Síða 1 af 1

Abyrgð a erlendri Dell fartölvu her heima?

Sent: Fim 01. Feb 2018 21:00
af Aimar
Sælir.
Er alþjóðleg ábyrg á vel keyptri i des erlendis frá?
Er að hugsa um notaða vel sem mer er boðið.

Re: Abyrgð a erlendri Dell fartölvu her heima?

Sent: Fös 02. Feb 2018 01:25
af Molfo
Þú þarft sennilega að láta færa ábyrgðina yfir til Íslands.
Prófaðu að heyra í þeim á verkstæðinu.. þeir taka ekki síma, kíktu til þeirra.
Þetta er yfirleitt einfalt mál, en tekur smá tíma ef ég man rétt.

Re: Abyrgð a erlendri Dell fartölvu her heima?

Sent: Fös 02. Feb 2018 03:09
af Aimar
hvaða verkstæði?

Re: Abyrgð a erlendri Dell fartölvu her heima?

Sent: Fös 02. Feb 2018 08:25
af brynjarbergs
Kíktu á verkstæði Advania í Borgartúni 28.

Re: Abyrgð a erlendri Dell fartölvu her heima?

Sent: Fös 02. Feb 2018 09:32
af Televisionary
Ég hef tvisvar farið með vél sem átti að vera með alþjóðlega ábyrgð fyrsta árið til Advania og ekkert nema leiðindi þetta endaði á því að þurfa að sendast til UK og fékkst viðgert þar án vandræða. Vonandi hefur þetta breyst en það verður bið á því að ég kaupi Dell vél.

Fyrir þessar sakir er ég t.d. hrifnari af Apple þegar kemur að ábyrgðarmálum hef verið með US og UK vélar og fengið frábæra þjónustu með þær í IS og UK. Apple Store UK hefur skipt út fyrir mig símum sem hafa verið keyptir í Elko ef það hefur verið vesen með þá. Epli.is hefur lagað US vélar án vandræða.

Re: Abyrgð a erlendri Dell fartölvu her heima?

Sent: Fös 02. Feb 2018 15:16
af Aimar
Er þetta eitthvað sem er lög eða bara eins og þeim hentar?? Eg er að hugsa hvort þetta se i samningum þeirra alveg eins og apple? Að það se fastur samningur eða að þeir geti neitað abyrgð?