Síða 1 af 1

Prepaid 3G kort fyrir frakkland?

Sent: Þri 12. Jan 2016 18:15
af dedd10
Sælir.

Er að fara til París í febrúar og ætlaði að skoða að kaupa Prepaid 3G kort fyrir iPadinn minn, hef alltaf gert þetta þegar ég hef farið til englands síðustu árin og ekkert mál að kaupa bara á ebay og fá sent heim og plugga í ipadinn í fluginu á leið út og beint á netið við lendingu.

Ég finn hinsvegar ekkert svona fyrir frakkland. Einhver sem hefur reynslu af svona?

Þarf Nano-sim. skiptir kannski ekki öllu máli maður getur klippt til.

En já, amk 1-2gb innifalið sem endist í amk viku.

Einhver sem getur bjargað? Nenni varla að fara leita að þessu á flugvellinum eða í búðum. vill vera kominn með þetta áður en ég fer.

Takk.

Re: Prepaid 3G kort fyrir frakkland?

Sent: Þri 12. Jan 2016 19:24
af Axel Jóhann

Re: Prepaid 3G kort fyrir frakkland?

Sent: Þri 09. Feb 2016 04:03
af Swooper
Nokkuð viss um að það er EKKI hægt að klippa stærri SIM kort niður í nano. Flagan sjálf er actually aðeins minni á nano-SIM heldur en micro-SIM.

Re: Prepaid 3G kort fyrir frakkland?

Sent: Þri 09. Feb 2016 04:53
af Hnykill
Virðist vera hægt að trimma þetta til jú.. en það þarf gera þetta almennilega.

http://www.everymac.com/systems/apple/i ... o-sim.html

A Mini or Micro SIM can be cut down to the Nano SIM size for use in the applicable iPad and iPhone models.

It is quite possible to cut a Mini SIM or Micro SIM down to the Nano SIM size with a sharp pair of scissors or a razor blade and there are templates designed for individuals interested in doing so. However, given the particularly tight tolerances around the contact area on the Nano SIM, it is not surprising that the Internet is littered with comments from people who ruined their SIM card in the process of attempting to cut it down by hand.

Re: Prepaid 3G kort fyrir frakkland?

Sent: Þri 09. Feb 2016 17:23
af Squinchy
Flagan sjálf er ekki nema 1x1,5mm að stærð og er staðsett í miðjunni, svo lengi sem pinnarnir komast að tengipunktum sem eru kopar fletirnir, trim at will án þess að gera þetta illa, fátt leiðinlegra en að festa sim kort í ipad og margir sem hafa þurft að setja tækið í útskipti ferli því kortið festi sleðann í tækinu.

Oft eru sölustaðir með Punch klippur sem gera þetta í réttri stærð þannig endilega kanna það líka

Re: Prepaid 3G kort fyrir frakkland?

Sent: Þri 09. Feb 2016 17:45
af hfwf
Lefrenchmobile sendir þér kort í 3 stærðum eins og þú færð í dag hjá öllum símafélögum, stórt, minna minnst :)