.
Re: dual sim símar
Sent: Lau 29. Sep 2018 12:57
af Blackened
Ég er búinn að vera að nota OnePlus og gæti ekki verið sáttari! er með OnePlus 5 í dag og á nokkra félaga sem eiga OnePlus 6 og við erum allir þvílíkt ánægðir. Eftir rúmlega ár af daily notkun með 2 simkort er batteríið í mínum ennþá með mjög góða endingu (ég þarf yfirleitt aldrei að hlaða nema þegar ég fer að sofa) og DASH charging hleður símann um 60% á hálftíma þannig að batterí er aldrei ves
Top range sími fyrir mid range prís
Ég hef btw notað 2 simkort í nokkur ár og ég veit ekki hvort það heitir standby dual sim. en það skiptir engu máli í hvort númerið er hringt, síminn hringir
Það gæti svosem verið að meðan ég tala í SIM1 að SIM2 sé þá utan þjónustusvæðis og öfugt.. en það angrar mig ekki neitt ef svo er
Mæli hiklaust með því að skoða þetta amk
Re: dual sim símar
Sent: Lau 29. Sep 2018 13:01
af Viktor
DanielSkals skrifaði:Ég hef verið að skoða dual sim síma svolítið undanfarna daga og mér sýnist öll flaggskipin sem eru dual sim vera með svokallað stand-by dual sim. Þeir eru þá með tvö slot en geta bara notað eitt kort í einu. Kortið sem er ekki virkt hverju sinni getur þá ekki tekið á móti símtölum. Fyrir mér er þetta álíka gagnslaust og að vera bara með eitt sim kort. Það eru auðvitað til einhverjir símar með active dual sim en enginn sími sem mig langar í. Væntanlega forðast framleiðendur active dual sim vegna auka kostnaðar við að bæta við öðru loftneti og þeirrar auknu rafmagnsnotkun sem það veldur.
Það væri kannski nóg fyrir suma að áframsenda á hitt númerið ef næst ekki í annaðhvort.
Hentar til dæmis ef þú ert með vinnusíma og einkasíma, svo þú þurfir ekki að vera með tvo síma til að hringja vinnusímtal.
Aldei séð þetta, eru þessir að koma vel út, allavega ódýrir, sem er kostur.
Hef heyrt bara góða hluti um pocophone, Xiaomi eru bestu símar sem ég hef átt. Hef átt 3 svoleiðis, minn núverandi sími er Xiaomi Mi Mix 2s, og ég eeeeeeeelska þennan síma, keypti minn á gearbest, og kostaði hann ca 42þ hingað til landsins kominn með öllum opinberum gjöldum
Er Mi Mix með full Android? Minn redmi note er með eitt annað. Hefur valdið smá veseni

minn er með MIUI 10 sem er byggt á Android 8.0. semsé bara customized android. en hef ekki lent í neinu veseni með miui núna, átti fyrr mi Note Pro sem var með miui 8 að mig minnir og þoldi það ekki, en miui 10 er miiiiklu betra