Síða 1 af 1

Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 11:14
af zazou
Er að skoða þessa græju. Eru einhverjir hér sem hafa reynslu af því að nota Surface Pro 3?

Kostir / gallar etc við 8GB i7 gaurinn.
Hef verið með hefðbundinn lappa sem er svipaður af spekkum í ca ár og kann mjög vel við. Hvernig er form faktorinn að koma út, þeas 'spjald' í stað lappa.

Mynd

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 14:28
af Hvati
Var að kaupa i5 128 GB, gríðarlega flott tölva. Mér finnst 4 GB vinnsluminni takmarkandi en tými varla 60þ+ fyrir 8GB og 256GB disk. Mitt eintak er með smá backlight bleed og einum dauðum pixli og mun líklega skipta henni út eftir jól.
Helsti kosturinn fyrir mér er penninn, mun nota hann mikið í skólanum.
Hef auðvitað ekki mikla reynslu af henni þar sem ég er bara búinn að vera með hana í 2 daga en þetta eru mínar hugsanir so-far:
Type coverið er fínt að skrifa á, ekki endilega heila ritgerð en nóg í venjulega notkun. Penninn er snilld, það er hægt að stilla pressure curve-ið með Surface Hub appinu, þægilegt að hafa takka á hliðinni til að geta strokað út o.fl. Búinn að prófa þetta með OneNote Ink to Math og Text og það kemur vel út. Er lítillega búinn að prófa TouchMe, app sem leyfir þér að setja upp touch gestures til að gera ýmsa hluti, keyboard shortcuts o.fl. og það er mjög þægilegt ef maður er ekki með lyklaborðið tengt. Ég get alveg notað tölvuna á löppunum sitjandi, nær öll review á henni segja það vera ömurlega upplifun en mér finnst það bara fínt.
Tölvan verður svoldið heit með smá notkun, installa einhverju eða spila eitthvað, er líka búinn að sjá að i5 týpan throttlar core clock hraðann svoldið eftir smá notkun og viftan getur orðið hávær. i7 týpan throttlar víst minna samkvæmt internetinu.

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 14:41
af Viktor
Á svipuðum nótum, hefurðu skoðað þessa pælingu frá Acer? Finnst þetta líta ágætlega út, hef þó enga reynslu af þessum græjum.
Sexy að vera með IPS skjá.

http://tolvutek.is/vorur/spjaldtolvur_windows-velar

Mynd

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 14:45
af Hvati
Sallarólegur skrifaði:Á svipuðum nótum, hefurðu skoðað þessa pælingu frá Acer? Finnst þetta líta ágætlega út, hef þó enga reynslu af þessum græjum.
Sexy að vera með IPS skjá.

http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-swi ... office-365

Mynd

10" tölvan er með ömurlegan skjá IMO. 11.6" er samt fín: http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-swi ... b-harddisk
Edit: Finnst hún líka svo bulky m.v. margt annað á markaðnum, skjábezellinn er huge.

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 17:20
af zazou
Hvati skrifaði:Var að kaupa i5 128 GB, gríðarlega flott tölva. Mér finnst 4 GB vinnsluminni takmarkandi en tými varla 60þ+ fyrir 8GB og 256GB disk. Mitt eintak er með smá backlight bleed og einum dauðum pixli og mun líklega skipta henni út eftir jól.
..

Endilega póstaðu hvernig hún kemur til með að reynast.

Sýnist að Surface Pro sé eina græjan á markaðnum sem sé fær um að keyra td Visual Studio og SQL Server skammlaust og jafnvel eins og eina sýndarvél eða svo mv spekka.

**edit***
Fylgir MS Office með (og ef já, hvaða forrit)?

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 17:24
af hjalti8
Ég mæli með því að bíða eftir að broadwell detti inn í þessar vélar(pro 4?). Anandtech tala um að broadwell með 4.5w TDP performi nánast jafn vel og haswell með 15w TDP

Þar sem það eru núþegar komnar einhverjar vélar með broadwell örgjörvum frá öðrum framleiðendum þá finnst mér líklegt að það sé mjög stutt í Surface Pro 4, vonandi að hún komi fljótlega eftir áramót..

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 24. Des 2014 17:29
af Hvati
zazou skrifaði:
Hvati skrifaði:Var að kaupa i5 128 GB, gríðarlega flott tölva. Mér finnst 4 GB vinnsluminni takmarkandi en tými varla 60þ+ fyrir 8GB og 256GB disk. Mitt eintak er með smá backlight bleed og einum dauðum pixli og mun líklega skipta henni út eftir jól.
..

Endilega póstaðu hvernig hún kemur til með að reynast.

Sýnist að Surface Pro sé eina græjan á markaðnum sem sé fær um að keyra td Visual Studio og SQL Server skammlaust og jafnvel eins og eina sýndarvél eða svo mv spekka.

**edit***
Fylgir MS Office með (og ef já, hvaða forrit)?

Office fylgir ekki með. Bara Onenote sem er hvort eð er frítt.

Edit:
hjalti8 skrifaði:Ég mæli með því að bíða eftir að broadwell detti inn í þessar vélar(pro 4?). Anandtech tala um að broadwell með 4.5w TDP performi nánast jafn vel og haswell með 15w TDP

Þar sem það eru núþegar komnar einhverjar vélar með broadwell örgjörvum frá öðrum framleiðendum þá finnst mér líklegt að það sé mjög stutt í Surface Pro 4, vonandi að hún komi fljótlega eftir áramót..

Lenovo Yoga Pro 3 er með þessum Broadwell örgjörva og hann er sannarlega ekki að performa nálægt jafn vel og Haswell en það er talað um að það sé v/ viftuprófíla o.fl. frá Lenovo. En jújú, Surface Pro 4 verður örugglega með betri Broadwell örgjörva með töluvert lægra TDP en mér finnst ólíklegt að þeir gefi hana út rétt eftir áramót, munu frekar bíða þar til þeir gefa út Windows 10 sem á að koma í haust 2015.

Re: Surface Pro 3 (i7)

Sent: Mið 31. Des 2014 16:48
af ljónið
Sælir. Keypti mér Surface Pro 3 i5 með 256 Gb disk og 8 Gb minni.
Skjárinn er mjög flottur og standurinn virkar bæði vel og virðist vera vel smíðaður og traustur. Keypti líka Arc Touch Mouse og lykklaborð.
Office fylgir ekki með en ég keypti Office 365 (sem virkar á 5 tölvur og 10 Terabyta Cloud).
Það besta var að ég fékk 20% stúdenta afslátt á allt dótið í MS búðinni í Boston.

Hef ekki notað hana nógu mikið en allt hefur virkar mjög vel. Er svona en að venjast snertiskjá tilfinningunni. Lykklaborðið er upplýst og er nokkuð gott en ekki jafngott og venjulegt borð.
Grönn og létt. WI-Fi keyrir á 870 Mbps. Hef ekki keyrt nein benchmark