Síða 1 af 1

iPhone viðgerðir

Sent: Þri 02. Des 2014 13:26
af enypha
Mælið þið með einhverjum sérstökum aðila þegar kemur að iPhone viðgerðum? Ég er með iPhone 5S sem konan mín fékk gefins. Hann virkar 100% en glerið var brotið og skipt um það áður en við fengum hann í hendurnar. Eftir standa tveir blettir, annar svona 0.5cm í þvermál, gulur að mestu og hinn mun minni og blárri. Þessi guli litur fer næstum alveg ef réttur þrýstingur er settur á símann, en hann er örlítið boginn að aftan síminn. Langar að vita hvort það væri mögulega hægt að rétta hann örlítið við eða skoða þetta allavega án þess að greiða annað nýrað fyrir.

Re: iPhone viðgerðir

Sent: Þri 02. Des 2014 16:42
af marijuana
Gætir prufað að tala við iSiminn um þetta. Veit að þeir sjá um viðgerðir.

Re: iPhone viðgerðir

Sent: Þri 02. Des 2014 19:04
af Tiger
iSíminn brautarholti.

Re: iPhone viðgerðir

Sent: Mán 08. Des 2014 02:54
af enypha
Takk kærlega. Ég fer með símann þangað og sé hvað þeir segja.