Síða 1 af 1
AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 16:15
af frappsi
(Setti þetta í þennan flokk þar sem ég er aðallega að spá í snjalltæki hér)
Hafið þið verið að skoða þessa útsölu sem verður á AliExpress þann 11.11? Einnig eru allskonar coupons í boði sem hægt er að nota þó hlutur sé ekki á útsölu.
Sé til dæmis einhverjar Windows og Dual boot Windows/Android spjaldtölvur þarna sem gæti verið vert að skoða, t.d. Teclast X98Pro og Cube I7, sem mér sýnist að einhverjir hérna hafi prófað og séu sáttir við. Ætli þetta séu góðir dílar?
http://sale.aliexpress.com/__pc/1111_cube.htmhttp://sale.aliexpress.com/__pc/1111_teclast.htmAllskonar powerbanks, t.d. Vinsic 20,000mAh með 2,1A og 1A outputs og fleiri stærðir
http://sale.aliexpress.com/__pc/1111_vinsic.htmÉg hef mikinn áhuga á að kaupa síma og þessi tilboð eru að ýta við mér. Xiaomi Redmi Note 2 (á tilboði) og Meizu M2 Note líta vel út.
http://sale.aliexpress.com/__pc/1111_redmi.htmhttp://www.aliexpress.com/item/Meizu-M2-Note-5-5-inch-1920X1080P-4G-FDD-LTE-Mobile-Phone-MTK6753-Octa-Core-2GB/32366362490.htmlSmá samanburður:
http://www.gsmarena.com/compare.php3?idPhone1=6992&idPhone2=7455Getur verið að það sé takmarkaður stuðningur við íslenskt 3G/4G í þessum símum. Ætli þetta séu bestu kaupin á $200+skattur og undir verðbilinu, eða er hægt að gera betri kaup á t.d. HTC eða Huawei símum?
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 17:24
af Tesli
Munið bara að það eru háir tollar á powerbanks, ég komst að því the hard way. Það endaði dýrara pantað að utan heldur en keypt hérna út í búð
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 17:42
af frappsi
Sýnist að það sé almennt 10% tollur á rafgeymum, en vegna fríverslunarsamnings við Kína myndi hann falla niður og einungis VSK standa eftir? Ætli það sé rangt skilið hjá mér?
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 18:02
af fantis
Ég borgaði bara vsk fyrir powerbank 20Ah frá banggood. fyrir einhverja 20 dollara og sáttur með hann hingað til.
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 19:18
af sopur
Hefur einhver reynslu af því að kaupa snjall síma af aliexpress ?
ég væri til í að heyra reynslusögur, því þessi tilboð eru alveg girnileg.
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 19:42
af audiophile
sopur skrifaði:Hefur einhver reynslu af því að kaupa snjall síma af aliexpress ?
ég væri til í að heyra reynslusögur, því þessi tilboð eru alveg girnileg.
Hef ekki reynslu af að kaupa af Ali en Xiaomi og Meizu eru stórir framleiðendur með almennt góða síma. Finnur review af flestum þeirra á Gsmarena og ættu að vera örugg kaup.
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 20:24
af gunnji
Hef heyrt af mörgum kaupa GSM síma af Ali og alltaf áfallalaust.
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 29. Okt 2015 21:35
af kizi86
audiophile skrifaði:sopur skrifaði:Hefur einhver reynslu af því að kaupa snjall síma af aliexpress ?
ég væri til í að heyra reynslusögur, því þessi tilboð eru alveg girnileg.
Hef ekki reynslu af að kaupa af Ali en Xiaomi og Meizu eru stórir framleiðendur með almennt góða síma. Finnur review af flestum þeirra á Gsmarena og ættu að vera örugg kaup.
Xiaomi gera geggjað góða síma, á sjálfur Xiaomi Mi Note Pro, 2GHz octacore, 4GB af LPDDR4 minni, 64GB storage 2560x1440p 5.7" skjár 3090mAh batterý, drullu fínn sími kominn hingað á klakann á ca 70þ krónur með vsk
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fös 30. Okt 2015 14:35
af vatr9
Þurfa menn ekki að gæta að því að símarnir séu með CE merkingu?
Á ekki tollurinn að endursenda símann annars.
Það er reyndar ekki alltaf auðvelt að sjá þessa vottun á Aliexpress.
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fös 30. Okt 2015 14:39
af Black
Spurning hvernig verður með Shipping á þessu,Oftast ef hlutir eru á útsölu á Ali þá er dýrt sendingargjald :/
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fös 30. Okt 2015 17:26
af GullMoli
Já ég og vinur minn splæstum báðir í svona Teclast spjaldtölvu. Þetta er virkilega flott tölva fyrir peninginn.
Windows megin er hún aðeins að throttla örgjörvann undir miklu álagi og rafhlöðu endingin er ekkert svakaleg. Hinsvegar er hægt að skrúfa niður í hinu og þessu + modda betri kælingu á örgjörvann eins og sumir hafa gert og þá er þetta súper. Annars keyrir þetta 4k video eins og ekkert sé (hægt að tengja við skjá/sjónvarp) og hægt að spila létta Windows leiki sömuleiðis ef út í það er farið.
Algjör snilld að hafa Windows 10 og Android 5.0 dualboot.
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 05. Nóv 2015 10:59
af mundivalur
Ég var að kaupa Xiaomi Redmi Note 2 og tollurinn vill ekki láta mig hafa hann því þeir sjá ekki CE merki
ég hélt að þessir betri Kína símar væru með CE !! Veit einhver eitthvað um það ?
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 05. Nóv 2015 12:19
af blitz
mundivalur skrifaði:Ég var að kaupa Xiaomi Redmi Note 2 og tollurinn vill ekki láta mig hafa hann því þeir sjá ekki CE merki
ég hélt að þessir betri Kína símar væru með CE !! Veit einhver eitthvað um það ?
Láttu tollinn bara senda þetta til baka og gerðu dispute á Ali, færð endurgreitt.
Pantaðu svo af t.d. Oppomart sem sendir með DHL
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 05. Nóv 2015 12:37
af mundivalur
ok takk ég ath. þetta
Re: AliExpress tilboðsdagur 11.11 - 100milljón vörur þám spjaldtölvur, símar, powerbanks, snjallúr
Sent: Fim 05. Nóv 2015 21:30
af Viggi
Fékk asus zenfone 2 frá ali með ce merkingu á pakkanum en ekki á símanum sjálfum :p ætti að vera á öllum kínasímum bara