Síða 1 af 1
Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Mán 25. Jan 2016 23:47
af Explorer
Hello folks. Ég er með Lenovo s850c síma sem ég keypti frá Kína market. Frábær sími að svo mörgu leiti fyrir utan 1 atriði.
Hann d.loadar óendanlega miklu af öppum um leið og:
1: maður opnar skjálæsingu. Þá er eins og hann endurræsir og loadar öppum sem eru á rom og ég hef ekki náð að eyða.
2. maður opnar fyrir internetið.. þá nær síminn bara í e.h önnur öpp. Náði einu sinni að hamra 7 nýjum öppum inn (næ yfirleitt að eyða þeim út aftur en vá bögg að þurfa að gera það ... endalaust )
Síminn var " Root aður " og með e.h skemmtilegum öppum/möppum frá "Root aranum" í Kína
Ég setti símann í hendurnar á verkstæði sem ætlaði að Flassa romið og setja símann upp aftur ... . ... en þá er e.h læsing í símanum sem hindrar þá framkvæmd.
Hafi þið e.h tímann lent í svipuðum gamanleik. Gaman að heyra hvernig það var tæklað.
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Þri 26. Jan 2016 11:26
af kizi86
ég hef svipaða sögu að segja, er með Xiaomi Mi Note Pro, og hann er eeeeendalaust að setja upp einhver leiðinda öpp, notaði root explorer til að henda út flestu sem ég þorði að henda út ( megin parturinn af bloatwareinu sem kom með símanum var installað sem "system app" svo var ekki hægt að uninstalla frá play store/ app settings í símanum, fór bara í /system möppuna og eyddi þessum forritum þaðan út, og restartaði símanum.
en síminn er enn að setja upp forrit, samt ekki nærrum því eins oft og það gerði hér áður..
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Þri 26. Jan 2016 16:44
af blitz
Lausnin er væntanlega að root'a og setja upp nýtt ROM til þess að vera laus við þessa óværu
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 02:55
af Swooper
Hvað er "e.h"? Af því að venjulega þýðir það (eða réttara sagt "e.h.", þú gleymdir seinni punktinum) "eftir hádegi", en mér finnst það ekki alveg passa inn í textann hjá þér svo þú hlýtur að meina eitthvað annað.
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 03:42
af kizi86
Swooper skrifaði:Hvað er "e.h"? Af því að venjulega þýðir það (eða réttara sagt "e.h.", þú gleymdir seinni punktinum) "eftir hádegi", en mér finnst það ekki alveg passa inn í textann hjá þér svo þú hlýtur að meina eitthvað annað.
E. H í þessu tilfelli er örugglega eitthvað
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 03:43
af kizi86
blitz skrifaði:Lausnin er væntanlega að root'a og setja upp nýtt ROM til þess að vera laus við þessa óværu
Oft eru ekki til custom rom fyrir kinasima..
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 03:50
af Swooper
kizi86 skrifaði:E. H í þessu tilfelli er örugglega eitthvað
"Eitthvað" er skammstafað "e-ð", ekki "e.h" samt.
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 06:34
af g0tlife
Swooper skrifaði:kizi86 skrifaði:E. H í þessu tilfelli er örugglega eitthvað
"Eitthvað" er skammstafað "e-ð", ekki "e.h" samt.
Það sem fólk nennir að eyða tímanum sínum í og hvað þá að hjálpa honum ekki neitt í þokkabót
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 21:10
af Swooper
Ég hjálpaði. Með stafsetningu. Stafsetning er aldrei tímasóun.
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Fös 29. Jan 2016 21:20
af Explorer
Hmm ok. Þetta er þá greinilegt vandamál í kína símum. Leiðinlegt.. Þeir eru svo ódýrir
Var að frétta af einum í viðbót sem eins og ég pantaði frá Kína. Rosa flottur og hraðvirkur sími (Octa core)(3 GB ram) ofl. en með þennan ósið. Þeir eru í smá basli á verkstæðinu. Þannig að ég held að þetta sé hægara sagt en gert.. Takk allir sem commentuðu því tengt. Ætli maður verði ekki bara að panta sér einn frá Amerikunni?
og já takk fyrir kennsluna. Alltaf gaman, Var ekki að hugsa um skammstöfun þegar eg opnaði þennan þráð
en hey ég mun nota þetta til að bæta mig e-ð
aldrei tímasóun að bæta sig.
Re: Lenovo s850c sími ættaður frá Kína úff ótemja
Sent: Lau 30. Jan 2016 06:20
af Cikster
kizi86 skrifaði:ég hef svipaða sögu að segja, er með Xiaomi Mi Note Pro, og hann er eeeeendalaust að setja upp einhver leiðinda öpp, notaði root explorer til að henda út flestu sem ég þorði að henda út ( megin parturinn af bloatwareinu sem kom með símanum var installað sem "system app" svo var ekki hægt að uninstalla frá play store/ app settings í símanum, fór bara í /system möppuna og eyddi þessum forritum þaðan út, og restartaði símanum.
en síminn er enn að setja upp forrit, samt ekki nærrum því eins oft og það gerði hér áður..
kizi86 er alveg með þetta. Vera með síman ótengdan netinu (slökkva á wifi og data connection), fara í settings - apps - running apps og finna allt sem er með kínverskum táknum og/eða hljómar eins og gæti verið að setja upp leiðindarforrit. Ef þú ýtir á það opnast annar screen þar sem þú getur séð hvað það process heitir og nafnið á því í símanum (com.android.??? ). Ef þú vilt vera viss um að það sé svoleiðis forrit leitaðu í tölvu að com.android.??? nafninu þar sem er mjög líklegt að einhver annar hafi lent í því og tekið það út hjá sér. Þegar þú ert búinn að fara gegnum listann og finna það sem þú vilt taka út nota leiðina sem kizi86 nefnir.