Síða 1 af 1

HP Pavilion zv5370us

Sent: Fös 26. Nóv 2004 13:40
af emmi
Hvernig líst mönnum á þessa?

Sent: Fös 26. Nóv 2004 14:19
af dabb
Hlunkur :?

Sent: Fös 26. Nóv 2004 14:20
af emmi
Jamm reyndar. :)

Sent: Fös 26. Nóv 2004 14:36
af MezzUp
Held að widescreen geti komi asnalega út í sumum leikjum......

Sent: Fös 26. Nóv 2004 14:43
af emmi
Það verður nú lítið spilað af leikjum í þessu. Aðallega www, email, msn, ritvinnsla og þetta venjulega. Það sem ég er aðallega að spá í þar sem þetta er AMD64, hvort hann hitni mikið og hvort hávaðinn í vélinni sé yfir venjulegum mörkum.

Sent: Fös 26. Nóv 2004 15:27
af Daz
En og aftur, hvað ætlarðu að nota þessa tölvu í? Hún er stór, þung og með litla batterísendingu (myndi ég halda). Ef þetta á ekki að vera leikjavél þá gætirðu allt eins skoðað Centrino Celeron tölvurnar sem eru að koma á markaðinn hérna heima núna. Kannski ekki mikið power í þeim, en batteríin endast vel, þær eru lágværar (þar sem það þarf ekki öfluga kælingu) og léttari. Fyrir utan að vera sæmilega ódýrar.

Sent: Fös 26. Nóv 2004 15:44
af emmi
Já, maður er alltaf að heyra að hitt og þetta sé ekki nógu gott. Eins og með þetta Centrino, einn félagi minn vill meina að hann sé ekki nógu góður. En eflaust nógu góður fyrir mig, þaes ritvinnsla og internet.

Sent: Fös 26. Nóv 2004 15:47
af Daz
emmi skrifaði:Já, maður er alltaf að heyra að hitt og þetta sé ekki nógu gott. Eins og með þetta Centrino, einn félagi minn vill meina að hann sé ekki nógu góður. En eflaust nógu góður fyrir mig, þaes ritvinnsla og internet.

Centrino örgjörvarnir (Baians og Dothan) eru kannski ekki jafn öflugir og nýju AMD64 eða Intel EE eða hvað þetta heitir allt saman, en ef þú vilt bara fara á netið og vinna aðra almenna tölvuvinnu þarftu ekki svo öflugan örgjörva. Nýju Dothan örgjörvarnir er meira en nógu góðir fyrir flest alla hafa eitthvað við fartölvu að gera, en þeir eru hannaðir með fartölvur í huga og eru því kaldari og taka minna rafmagn en venjulegir borðtölvuörgjörvar.

Sent: Fös 26. Nóv 2004 15:54
af emmi
Skilðig, þakka fyrir upplýsingarnar. :)