Síða 1 af 1

USB Type-C hleðslusnúra sem er lengri en 1m?

Sent: Mið 28. Jún 2017 16:59
af Katli
Ég hef ekki séð neinn sem selur USB Type-C --> USB Type-A karl í karl snúru, lengri en 1m á landinu.
Þarf virkilega að panta svona basic hlut að utan?

Re: USB Type-C hleðslusnúra sem er lengri en 1m?

Sent: Fim 29. Jún 2017 12:10
af olinn
Til í Nova 1.8m usb-c

Re: USB Type-C hleðslusnúra sem er lengri en 1m?

Sent: Fim 29. Jún 2017 16:52
af chaplin
Ótrúlegt að það þurfi að nefna þetta, en það var víst verkfræðingur hjá Google sem grillaði tölvuna sína með lélegri USB-C snúru og er síðan búinn að vera "review" að fullt af USB-C snúrum.

Ólíkt 100 kr USB Mini/Micro snúrum sem maður hefur keypt sl. ár frá Kína, þá vandar maður valið á USB-C og kaupir ekki frá Kína.

Af því sem ég best veit er hættan mest (eingöngu?) á USB-C <-> USB-C, sel það ekki dýrar en ég keypti það.

http://astore.amazon.com/ba026-20?_encoding=UTF8&node=2

Re: USB Type-C hleðslusnúra sem er lengri en 1m?

Sent: Fim 29. Jún 2017 21:27
af Revenant
chaplin skrifaði:Ótrúlegt að það þurfi að nefna þetta, en það var víst verkfræðingur hjá Google sem grillaði tölvuna sína með lélegri USB-C snúru og er síðan búinn að vera "review" að fullt af USB-C snúrum.

Ólíkt 100 kr USB Mini/Micro snúrum sem maður hefur keypt sl. ár frá Kína, þá vandar maður valið á USB-C og kaupir ekki frá Kína.

Af því sem ég best veit er hættan mest (eingöngu?) á USB-C <-> USB-C, sel það ekki dýrar en ég keypti það.

http://astore.amazon.com/ba026-20?_encoding=UTF8&node=2


Alvöru USB-C <-> USB-C kapall verður að geta meðhöndlað 60W (20V @ 3A) af afli og jafnvel upp í 100W (20V @ 5A).
Ef kapallinn er dodgy og fer ekki eftir staðlinum eða er víraður vitlaust þá getur það skemmt tækin þegar þau reyna að draga 60W+ til að hlaða.