Síða 1 af 1

Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 18:44
af sopur
Sælir,

Ég er með Samsung s4 með brotnum skjá, síminn er 18mánaða og virkar eins og nýr.

Hafiði hugmynd um hvað símar í svona ástandi eru að fara á nú til dags ?

takk fyrir :)

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 20:07
af KermitTheFrog
Brotið gler eða brotinn skjár? Virkar digitizerinn?

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 20:10
af sopur
brotið gler, annars virkar síminn mjög vel :)

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:34
af snaeji
Heilir eru þeir að fara á í kringum 40 þúsund

Bætt við:

Ég tjékkaði og ég á pantaði víst 2 gler á svona síma og eru þau á leiðinni til landsins á einhverja nokkra dollara.
Minn er líka brotinn en digitiserinn á honum er í lagi svo ég ætla reyna skipta um glerið án þess að eyðileggja digitiserinn og vona að allt gangi.

Ef mér tekst í fyrstu tilraun og hann virkar með fyrra glerinu þá getur þú fengið seinna glerið.

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:37
af sopur
þannig að 25þúsund væri raunhæft ?

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:54
af snaeji
Breytti svarinu mínu hér fyrir ofan þig frekar en að svara tvisvar í röð svo þú vilt líklegast lesa það aftur.

Miðað við að skjárinn er brotinn og 50/50 hvort þurfi dugi að skipta um glerið eða kaupa nýjann 200$ skjá myndi ég segji raunhæft í kringum þá upphæð.

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 23:01
af sopur
snaeji skrifaði:Ef mér tekst í fyrstu tilraun og hann virkar með fyrra glerinu þá getur þú fengið seinna glerið.


Flott að heyra, endilega láttu mig vita.

Re: Samsung s4 - brotinn skjár.

Sent: Sun 30. Nóv 2014 23:18
af snaeji
Já sendu mér skilaboð eftir 2 vikur þá ætti ég að vera búinn að þessu!