Síða 1 af 2

Ráð um fartölvukaup

Sent: Sun 14. Nóv 2004 22:03
af Blackened
Jæja þá er komið að því að gamli maðurinn ætlar að fá sér fartölvu, og ég hef verið að skoða netverslanir eins og start.is og tölvulistann og computer.is
og ég rakst á Mitac MiNote 8089 vél á start.is

Þessa vél hérna nánartiltekið --> http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=758

Ég var að velta því fyrir mér hvað ykkur finnst um þessa vél.,
hvort að hann ætti að kaupa hana og hvort að hann er að fá eitthvað fyrir peninginn.

Og er eitthvað varið í Mitac vélar? Batterýs-ending og annað.
ég er voðalega lítið inní svona fartölvu málum.

btw. þetta verður fyrirtækja tölva..þannig að það verður enginn gríðarleg vinnsla þannig séð...

Var bara svona að velta þessu fyrir mér.. Endilega komið með ábendingar ef að þið sjáið betri vélar á svipaðan pening og líka ef að það eru einhverjir stórir gallar á þessari vél.

Sent: Sun 14. Nóv 2004 22:19
af goldfinger
eg get nú voða litið sett út á þessa vél en ég hef heyrt sögur af þvi að Mitac fartölvur eiga það til að vera hágværar og þar sem þetta á að vera skrifstofutölva þá vill hann væntanlega hafa hana frekar lágværa ?

Sent: Sun 14. Nóv 2004 22:23
af MezzUp
sagt það áður og segi það enn, kaupa þekkt og reynd merki þegar kemur að fartölvum, IBM/HP/Dell

Sent: Sun 14. Nóv 2004 22:34
af Blackened
Hvernig tölvu myndir þú þá mæla með MezzUp?
fyrir svipaða vél á svipaðan pening

Sent: Sun 14. Nóv 2004 23:28
af MezzUp
Blackened skrifaði:Hvernig tölvu myndir þú þá mæla með MezzUp?
fyrir svipaða vél á svipaðan pening

Færð lægri spekka/performance fyrir sama pening ef að þú kaupir þekkt merki, það er nokkuð öruggt. IBM vél með svipaða spekka myndi kosta mun meira.
En þar sem að þetta er skrifstofuvél leyfi ég mér að segja að spekkar skipti ekki svo miklu máli, frekar merki sem að endist og endist, og maður getur treyst á fagmannlega þjónustu ef að hún klikkar.

Þó finnst mér ég verða að taka fram að ég hef aldrei á ævi minni keypt fartölvu, og hef reyndar tiltölulega lítið notað fartölvur m.v. borðtölur. Álit mitt er byggt á almennri tölvukunnáttu og því sem að ég hef skoðað á vefnum.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 01:29
af gumol
Það sem skiptir meira máli á fartölvum heldur en það sem er hægt að sjá í speccunum að mínu mati:

    1. "Skarpur" skjár með mikilli upplausn (1400x1040)
    2. Að hún sé hljóðlát (skiptir MJÖG mikklu máli)
    3. Hönnunin á músinni og lyklaborðinu ( td. að það vanti ekki "<" og ">" takkann og að táknin séu "brennd" inn í lyklaborðið)
    4. Raunveruleg rafhlöðuending (tölurnar frá framleiðendum eru bara rugl)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 08:54
af gnarr
mér þykir það frekar vera svona á fartölvum:

1. góður skjár
2. góður skjár
3. góður skjár
4. góð batterísending
5. hljóðlát
6. allt hitt.


*edit* bætti inn fyirr gumol */edit*

Sent: Mán 15. Nóv 2004 09:49
af gumol
Vantar hljóðlát í listann þinn, það er mjög mikilvægur hluti (eftir að hafa verið í bekk me mönnum sem hafa ekki spáð í því:()

Sent: Mán 15. Nóv 2004 14:24
af ponzer
Þessi skjástýring er pottþétt eitthvað noname drasl !

Sent: Mán 15. Nóv 2004 14:39
af gnarr
kanski er hann ekki að leita að fartölvu í tölvuleiki.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 14:55
af djjason
gumol skrifaði:Það sem skiptir meira máli á fartölvum heldur en það sem er hægt að sjá í speccunum að mínu mati:

    1. "Skarpur" skjár með mikilli upplausn (1400x1040)
    2. Að hún sé hljóðlát (skiptir MJÖG mikklu máli)
    3. Hönnunin á músinni og lyklaborðinu ( td. að það vanti ekki "<" og ">" takkann og að táknin séu "brennd" inn í lyklaborðið)
    4. Raunveruleg rafhlöðuending (tölurnar frá framleiðendum eru bara rugl)


Sammála 100%, það er ekki hægt að undirstrika það nógu vel hvað skjárinn skiptir miklu máli.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 15:16
af gumol
gnarr skrifaði:5. hljóðlát
...
*edit* bætti inn fyirr gumol */edit*
:D

Sent: Mán 15. Nóv 2004 15:19
af hahallur
Hvað er þetta með ykkur og hljóðlátar velar.
Finnast hágvirkar fartölvu með centerino öra.
:catgotmyballs

Sent: Mán 15. Nóv 2004 15:22
af gumol
Það er "háværar" ekki "hágvirkar"

Ekki verkfallsbrot þarsem kennarar eru ekki í verkfalli ;)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 15:42
af gnarr
hann segir líka "hæværar" í staðin fyrir "hægvirkar"

jú.. kennararnir héldu áfram í verkfalli, en þeir máttu það ekki.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 17:48
af MezzUp
ponzer skrifaði:Þessi skjástýring er pottþétt eitthvað noname drasl !

Jújú, maður er nú ekkert að búast við miklu af fartölvum. Held að það sé best að láta það bara vera að reyna eitthvað að keyra þunga tölvuleiki nema að maður spreði slatta af pening í alvöru tölvu


og já, hahallur, þetta er í þriðja sinn sem að þú ert leiðréttur útaf ,,hágvirkar", farðu nú að taka sönsum drengur :evil:

Sent: Mán 15. Nóv 2004 18:45
af Birkir
ponzer skrifaði:Þessi skjástýring er pottþétt eitthvað noname drasl !

Ég þori samt að veðja að þetta sé Intel Extreme skjástýring sem er alls ekki noname þó svo að hún verði seint talin sú besta :)

Sent: Mán 15. Nóv 2004 19:01
af Daz
Frekar upplýsingar um þessa tölvu má finna á http://www.hugver.is/MiNote8089.htm , eins og reyndar allar Mitec tölvurnar, hugver er með bestu upplýsingarnar um þær.

Ég mæli líka með því að þú takir frekar þekkt merki ef þú ætlar tölvuna í skrifstofuvinnslu, færð ágætar IBM tölvur fyrir svipaðan pening.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 20:37
af gumol
Dell eru líka fínar

Sent: Mán 15. Nóv 2004 23:07
af Lazylue
Ef ég væri að fara að kaupa mér skrifstofuvél þá myndi ég taka Hp. Hef vonda reynslu af Dell og IBM, og þá sérstaklega Dell. Getur alveg verið að ég sé sá eini hérna sem hef lent í veseni með þessi merki.

En eitt sem ég hef verið að spá í er afhverju eru til dæmis Dell svona dýrar á Íslandi. Í öðrum löndum eru þetta með ódýrari laptop-um sem maður getur fengið. Er maður að borga svona rosalega fyrir auka ár í ábyrgð og þjónustu eða er bara verið að okra svona rosalega á manni.

Sent: Mán 15. Nóv 2004 23:39
af MezzUp
Lazylue skrifaði:Hef vonda reynslu af Dell og IBM, og þá sérstaklega Dell. Getur alveg verið að ég sé sá eini hérna sem hef lent í veseni með þessi merki.

Hmm, endilega segðu meira frá þessu. *forvitinn*
Getur stofnað nýjan þráð(og menn halda sig á sanngjörnu nótnum :twisted:)

Sent: Þri 16. Nóv 2004 00:54
af Lazylue
úff þá er að fara að telja upp:)
Hefði svosem getað tekið það fram að ég hef bara átt mitac og compac vélar, en hvorki IBM né Dell. En hef mikið verið í kring um þessar vélar og oft verið látinn laga þær eða setja upp stýrikerfi og þessháttar. Þar af leiðandi er ég ekki 100% áf hvaða týpur þetta voru. Og kemur semsagt mín reynsla af þrem dell vélum og einni IBM.

Ein af þessum Dell stóð sig og stendur sig mjög vel í dag og hef ég ekkert um hana að setja en hún er rúmlega 3gja ára.

Önnur var í eigu frænda minns, mánuði eftir að hún var keypt fór hún að gefa frá sér skrítin hljóð úr harða disknum og sem síðan hrundi með öllu því sem því fylgir. Hann fór og fékk nýjan disk og ekkert mál, tók reyndar nokkuð langan tíma að fá vélina til baka. síðan frétti ég seinna af því að hann hefði þurft að leggja lappann aftur inn útaf biluði geisladrifi(sem var og er gríðarlega hávært). Og núna nýlega þegar ég var í lappanum tók ég eftir því að lyklaborði var orðið frekar lélegt, maður vélritaði á það og alltaf gerðist það að vissir stafir komu ekki alltaf fram.

Vinur minn á þriðja lappann og var hann keyptur nýverið á 250.000kr og það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég prófaði hana var hversu óþægilegt lyklaborðið er(er reyndar mjög mismunandi hvað fólki finnst).
Menn sjá kannski í undirskriftini að ég er með mitac vél, ég get fullyrt það að það heyrist meira í þessari dell vél en minni mitac, sem ég skal alveg viðurkenna að heyrist stundum smá í þó það sé ekki mikið, nota hana í skólann. Getur kannski alveg verið að hann sé með eitthvað lélegt eintak og geti látið laga þetta.

Man ekki meira um Dell, verð bara að segja að ég hef ekki góða reynslu af þessu merki. Og ef einhver spyr mig hvort hann eigi að kaupa sér Dell þá er svar mitt nei.

Og btw þetta er mín skoðun útfrá minni reynslu. Þætti gaman að sjá hvort einhver viti um tölur yfir bilanatíðni hjá þessm helstu merkjum.

http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... ED600%2306

Edit Á lappa tvö hjá mér eru lamirnar líka orðnar lélegar þær ná valla að halda skjánum uppi ef þú ýttir laust á hann þá dettur hann alveg niður og þar að auki ískrar í lömunum(reyndar mjög lágt)

Sent: Þri 16. Nóv 2004 09:24
af mbh
Var að kaupa þessa alger snilld!! Er reyndar ekki nein leikjavél, en þokkalega öflugur vinnuhestur.

IBM Thinkpad R51
Original description: P M 1.7GHz, 512MB RAM, 40GB 4200rpm HDD, 15 SXGA+(1400x1050) TFT LCD, 32MB ATI Radeon 9000, 24x24x24x/8x CD-RW/DVD, Intel 802.11b/g wireless(MPCI), Modem(CDC), 1Gb Ethernet(LOM), UltraNav, Secure Chip, IEEE 1394, 6 cell Li-Ion battery, WinXP Pro

hefði mátt vera stærra skjákort, en þetta dugar. Battery er svona 3. til 4. tíma ending, fer eftir notkun. Mín skoðun er sú að menn eigi að fá sér merki, þótt maður þurfi að eyða aðeins fleirri þúsundköllum í það.

Sent: Fim 18. Nóv 2004 16:20
af Daz
mbh skrifaði:Var að kaupa þessa alger snilld!! Er reyndar ekki nein leikjavél, en þokkalega öflugur vinnuhestur.

IBM Thinkpad R51
Original description: P M 1.7GHz, 512MB RAM, 40GB 4200rpm HDD, 15 SXGA+(1400x1050) TFT LCD, 32MB ATI Radeon 9000, 24x24x24x/8x CD-RW/DVD, Intel 802.11b/g wireless(MPCI), Modem(CDC), 1Gb Ethernet(LOM), UltraNav, Secure Chip, IEEE 1394, 6 cell Li-Ion battery, WinXP Pro

hefði mátt vera stærra skjákort, en þetta dugar. Battery er svona 3. til 4. tíma ending, fer eftir notkun. Mín skoðun er sú að menn eigi að fá sér merki, þótt maður þurfi að eyða aðeins fleirri þúsundköllum í það.


Ég verð að spyrja þig hvað þú ætlar að nota tölvuna í, því ef þetta er ekki leikjatölva þá er ég mjög forvitinn að vita hvað þú ætlar að nota örgjörvann í :)

Sent: Fim 18. Nóv 2004 16:44
af gnarr
Daz skrifaði:
mbh skrifaði:Var að kaupa þessa alger snilld!! Er reyndar ekki nein leikjavél, en þokkalega öflugur vinnuhestur.

IBM Thinkpad R51
Original description: P M 1.7GHz, 512MB RAM, 40GB 4200rpm HDD, 15 SXGA+(1400x1050) TFT LCD, 32MB ATI Radeon 9000, 24x24x24x/8x CD-RW/DVD, Intel 802.11b/g wireless(MPCI), Modem(CDC), 1Gb Ethernet(LOM), UltraNav, Secure Chip, IEEE 1394, 6 cell Li-Ion battery, WinXP Pro

hefði mátt vera stærra skjákort, en þetta dugar. Battery er svona 3. til 4. tíma ending, fer eftir notkun. Mín skoðun er sú að menn eigi að fá sér merki, þótt maður þurfi að eyða aðeins fleirri þúsundköllum í það.


Ég verð að spyrja þig hvað þú ætlar að nota tölvuna í, því ef þetta er ekki leikjatölva þá er ég mjög forvitinn að vita hvað þú ætlar að nota örgjörvann í :)