Síða 1 af 1
Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Þri 27. Jan 2015 21:29
af Moldvarpan
Núna er ég lítið sem ekkert inní spjaldtölvunum, en gamla settið er að íhuga að kaupa sér slíka.
Þau eru að velta fyrir sér að kaupa spjaldtölvu í ódýrari kantinum, eða í kringum 30.000kr.
Þessi tölva voru þau með í huga, en ég ákvað að skoða þetta aðeins fyrir þau fyrst.
http://www.heimkaup.is/Acer-Iconia-A1-830Er þetta nóg fyrir 60+ára foreldrana mína, eða hvað?
Endilega deilið ykkar skoðunum, myndi kunna að meta það
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Þri 27. Jan 2015 22:56
af Hrotti
Ég hef ekki prufað akkúrat þessa, en hef heldur ekki ennþá rekist á
ódýra android spjaldtölvu sem að mig hefur ekki langað að henda út um gluggann eftir smá notkun.
Fyrir nördana eru allskonar hlutir í boði, fyrir alla aðra er ipad málið.
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Vinsaelt/Apple_iPad_mini_16GB_WiFi_Hvit.ecp?detail=true 44þús.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Þri 27. Jan 2015 23:34
af bigggan
ódyru spjaldtölvurnar með Android verða fljótt leiðinlegar hef ég heyrt. Mundi frekar reyna að finna tölvu með Windows á eða seta meiri pening í það.
Edit: Annars fann ég Samsung Tab 4 herna á 34k:
http://emobi.is/index.php?route=product ... uct_id=1607 " istaðinn fyrir 8 þó.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Þri 27. Jan 2015 23:38
af Gislinn
Systir mín er með
svona spjaldtölvu, ekki mest spennandi speccar en hún virkar þrusu fint. Ég myndi mæla með að þú myndir kíkja á Lenovo spjaldtölvurnar, það er hægt að fá líka aðeins dýrari týpur (yoga) sem eru aðeins meira spennandi (þú getur líka skoðað Lenovo tölvurnar í Elko, þær gætu verið ódýrari þar).
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 08:32
af audiophile
Eins mikill Android maður og ég er, þá er upplifun því miður frekar slök á ódýrari Android spjaldtölvum miðað við t.d. ódýrasta Ipad Mini. Ég myndi mæla með að eyða aðeins meira í þetta og kaupa Ipad.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 09:15
af thehulk
Ég er með Surface Pro 3, ég myndi samt mæla hiklaust með ipad. Það hefur enginn náð Apple með spjaldtölvurnar
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 13:18
af Tesy
Ég myndi aldrei kaupa ódýr Android spjaldtölvur, munt ekki getað notað þær eftir mánuði!
Ég myndi reyna að finna eitthvað notað fyrir 30 þúsund. Myndi hiklaust kaupa iPad fyrir eldra fólkið.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 13:23
af thehulk
Tesy skrifaði:Ég myndi aldrei kaupa ódýr Android spjaldtölvur, munt ekki getað notað þær eftir mánuði!
Ég myndi reyna að finna eitthvað notað fyrir 30 þúsund. Myndi hiklaust kaupa iPad fyrir eldra fólkið.
Eldra fólk? Hjá flestum professional stöðum þá er ipad eina vitið útaf unprofessional unstability í Android.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 13:47
af Moldvarpan
Ég þakka ykkur öllum fyrir að deila ykkar skoðunum
Hefur hjálpað mér að mynda mér skoðun í hvaða átt gamla settið ætti að fara.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 14:02
af Hvati
Ég hef prófað þessa spjaldtölvu og hún er alls ekki slæm, nokkuð responsive og svona, fínn skjárinn líka þó upplausnin sé ekkert há. Hins vegar fyrir eldra fólk þá er Android almennt verra en iOS svo iPad myndi sennilega vera meira við hæfi.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 21:06
af Tesy
thehulk skrifaði:Tesy skrifaði:Ég myndi aldrei kaupa ódýr Android spjaldtölvur, munt ekki getað notað þær eftir mánuði!
Ég myndi reyna að finna eitthvað notað fyrir 30 þúsund. Myndi hiklaust kaupa iPad fyrir eldra fólkið.
Eldra fólk? Hjá flestum professional stöðum þá er ipad eina vitið útaf unprofessional unstability í Android.
Þú ert aaalveg að misskilja... Hann er að spurja fyrir 60+ára foreldra sína og þess vegna sagði ég eldra fólk. Ég er sjálfur að nota iPad og er ekkert að mæla á móti þeim.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Mið 28. Jan 2015 21:48
af HalistaX
Eigum eina Samsung Galaxy Tab 2 og eina 3 á heimilinu. 14 ára systir mín er með 2 en fimmtug móðir mín er með 3. Ef Galaxy Tab 4 er eitthvað á við þessar tvær mæli ég sterklega með henni.
ATH: Báðar 7", er aðeins að tala um 7".
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Þri 24. Feb 2015 11:00
af fedora1
Afsakið að ég steli þræðinum, en hvaða high end android spjaldtölvu mælið þið með ?
7" +, verður notuð í youtube, neti, leiki og spila bíómyndir. Er með 2nd gen Ipad og þoli ekki hvað það er leiðinlegt að setja myndir inn á kvikindið (en elska hvað rafhlaðan endist vel).
Er að spá í að versla spjaldtölvu í UK í sumar sem mun taka við ipad-inum. Þannig að ef þið eruð með ráð varðandi hvar maður kaupir raftæki í UK(London) þá má það fljóta með.
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Þri 24. Feb 2015 14:00
af Tesy
fedora1 skrifaði:Afsakið að ég steli þræðinum, en hvaða high end android spjaldtölvu mælið þið með ?
7" +, verður notuð í youtube, neti, leiki og spila bíómyndir. Er með 2nd gen Ipad og þoli ekki hvað það er leiðinlegt að setja myndir inn á kvikindið (en elska hvað rafhlaðan endist vel).
Er að spá í að versla spjaldtölvu í UK í sumar sem mun taka við ipad-inum. Þannig að ef þið eruð með ráð varðandi hvar maður kaupir raftæki í UK(London) þá má það fljóta með.
Ég myndi yfirleitt mæla með Nexus 7/9 en þar sem þú villt geta sett fullt af bíómyndum inn á þá væri best að finna sér tæki sem les micro SD kort.
Þú getur skoðað þennan (Samsung Galaxy Tab S 8.4)
http://www.gsmarena.com/samsung_galaxy_ ... 4-6439.php
Re: Vantar ráðgjöf varðandi spjaldtölvur
Sent: Fim 26. Feb 2015 03:48
af Swooper
Ég mæli allaveganna ekki með ASUS Transformer Pad TF701T. Keypti svoleiðis fyrir rúmu ári og hef ekki góða reynslu af honum - þarf að hlaða hann annan hvern dag þó ég noti hann ekkert og sé með slökkt á wifiinu (fyrstu kynslóðar iPadinn minn entist í tvær vikur af daglegri notkun), og ASUS skinnið á Android er hræðilegt, sérstaklega eftir að það fékk KitKat uppfærsluna.