Síða 1 af 1

Samsung galaxy S6 - Allar ljósmyndir horfnar.

Sent: Mán 05. Okt 2015 23:19
af DJOli
Sæl. Ég var að taka myndir með símanum mínum áðan í "interval mode", fór svo yfir þær fjórar sem síminn tók, og eyddi svo tveim, og "bakkaði" í myndavélina. Þá hurfu allar ljósmyndir úr símanum. Ég gáði, þær eru algjörlega horfnar.
1. What the hell?
2. Er einhver leið að komast hjá því að þetta gerist aftur?

*bætt við*
Síminn datt ekki í gólfið í millitíðinni, svo að sd kortið getur ekki hafa misst samband, nema að síminn sé þá gallaður og að það hafi gerst á meðan hann var í hendinni á mér.

Re: Samsung galaxy S6 - Allar ljósmyndir horfnar.

Sent: Þri 06. Okt 2015 01:27
af Danni V8
Horfnar úr My Files líka? Mjög skrítið. Ég hef notað þetta interval mode nokkrum sinnum en ekki lent í neinu veseni.

Annars þá er ekki sd kort í S6, þannig það ætti ekki að vera hægt að missa samband við neitt svoleiðis.

En annars hef ég notað OneDrive til að automatically synca allar myndir og myndbönd yfir wifi. Með S6 fylgja 100gb frí í 2 ár sem er mikið meira en nóg fyrir mig. Þetta bjargaði mér algjörlega þegar uppfærsla mistóks og festi símann í boot-loop þannig að ég þurfti að gera factory reset og eyða öllu sem var stored í símanum. Tapaði engum myndum þó þær hurfu allar úr símanum.