Síða 1 af 1

Vantar aðstoð við val

Sent: Mið 03. Jún 2015 19:54
af ColdIce
http://www.att.is/product/asus-f555la-dm835hh-fartolva

Eða

http://www.elko.is/elko/is/vorur/Fartol ... etail=true

Og af hverju?
Tölvan verður notuð sem skólavél og í facebook leiki.

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Mið 03. Jún 2015 20:08
af kizi86
ég persónulega myndi taka asus vélina, betri skjar (full HD vs ógeðsleg 1366x768 upplausn :pjuke ), 8 vs 6GB af vinnsluminni

hin vélin er reyndar með ssd drifi, en myndi þá bara kaupa mér 256GB ssd drif, og setja í og selja svo hinn diskinn hér á vaktinni :D

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Mið 03. Jún 2015 20:20
af ColdIce
Já hallast að því. Er Asus ekki líka frekar solid framleiðandi? Varðandi bilunartíðni þá helst

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Mið 03. Jún 2015 20:25
af rapport
6Gb minni WTF!

Asus vélin og biðja um að fá SSD með henni í stað HDD, Att bíður þér örugglega fínan díl í að gera þetta fyrir þig...

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Mið 03. Jún 2015 20:37
af ColdIce
http://tl.is/product/f555la-xo329h-i5-fartolva

Er þetta ekki alveg sami gaur fyrir utan skjáinn??

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Mið 03. Jún 2015 20:49
af kizi86
sýnist það, en treystu mér, þig langar frekar í tölvu með 1080p skjá heldur en 1366x768.. sérstaklega ef ætlar að nota vélina í námi..

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Fim 04. Jún 2015 10:56
af PhilipJ
Ég myndi frekar fá mér 13,3" vél heldur en 15,6" ef þú ert að burðast með hana í skóla :happy

Re: Vantar aðstoð við val

Sent: Fös 05. Jún 2015 15:32
af ColdIce
Ég tók Asus gæjann með FHD.

Mjög spræk og skemmtileg so far.

Takk fyrir allir!