Síða 1 af 1

Fartölvu ráð

Sent: Mið 19. Jan 2005 12:53
af AxIz
Jæja þá er komið að því að ég hef selt borðtölvuna mína og hef ákveðið að fá mér ferðatölvu! Það vill svo heppilega til að pabbi minn þekkir einhvern kall út í USA sem væri til í að kaupa tölvuna og senda hana svo hingað heim til Íslands. Þannig ég var að spá, hvort þið mynduð getað gefið mér einhver upplýsingar um frekar góða tölvu. Það sem ég er að leita af í ferðatölvu er, ágætis skjákort til þess að spila þessa helstu leiki CS, Quake, en ekkert monster kort sem kostar einhver tugi þúsundir ;p, hún þarf að vera með gott batterí þar sem ég mun nota hana í skólanum og þar af leiðandi helst ekki verulega hávær:)

Með von um góð svör! Takk fyrir :D

Sent: Mið 19. Jan 2005 14:12
af vldimir
Jújú, maður er í sjálfur í leit að svona vél.. Eftir því sem ég hef best séð þá eru Acer tölvurnar að koma best út miðað við þær kröfur sem ég er að gera.. Það sem ég er að leita eftir er :

:arrow: Hljóðlát
:arrow: Dothan örgjafi (1.6ghz+)
:arrow: Góð batterýsending (4 tímar+)
:arrow: Radeon 9700 64/128mb
:arrow: Lágmark 512 í minni
:arrow: Lágmark 60gb
:arrow: Ekki þyngri en 3.2kg

Þetta eru sumsé kröfurnar sem ég er aðalega að gera, fyrir utan náttúrlega trausta og góða tölvu með lága bilanatíðni. Sá sem ég tók fyrst eftir var sennilega ASUS tölva, hún uppfyllti allar þessar kröfur, en hún var frekar dýr og þótt ég hafi lesið ASUS ferðavélarnar hafa lága bilanatíðni sýnist mér þær samt vera mjög óalgengar.. Svo rakst ég núna á daginn í tölvurnar í Svar, Acer tölvur.. Vinur minn á eina slíka og er hún mjög hljóðlát og var að runna alla leiki mjög vel, reyndar var hann búinn að bæta öðrum 512mb kubb í hana, en það myndi maður gera líka sjálfur..

Ekki eru þær mjög dýrar, sérstaklega miðað við aðrar svipaðar tölvur.. Hér eru vélarnar

Þannig eins og mér sýnist ert þú í leita að svipaðri vél og myndi ég mæla með þessari. Hún ætti að fást á kúk og kanil úti myndi ég halda, sérstaklega í BNA þar sem dollarinn er alveg fáránlega lár sem stendur.

Sent: Mið 19. Jan 2005 14:48
af fallen
Hvernig líst mönnum á http://www.task.is/?webID=1&p=171&sp=244&ssp=291&item=1386 ?
ég er sjálfur að spá í svona vélum en veit takmarkað um hvað er gott og hvað ekki í þessum lap bransa :o

Sent: Mið 19. Jan 2005 14:55
af skipio
fallen, mér finnst þessi fulldýr miðað við að þetta er noname merki og þar að auki hjá Task. (Spurningin hvað ábyrgðin hjá þeim á eftir að blíva lengi í viðbót.)

Ég myndi sjálfur bara kaupa Thinkpad T tölvur sem eru langsamlega bestu ferðatölvurnar á markaðnum. Þær eru líka með 1 árs alþjóðlegri ábyrgð þannig að Nýherji þarf að þjónusta þær vélar sem eru keyptar í BNA. (Skilst mér allavega). Hægt að kaupa auka eins eða tveggja ára ábyrgð líka ...

Sent: Mið 19. Jan 2005 15:13
af vldimir
Miðað við speccana er þessi vél ekki fulldýr, þvert á móti, ef þú myndir t.d. láta þessa specca í HP vél væri hún sennilega á um langt yfir 200.000 og myndi ég halda um 280.000.. En þar sem ég hef heyrt að Mitac séu frekar háværar og séu með frekar háa bilanatíðni myndi ég ekki mæla með henni..

Sennilega 'bestu' ferðatölvurnar eru jú IBM Thinkpad, maður hefur varla séð dæmi um þær bili, margir skólar með mjög gamlar thinkpad vélar sem enn svínvirka, en verðið á þeim er gjörsamlega fáránlegt, allavega hér innanlands..

Vél með t.d. nánast sama specca og Mitac vélin, nema minni örgjörva ( 1.8 í IBM vélinni ) kostar 449.900..

Vél með alveg fína specca, sem maður gæti vel sloppið með að spila leiki á er á 319.900, en þar ertu kominn í 40gb hd, 512mb, 1.7ghz og 9600 skjákort..

Myndi segja að IBM vélarnar séu mjög slæmur kostur peningalega séð, en ef þú átt nóg af þeim, vilt vél sem mun sennilega aldrei bila þá gæti IBM jú verið fín.. Líka finnst mér einn galli við þær, útlitið, finnst þær eitthvað svo 'gamaldags'.. EN kannski er það bara ég ;)

Sent: Mið 19. Jan 2005 19:14
af Daz
Ég endurtek það sem hefur komið oft fram áður, mitac tölvurnar eru vel "speccaðar", en ótrúlega háværar miðað við margar aðrar tölvur (skv minni frekar takmörkuð reynslu). En hvort sá hávaði er of mikill verður hver að dæma fyrir sig, það ætti að vera lítið mál að fá seljandann til að leyfa þér að prófa hana aðeins, fá að hlusta á tölvuna í hljóðlátu umhverfi, Tölvulistinni kl 16 á föstudegi er t.d. ekki dæmi um hljóðlátt umhverfi.

Sent: Mið 19. Jan 2005 19:21
af skipio
vldimir skrifaði:Vél með t.d. nánast sama specca og Mitac vélin, nema minni örgjörva ( 1.8 í IBM vélinni ) kostar 449.900..

Pantar bara frá BNA með shopUSA (sbr. alþjóðlegu ábyrgðina). Færð fína IBM T-vél til landsins fyrir minni pening en maður er að borga fyrir þessa Mitac.

Sent: Mið 19. Jan 2005 22:52
af gnarr
Hefur einhver hlustað á Mitac tölvu nýlega? Ég gæti alveg trúað því að eitthvað sé breytt.

Sent: Fim 20. Jan 2005 11:37
af Daz
gnarr skrifaði:Hefur einhver hlustað á Mitac tölvu nýlega? Ég gæti alveg trúað því að eitthvað sé breytt.

Ég hlustaði á nokkrar týpur síðasta haust og þær voru alveg jafn slæmar og ársgamlar mitac tölvur. Þeir nota svipað kælingarkerfi í allar sínar tölvur sem virðist virka þannig að viftan fer bara stundum í gang, ekkert endilega þegar tölvan er í mikilli notkun og þá er frekar mikil hávaði. Hvort að það er komið annað kerfi í Dothan tölvurnar þeirra núna en var í Dothan tölvunum í haust veit ég svosem ekkert um enda ekki skoðað Fartölvu síðan ég keypti mína MSI Megabook.

Sent: Fim 20. Jan 2005 12:11
af ParaNoiD
ég á Mitac og finnst hún bara ekkert hávær :?

Sent: Fim 20. Jan 2005 12:20
af Daz
Þess vegna segi ég líka alltaf "en hvort það er of mikill hávaði verður hver að dæma fyrir sig". Það er alveg ótrúlegt hvað margir spá ekkert í því hvort fartölvurnar séu hljóðlátar eða ekki og lenda svo í "nasty suprise" þegar þyrluspaðarnir fara að snúast, hvort sem það er Mitac eða önnur tegund. Mín komment um hávaðann í Mitac vélunum eru aðalega ætluð til að þeir sem eru að spá í að kaupa þær hlusti á þær í smá stund og viti þá af mögulegum hávaða fyrirfram.

Sent: Fös 21. Jan 2005 22:39
af AxIz
Hehe, takk fyrir þessi ráð.. en ég var nú að leita mér af tölvu út í bandaríkjunum þar sem ég tel mig vera að fá meira fyrir pening og svoleiðis:o