Síða 1 af 2
Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 19:39
af kjartanbj
Og hvernig finnst ykkur, ég er kominn með einn S7 Edge ásamt Galaxy VR , rosalegt stökk frá Lg G3 sem ég var með , skjárinn er ótrúlega flottur , batteríið virðist vera endast mjög vel og er bara mjög sáttur
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 19:41
af gissur1
Er með massa valkvíða yfir því hvort ég fái mér G5 eða S7 :S
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 20:33
af dbox
gissur1 skrifaði:Er með massa valkvíða yfir því hvort ég fái mér G5 eða S7 :S
Ég pers myndi skoða G5 frekar þar sem þú getur skipt rafhlöðu í þegar þig hentar svo má reikna með að verðið verði mun lægra.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 20:42
af kjartanbj
Galaxy S7 Edge er með 3600mah rafhlöðu , og ég man ekki eftir því nema fyrir mörgum árum að batterí í síma hafi skemmst hjá mér, maður er löngu búin að uppfæra áður en það gerist, svo er plús að S7 er vatnsheldur , ef maður er eitthvað í batterís vandamálum td þar sem er ekki hægt að komast í rafmagn þá kaupir maður sér bara USB power brick, á einn tæplega 9000mah lítið mál að hlaða S7 Edge ca 2svar með honum
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 20:46
af GuðjónR
Ótrúlega flottur.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 21:02
af MuGGz
Ég er kominn með s7 edge gold og ég er að fíla hann í drasl!
Skjárinn hrikalega flottur, finnst stærðin og lögunin fullkomin í hendi og er í raun bara ekki búinn að finna einn hlut sem ég fíla ekki
Pantaði mér 2 töskur frá spigen og var komin með þær áður enn ég fékk símann og þær smellpassa líka
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 21:48
af kjartanbj
Ég er að bíða eftir Wallet frá Spigen, verð að hafa hann í svoleiðis með kortunum mínum og skilríkjum, alveg orðin háður því, ómögulegt að vera með veski núna á meðan ég bíð eftir töskunni frá Spigen
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 22:37
af valdij
Kominn minn með minn, sama og MuGGz - Edge gold og finnst hann frábær.
Fyrsti Android síminn minn eftir að hafa átt iPhone síðastliðin 6 ár. Stærðin á honum finnst mér einmitt "akkúrat" stór og flottur skjár en passar mjög vel í hendi. Allir sem hafa séð hann hjá mér segja það sama og ég hugsaði þegar ég keypti mér hann - hann sé einfaldlega töluvert flottari en iPhone símarnir nýju.
So far so very good.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Fös 11. Mar 2016 23:52
af Haukursv
kominn með s7 edge og finnst hann geggjaður. Myndi samt ekki mæla með honum ef þú ert með litlar hendur eða vilt netta síma. Batterýið er þrusugott og er alltaf með svona 30-40 % í lok dags við venjulega / frekar mikla notkun. Klikkuð myndavél líka.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Lau 12. Mar 2016 22:19
af Frost
Ég er kominn með S7 í hendurnar eftir að hafa verið með iPhone 6+ sem gafst upp. Mjög þægilegt að vera kominn aftur í Android. Skjárinn er algjör snilld og hann er mjög hraður. Stór sölupunktur fyrir mig var microSD slot sem ég mun pottþétt nota.
Stærðin er mjög þægilegt, það var gaman að hafa iPhone 6+ fyrst en síðan fór stærðin að fara í taugarnar á mér, fannst hann alltof stór. Myndavélin lofar góðu og fast charge er algjör snilld. Hef ekki átt hann í langan tíma þannig erfitt að segja um hvað mér líkar ekki við hann.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Lau 12. Mar 2016 23:03
af kjartanbj
Hvernig eruði að fíla Gear VR þeir sem eru komnir með svona síma og Gear VR , þetta er helvíti flott finnst mér miðað við að vera bara með síma
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Lau 12. Mar 2016 23:44
af Frost
kjartanbj skrifaði:Hvernig eruði að fíla Gear VR þeir sem eru komnir með svona síma og Gear VR , þetta er helvíti flott finnst mér miðað við að vera bara með síma
Mér finnst þetta mjög gaman, hef ekki ennþá prófa HTC Vive eða Rift þannig ég hef í raun voða lítið til að bera saman við en að fá þetta með símanum er skemmtilegt. Skemmti mér mjög mikið þegar ég nota
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Lau 12. Mar 2016 23:46
af appel
Ég var að fá S6 edge+ og er orðinn frekar pissed útaf því að 3 mánuðum síðar er kominn S7.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Lau 12. Mar 2016 23:55
af Crush1234
Er curvið alveg að virka í myndböndum og Hamburger menu-inu?
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Lau 12. Mar 2016 23:59
af appel
Crush1234 skrifaði:Er curvið alveg að virka í myndböndum og Hamburger menu-inu?
Ekki fá ykkur Curved síma, ég er búinn að vera með slíkan og mín reynsla er sú að ég er alltaf að rekast í einvherja virkni sem er activeituð af hliðarhnöppum. Ég var á vefsíðu og allt í einu var ég byrjaður að recorda einhvern skít útaf því að ég hélt á símanum með grumlunni.
Þessi asíu búar skilja ekki skít í notkunargildi. Það er einsog þessir símar hafi ekkert verið prófafir.
Ég sakna gamla símans míns, galaxy s2. Ég gat allavega hlustað á fm radio í honum, og hann fór ekki allur í vitleysu við að hlusta á youtube sem podcast í vasanum.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 00:06
af MuGGz
appel skrifaði:Ég var að fá S6 edge+ og er orðinn frekar pissed útaf því að 3 mánuðum síðar er kominn S7.
Alltaf að skoða netið áður enn maður fer í ný kaup, það voru komnar nokkuð góðar líkur frá mögum sourcum að nýr sími yrði kynntur Í febrúar
Enn varðandi curved, þá er s7 allt annar finnst mér enn s6 varðandi curved, minna "aggressive" og hönnunin líka bara mikið betri eins og með t.d. curved back sem gerir hann muuun þægilegri í hendi
Að horfá á video og browsa með curved er smá stund að venjast enn ég er að fíla minn í drasl og mig langaði aldrei neitt í s6 edge hvorki venjulega né plúsinn
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 00:10
af appel
MuGGz skrifaði:appel skrifaði:Ég var að fá S6 edge+ og er orðinn frekar pissed útaf því að 3 mánuðum síðar er kominn S7.
Alltaf að skoða netið áður enn maður fer í ný kaup, það voru komnar nokkuð góðar líkur frá mögum sourcum að nýr sími yrði kynntur Í febrúar
Enn varðandi curved, þá er s7 allt annar finnst mér enn s6 varðandi curved, minna "aggressive" og hönnunin líka bara mikið betri eins og með t.d. curved back sem gerir hann muuun þægilegri í hendi
Að horfá á video og browsa með curved er smá stund að venjast enn ég er að fíla minn í drasl og mig langaði aldrei neitt í s6 edge hvorki venjulega né plúsinn
Það helsta sem ég hef gert við minn S6 Galaxy Curved Plus Gold plated síma er að:
1) Hringja í móður mína
2) horfa á south park þætti
Mér finnst persónulega þessi áhersla á snjallsíma frekar skondin. En alltílagi.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 03:40
af Danni V8
Fer að styttast í ár síðan ég fékk mér S6. Nenni ekki þessu Edge dæmi þar sem ég þarf að hafa mína síma í bumper annars enda þeir eins og iPhone eftir 2 daga.
Er farinn að leggja svo miklu minni áherslu á símann að mig grunar að þessi S6 verði fyrsti snjallsíminn sem ég verð með alveg þangað til hann gefst endanlega upp.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 04:18
af Frost
Danni V8 skrifaði:Fer að styttast í ár síðan ég fékk mér S6. Nenni ekki þessu Edge dæmi þar sem ég þarf að hafa mína síma í bumper annars enda þeir eins og iPhone eftir 2 daga.
Er farinn að leggja svo miklu minni áherslu á símann að mig grunar að þessi S6 verði fyrsti snjallsíminn sem ég verð með alveg þangað til hann gefst endanlega upp.
Ég einmitt uppfærði úr iPhone 6+ eftir að hann beyglaðist og skjárinn hætti að virka
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 11:51
af k0fuz
Ég fór úr S5 í S7 og mér finnst hann alger snilld, hönnunin nátturulega major stökk og mjög hraður að öllu, virðist höndla multi-tasking mun betur. Aðeins búinn að prófa VR gleraugun, eitt sem ég sá að þar var að ég sá aldrei fyllilega í fókus, kannski því annað augað er með aðeins meiri nærsýni en hitt, á maður þá að vera með linsu í öðru auga? xD annars mjög flott og töff.
EDIT: og já myndavélin er geggjuð
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 13:20
af kiddi
Ég er einn af útvöldum sem er með beyglaðan iPhone 6+ þar sem snertiskjárinn dettur ítrekað úr sambandi, fór í Epli um daginn og spurði hvort þeir höfðu séð þetta áður og þeir bara "nibb" - einmitt, á meðan ég beið eftir að þeir kíktu aðeins á símann þá labbaði annar inn með nákvæmlega sama vandamál. Það lítur út fyrir að þeir megi ekki viðurkenna að þetta sé algengt vandamál, því þá væru þeir að viðurkenna að þetta væri galli. Svo mega þeir víst ekki gera við síma lengur svo þeir mæltu með í búðinni að ég færi bara með símann í tryggingarnar, sem ég neyðist víst að gera - glatað að vera með nokkurra mánaða ónothæfan síma sem kostaði 150þús.
Já og ég hef aldrei sett í hann í rassvasa eða komið honum í óeðlilegar aðstæður.
Þannig að maður er farinn að velta fyrir sér Samsung Galaxy S7, þó ég fái bólur við tilhugsunina um að fara aftur í Android, en Samsung símarnir virðast umtalsvert harðari af sér en iPhone.
En mig langar að spyrja þá sem eru búnir að kaupa, fylgir Gear VR með símanum allsstaðar eða bara á vissum stöðum?
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 13:22
af k0fuz
Gear VR fylgdi bara með í forsölunni síðast þegar ég vissi. En athugaðu bara með vodafone, símann og elko.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 14:02
af audiophile
Gear VR fylgdi bara með S7/S7 Edge sem keyptir voru fyrir 11. mars.
Þetta með beyglaða iPhone er ekkert djók. Fullt af fólki að lenda í þessu og Epli taka enga ábyrgð.
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 14:34
af GuðjónR
kiddi skrifaði:glatað að vera með nokkurra mánaða ónothæfan síma sem kostaði 150þús.
Þetta er ekkert mál kiddi minn, ég lána þér bara minn aftur ef þú þarft að hringja!
Re: Jæja, hverjir er komnir með Galaxy S7/S7 Edge
Sent: Sun 13. Mar 2016 19:13
af kjartanbj
k0fuz skrifaði:Ég fór úr S5 í S7 og mér finnst hann alger snilld, hönnunin nátturulega major stökk og mjög hraður að öllu, virðist höndla multi-tasking mun betur. Aðeins búinn að prófa VR gleraugun, eitt sem ég sá að þar var að ég sá aldrei fyllilega í fókus, kannski því annað augað er með aðeins meiri nærsýni en hitt, á maður þá að vera með linsu í öðru auga? xD annars mjög flott og töff.
EDIT: og já myndavélin er geggjuð
Ég var smá að vesenast með að fókusa fyrst, en maður þarf aðeins að stilla gleraugun á hausnum líka , gætir þurft að lyfta þeim aðeins og hreyfa til
er orðið nokkuð gott hjá mér , næ að fókusa mjög vel