Síða 1 af 1

Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Þri 23. Ágú 2016 14:33
af Framed
Nú er 10 línan af skjákortum frá Nvidia fyrir fartölvur komin út. Asus og fleiri eru búin að setja fartölvur útbúnar með kortum úr línunni á markað.

Er einhver hérna sem veit hvenær slíkar tölvur eru væntanlegar á íslenskan markað?

Ég veit ekki með ykkur en ég er spenntur fyrir þessu. Afköstin eiga að vera innan við 10% frá desktop útgáfu kortanna. Það er helst hitalosunargeta fartölva sem eiga að takmarka afköstin. Laptop útgáfan af gtx 1070 er m.a. með fleiri Cuda kjarna heldur en desktop útgáfan.

Ég var sem sagt að pæla í að fara að endurnýja fartölvuna hjá mér en ég er búinn að ákveða að bíða eftir nýju kortunum.

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Þri 23. Ágú 2016 15:27
af hfwf
Sá nokkrar tölvur úti einmitt í verðkantinum 1500-3500 dollara, frá asus og acer ef ég man rétt. Þarf einmitt að fjárfesta bráðlega í tölvu, vonandi að þær verði komnar þá.
Væri einmitt gaman að heyra hvenær eitthvað myndi lenda.

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Fim 25. Ágú 2016 02:00
af Framed
Engir starfsmenn tölvuverslana eða birgja hérna sem vita eitthvað um hvenær von er á svona fartölvum?

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Fös 26. Ágú 2016 21:04
af braudrist
https://www.amazon.com/MSI-GT73VR-SLI-0 ... B01IO9YBTY

Þessi er suddaleg :D Myndi örugglega kosta 700-800 þús. hérna

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Fös 26. Ágú 2016 23:03
af Oak
Hún kostar nú bara 725 þús. miðað við free shipping frá Amazon. Held að hún yrði nú eitthvað töluvert dýrir þessi. Ef fartölvu mætti kalla :)

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Þri 30. Ágú 2016 22:58
af Framed
Þessi er pínu overkill miðað við það sem ég hafði í huga.

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Mið 31. Ágú 2016 13:25
af vesley
Oak skrifaði:Hún kostar nú bara 725 þús. miðað við free shipping frá Amazon. Held að hún yrði nú eitthvað töluvert dýrir þessi. Ef fartölvu mætti kalla :)


Tölvan er nú tæp 5 kíló svo það er nú ekki auðvelt að kalla þetta fartölvu, 18,4" skjár og tilheyrandi, nánast borðtölva með áföstu lyklaborði og skjá.

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Mið 31. Ágú 2016 18:17
af Oak
vesley skrifaði:
Oak skrifaði:Hún kostar nú bara 725 þús. miðað við free shipping frá Amazon. Held að hún yrði nú eitthvað töluvert dýrir þessi. Ef fartölvu mætti kalla :)


Tölvan er nú tæp 5 kíló svo það er nú ekki auðvelt að kalla þetta fartölvu, 18,4" skjár og tilheyrandi, nánast borðtölva með áföstu lyklaborði og skjá.


Lastu ekki það sem ég skrifaði?

Ég er sammála þér þetta er ekki "fartölva" :D

Re: Nvidia gtx 10xx laptop ETA fyrir Ísland?

Sent: Mið 31. Ágú 2016 18:19
af vesley
Oak skrifaði:
vesley skrifaði:
Oak skrifaði:Hún kostar nú bara 725 þús. miðað við free shipping frá Amazon. Held að hún yrði nú eitthvað töluvert dýrir þessi. Ef fartölvu mætti kalla :)


Tölvan er nú tæp 5 kíló svo það er nú ekki auðvelt að kalla þetta fartölvu, 18,4" skjár og tilheyrandi, nánast borðtölva með áföstu lyklaborði og skjá.


Lastu ekki það sem ég skrifaði?

Ég er sammála þér þetta er ekki "fartölva" :D


Jú ég las það sem þú sagðir :) Átti í raun ekki að vera quote á þig heldur fyrir ofan