Síða 1 af 1

Hvar er hægt að laga android

Sent: Fös 17. Apr 2015 13:49
af danniornsmarason
Sælir, er með einn DOOGEE D800 síma sem er með ónýtt hleðslu port og það er lóðað beint í "móðurborðið", er með annað svona tengi sem er á öðrum síma atm en var að hugsa hvort það væri einhver eða eitthvað fyrirtæki sem tæki að sér að lóða svona í síma, hvort sem það væri nýtt hleðslu port eða það sem er á öðrum síma hjá mér

Vantar hjálp! :happy

Re: Hvar er hægt að laga android

Sent: Fös 17. Apr 2015 14:10
af hfwf
unlock.is

Re: Hvar er hægt að laga android

Sent: Fös 17. Apr 2015 14:37
af danniornsmarason
hfwf skrifaði:unlock.is

6þus... að lóða 1 hlut sem ég er nú þegar með, myndi taka svona 5 min ](*,)

Re: Hvar er hægt að laga android

Sent: Fös 17. Apr 2015 20:28
af Oak
Afhverju gerirðu þetta þá ekki sjálfur?
Ef þú þekkir ekki neinn góðan með lóðbolta þá hugsa ég að þú finnir ekki neinn ódýrari. Ég myndi allavega ekki gera þetta fyrir einhvern útí bæ fyrir eitthvað mikið minna.

Re: Hvar er hægt að laga android

Sent: Lau 18. Apr 2015 08:01
af KermitTheFrog
Er þetta Micro USB? Ef svo er máttu prísa þig sælan að fá þetta gert fyrir 6 þúsund kall. Þarft góðar græjur og vanan mann, sérstaklega ef það þarf að rífa tengið af gömlu moðurborði.

Annars geturðu athugað með Örtækni.

Re: Hvar er hægt að laga android

Sent: Lau 18. Apr 2015 09:50
af AntiTrust
6þús er bara fantagott verð og lítið hægt að væla yfir því.