Síða 1 af 1

Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Þri 28. Mar 2017 22:55
af frappsi
Ég hef áhuga á að panta mér Xiaomi Mi 5 eða 5s síma. Í þeim umræðum sem hafa verið um pantanir á kínasímum hér hefur mér sýnst að það sé smá happdrætti hvort sími sem er ekki CE merktur sleppur í gegnum tollinn.
Hvernig hefur fólk verið að snúa sér í því að panta ekki-CE merkta síma til landsins? Einhverjir seljendur sem fólk mælir með frekar en aðrir sem reyna að greiða götuna t.d. með því að skaffa pappíra sem sýna fram á vottun?

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 08:36
af Halli25
Ættir ekki að lenda í vandræðum með Xiaomi, þeir eru CE merktir. Var nýlega að fá Xiaomi Redmi 4 fyrir konuna og kom í gegn án nokkura vandræða.

Konan er mjög sátt og kom á ensku þótt ég hafi ekki valið international útgáfuna en umbúðir voru allar á kínversku :)

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 09:10
af kizi86
Ekki allir Xiaomi símar eru CE merktir.. Minn Mi Note Pro er ekki CE merktur..

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 09:55
af frappsi
Hvar keyptuði símana ykkar? Sendi fyrirspurn á ali seljanda sem mælt er með og þeirra símar eru bara CCC merktir. Á eftir að fá svör frá öðrum seljendum en býst við því sama.

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 10:06
af Halli25
pantaði minn frá Gearbest

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 10:57
af littli-Jake
Er með xiaomi note 4 i höndunum nuna sem eg fekk i hendurnar i gær. Hingað til er eg bisna sattur þo eg hafi ekki verið með Adroid aður. Eina sem mig vantar er betra app fyrir islenskt lyklaborð.
Minn er ekki CE merktur. eg pantaði fyrst með venjulegu shiping og það tok rosalegan tima og siminn var stopaður i tollinum. pantaði aftur með dhl og ekkert vesen.

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 18:49
af kizi86
littli-Jake skrifaði:Er með xiaomi note 4 i höndunum nuna sem eg fekk i hendurnar i gær. Hingað til er eg bisna sattur þo eg hafi ekki verið með Adroid aður. Eina sem mig vantar er betra app fyrir islenskt lyklaborð.
Minn er ekki CE merktur. eg pantaði fyrst með venjulegu shiping og það tok rosalegan tima og siminn var stopaður i tollinum. pantaði aftur með dhl og ekkert vesen.

swiftkey er BESTA lyklaborðið fyrir android HANDSDOWN.. og með fullu íslensku lyklaborði þar sem þ ð og ö og æ eru á lyklaboriðinu sjálfu, ekki longpress á t, d, a og o..


svo on topic, þá er Mi 6 og Mi 6 plus rétt handan við hæðina.. og miðað við leaked specs.... SLEEEEEEEF sjitt hvað mig langar í hann!

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Mið 29. Mar 2017 22:59
af peer2peer
Átti Xiaomi, pantaði af ALI og lét senda með DHL, þá er þetta ekkert vesen. En fuck, hvað MIUI er ógeðslega leiðinlegt kerfi. Ég seldi minn síma og fékk mér alvöru græju "Google Pixel". En ég klárlega mæli með þessum símum, mjög gott build quality og á frábæru verði, en skiptið úr MIUI ef þið mögulega getið.

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Fim 30. Mar 2017 00:54
af kizi86
peturthorra skrifaði:Átti Xiaomi, pantaði af ALI og lét senda með DHL, þá er þetta ekkert vesen. En fuck, hvað MIUI er ógeðslega leiðinlegt kerfi. Ég seldi minn síma og fékk mér alvöru græju "Google Pixel". En ég klárlega mæli með þessum símum, mjög gott build quality og á frábæru verði, en skiptið úr MIUI ef þið mögulega getið.

ég alltaf beið og beið eftir að kæmir í heimsókn svo ég gæti sett "alvöru" android upp á þinn :P en já tek undir þetta, miui er horbjóður, en blessunarlega er alveg ágætis custom rom community fyrir flesta ef ekki alla xiaomi síma á xda

Re: Að kaupa Xiaomi síma

Sent: Fös 31. Mar 2017 11:17
af peer2peer
kizi86 skrifaði:
peturthorra skrifaði:Átti Xiaomi, pantaði af ALI og lét senda með DHL, þá er þetta ekkert vesen. En fuck, hvað MIUI er ógeðslega leiðinlegt kerfi. Ég seldi minn síma og fékk mér alvöru græju "Google Pixel". En ég klárlega mæli með þessum símum, mjög gott build quality og á frábæru verði, en skiptið úr MIUI ef þið mögulega getið.

ég alltaf beið og beið eftir að kæmir í heimsókn svo ég gæti sett "alvöru" android upp á þinn :P en já tek undir þetta, miui er horbjóður, en blessunarlega er alveg ágætis custom rom community fyrir flesta ef ekki alla xiaomi síma á xda


Ég veit elsku kallinn minn, en ég endaði hvort eð er á að selja kvikindið og fara í Pixel! En frábærir símar og haugur af custom rom fyrir þá, svo það ætti ekki að vera vesen fyrir fólk að skipta og gera það helst sem fyrst!