Síða 1 af 1
Myndavélakaup í USA
Sent: Fös 26. Des 2014 14:54
af iceair217
Sælir
Ég er bráðum að fara til Bandaríkjanna og langar mig að nýta tækifærið og kaupa þar góða myndavél.
Budget allt að 600 USD.
Þessi myndavél er aðallega til að taka myndir af kr0kkunum og vil ég helst fá handhæga myndavél sem maður nennir að taka með sér sem tekur góðar myndir við erfið birtuskilyrði.
HVaða myndavél mæla Vaktar með?
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Fös 26. Des 2014 15:17
af Bjosep
Það fer eftir því hvað handhæg merkir í þínum huga?
Þú getur fengið ódýrar DSLR vélar fyrir minna en 600 dollara. Þessar vélar eru góðar í erfiðum birtuskilyrðum og þú fangar augnablikin þegar þau gerast en ekki 3 sek seinna, en hvort þér finnist þær vera handhægar er annað mál.
Hér er t.d. Nikon 3200
http://www.bhphotovideo.com/c/product/1 ... _with.htmlEða þú getur farið í vélar eins og Canon G-? eða Panasonic Lumix LX eða GX vélarnar
http://www.dpreview.com/products/panaso ... nic_dmcgm1http://www.dpreview.com/products/panaso ... nic_dmcgx7http://www.dpreview.com/products/canon/ ... /canon_g16Eins geturðu gert betri kaup með því að kaupa eldri módel. Myndavélar úreldast ekki með sama hraða og tölvuvörur.
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Fös 26. Des 2014 15:30
af iceair217
Sæll, takk fyrir svarið. Handhæg merkir í mínum huga vél sem passar í vasa. Það væri þó ekki verra ef þetta væri DSLR vél með útskiptanlegri linsu. Ég hræðist að maður nennir aldrei að taka hana með og notist frekar við símann sinn.
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Fös 26. Des 2014 16:03
af lollipop0
Hvað með Sony a6000
bhphotovideo.com/c/product/1029860-REG/sony_ilce6000l_b_alpha_a6000_mirrorless_digital.html
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Fös 26. Des 2014 22:42
af Bjosep
Þú getur alltaf rennt í gegnum myndavélasafnið á
www.dpreview.com og eins spurt fólkið á
www.ljosmyndakeppni.is ef þú ert ekki búinn að því.
Hér er smá samantekt frá dpreview um gæða-vasavélar.
http://www.dpreview.com/articles/993518 ... 13-roundupHér er samantekt um vélar sem eru stærri en vasavélar en ekki með útskiptanlegri linsu sýnist mér.
http://www.dpreview.com/articles/740073 ... lated-newsÞað er síðan alltaf spurningin hvað þú vilt skoða stórar vélar. Næsti valkostur neðan við SLR vélar eru líklegast micro 4:3 vélarnar sem eru á stærð við vasavélar plús linsu.
http://www.dpreview.com/articles/490181 ... lated-news
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Lau 27. Des 2014 00:25
af sverrirgu
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Lau 27. Des 2014 00:27
af SolviKarlsson
4/3 myndavélarnar frá Panasonic eru víst snilld, af því sem ég hef heyrt. Þú gætir fengið þér 18mm linsu og munt ekki sjá eftir því.
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Lau 27. Des 2014 00:54
af Viktor
Djöfull lúkka þessar Lumix vélar nettar
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Lau 27. Des 2014 20:33
af audiophile
SolviKarlsson skrifaði:4/3 myndavélarnar frá Panasonic eru víst snilld, af því sem ég hef heyrt. Þú gætir fengið þér 18mm linsu og munt ekki sjá eftir því.
Ég á ennþá gömlu Lumix GF1 með 20mm f/1.7 linsu og hún er æðisleg. Panasonic gera mjög góðar myndavélar.
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Lau 27. Des 2014 20:46
af blitz
Verslaði Sony Nex 6 um daginn, mjög sáttur.
Re: Myndavélakaup í USA
Sent: Lau 27. Des 2014 22:37
af dori
Tékkaðu á
Canon s120. Er nett og tekur nokkuð góðar myndir (ég hef reyndar ekki reynslu af því sem hinir hérna eru að pósta þannig að ég veit ekki hvernig hún er í þeim samanburði). Ég er allavega að spá í að kaupa mér þessa fljótlega.