Síða 1 af 1

Lenovo battery vessen

Sent: Þri 27. Mar 2018 13:09
af nonesenze
sælir, ég fékk notaða y700 fartölvu með ónýtu battery og það var svona appelsínu gult ljós á henni fyrir battery
en allavega ég panta mér alveg eins battery með sama parta nr. og ég skipti um það en tölvan kveikir ekki á sér en þegar ég sting henni í samband þá virkar allt fínt og ljósið orðið svona hvítt eins og það á að vera og hún fer að hlaða frá 50% og stoppar svo í 88% en drepst á henni um leið og ég tek hana úr sambandi, svo hleður hún alltaf í nokkrar sec þegar ég kveiki aftur á henni eða vaknar úr sleep og er komin í 91% núna.

ég er búinn að taka allt úr sambandi og halda power takkanum inni í 30 sec og ýta 10 sinnum á hann og halda svo inni í 20 sec og allskonar
sem ég er búinn að finna á google

hefur einhver reynslu af svona? eða með einhver ráð

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Þri 27. Mar 2018 14:42
af worghal
er batterýið örugglega að sitja rétt í? kyrfilega fast? öll tengi örugglega ekki laus?

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Þri 27. Mar 2018 16:28
af nonesenze
já, þetta er alveg inní tölvunni og tengt í móðurborðið með snúru og battery er skrúfað niður

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Þri 27. Mar 2018 16:46
af rapport
Ég hef lenti í svipuðu á gamalli Dell latidude 620, minnir mig.

Það er líklega eitthvað sem stútaði gamla batterýinu, þú hélst að lausnin væri nýtt batterý en núna er sama vandamál að stúta nýja batterýinu.


Í Dell vandanum hjá mér þá var þetta eitthvað lítið stykki sem stýrði hleðslunni en var í tölvunni, man að ég fann á google hvað ég ætti að gera og gat fiffað þetta úr annari eins tölvu.

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Þri 27. Mar 2018 17:19
af elri99
Ertu búin að fullvissa þig um að hleðslutækið sé í lagi?

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Þri 27. Mar 2018 18:00
af nonesenze
já sko með nýtt battery í tölvuni og hún fer ekki í gang alveg dead nema ég hafi hana í sambandi, það er allt eins og það á að vera, windows detectar batteríið og ég get séð part númer og serial og framleiðandann og allt það í battery report (powercfg /batteryreport)
bara tölvan vill ekki nota batteríið útaf einhverju sem ég skil ekki

edit:
hún fer í gang með engu battery, bara snúrunni

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Mið 28. Mar 2018 19:12
af nonesenze
enginn með einhver ráð fyrir mig til að prufa?

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Mið 28. Mar 2018 20:23
af roadwarrior
Hefur þú prufað hleðslutæki sem er ekki frá Lenovo, td eitthvað Universal hleðslutæki?

Re: Lenovo battery vessen

Sent: Fim 29. Mar 2018 02:32
af nonesenze
hvað á ég að gera við hleðslutæki ef tölvan er í 90% og kveikir ekki á sér?