Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf jonsig » Sun 21. Sep 2014 14:34

Ég er ekki að skilja þetta, fólk er að bíða í tugi klukkutíma til að kaupa síma . Svo þegar búðin opnar þá eru allir klappandi og gólandi ?! Þetta minnir óneitanlega á einhvern viðburð hjá Herbalife og öðrum álíka sértrúarsöfnuðum . Amk. er ég alveg gáttaður .

Mynd

Mynd

Mynd

http://www.dailymail.co.uk/sciencetech/article-2762212/The-wait-Apple-fans-world-finally-hands-iPhone-6-end-sold-TRIPLE-price-China.html

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7403
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1123
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf rapport » Sun 21. Sep 2014 15:24

Definition of 'Brand Equity'

The value premium that a company realizes from a product with a recognizable name as compared to its generic equivalent. Companies can create brand equity for their products by making them memorable, easily recognizable and superior in quality and reliability. Mass marketing campaigns can also help to create brand equity. If consumers are willing to pay more for a generic product than for a branded one, however, the brand is said to have negative brand equity. This might happen if a company had a major product recall or caused a widely publicized environmental disaster.

s.s. Apple er búið lyfta grettistaki í markaðssetningu og í dag er raunin sú að um leið og "Apple" merkið er sett á "generic" hlut eða annað merki sbr. Dr. Dre Beats heyrnatólin, þá skapar það meira virði í augum neytenda.

Þetta aukan virði getur verið byggt á ótal þáttum, efnislegum, ímynd, hönnun, þjónustu og með tíma þá hugsanlega trausti á að hlutirnir breytist ekki.

Í raun þá þori ég ekki að fullyrða um Apple en samt, þá virðist Apple vera eitt íhaldsamasta brand í tæknigeiranum. Það endurspeglast í því að þeir bjóða ekki upp á neinar svakalegar tækninýjungar sbr. að iPhone 6 er eins og 2012 Android.

Munurinn er kannski að þeir prófa vöruna meira og bjóða ekki upp á eitthvað sem virkar ekki eða virkar illa og þá með lágmarks effort frá notendum.

Ég er ekki hlutlaus en í raun þá er þetta eins og munurinn á lego og duplo, bæði byggt á sömu tækni og hægt að fá sambærilega útkomu með því að byggja úr þeim.

En það er harðara og auðveldara að byggja úr duplo, sérstaklega ef þú ætlar hvort sem er ekkert að fara dúlla í einhverjum smáatriðum.

PC (s.s. aðrir en Apple) gerir hálfgerða kröfu um að fólk kunni þó nokkuð á tölvur og stýrikerfi og stillir fólki upp fyrir framan fullt af valkostum.

Apple er búið að einfalda þessa valkosti og í raun fjarlægja marga erfiða og dýra möguleika... Sumum finnst það heftandi en augljsólega finnst mörgum það spara sér tíma og erfiði og eru tilbúnir að borga fyrir það.

Þegar fólk er komið með eitt tæki þá er munurinn kannski ekki augljós, en þegar fólk er komið með fjölskyldu og 2-3 tæki pr. haus, þá skiptir kannski máli að allt sé eins og að allt sé auðvelt og það liggi fyrir hvað er hægt og hvað er ekki hægt.

PC heimili getur líklega gert miklu meira en þarf að eyða hellings tíma í að finnaút hvernig á að gera það... og hugsanlega líka hellings tíma í að ná sömu getu og afköstum og er hjá Apple eins og það kemur úr kassanum.

Þetta er a.m.k. mín ágiskun óg tilfinning fyrir þessu Apple æði...

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf GuðjónR » Sun 21. Sep 2014 16:19

Ætli besta samlíkingin sé ekki sú að iPhone (iOS) sé eins og vel hannaður 6 cylindra bíll með jöfnum lofþrýsingi í öllum dekkjum á móti hinum símunum (Android) sem er eins og 8 cylindra tryllitæki á fjórum loftlausum dekkjum.

iPhone er vinsæll af því er vel hannaður og virkar.
Æðið og hysterian í kringum þetta er örugglega að miklu leiti markaðssetninguni að þakka/kenna.

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5106
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 930
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf jonsig » Sun 21. Sep 2014 16:29

Mynd

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7403
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1123
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf rapport » Sun 21. Sep 2014 16:38

GuðjónR skrifaði:Æðið og hysterian í kringum þetta er örugglega að miklu leiti markaðssetninguni að þakka/kenna.

Það er of auðvelt að segja að þetta sé markaðssetningunni að þakka. Ef símarnir væru lélegir og stýrikerfið óstöðugt og flókið þá væri þetta flop.

Markaðssetning er bara tool sem Apple kann að nota, en það gerir ekki hardware, software eða service eitthvað betra.

Ef varan og þjónustan stendur ekki undir því sem marketing lofar, þá verður fólk yfirleitt nokkuð pissed og vörumerkið lækkar í verði.

Apple á velegngninni að þakka að hafa stýrt öllum þessum þáttum vel og á auðveldara með það því að "apple" stýrir þeim þáttum sem skipta máli s.s. hvaða hardware er notað með þeirra OS.

Þeir blóðmjólka performance úr íhlutum sem eru ekki alveg þeir nýjustu, eru ekki alltaf að skipta um íhluti og ná því að skapa sér hellings hagnað o.þ.h.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf GuðjónR » Sun 21. Sep 2014 16:54

rapport skrifaði:

Yebb...enda sagði ég í samhengi við quotið þitt;
iPhone er vinsæll af því er vel hannaður og virkar.

braudrist
</Snillingur>
Póstar: 1051
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Reputation: 58
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf braudrist » Sun 21. Sep 2014 17:48

Já, því allir aðrir Android símar eru illa hannaðir og virka ekki...

Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf GuðjónR » Sun 21. Sep 2014 18:01

braudrist skrifaði:Já, því allir aðrir Android símar eru illa hannaðir og virka ekki...

Þín orð... ;)

Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2727
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf SolidFeather » Sun 21. Sep 2014 18:06

Þetta er bara lífstíll.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5585
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1050
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf appel » Sun 21. Sep 2014 19:13

Tja, iPhone fær ókeypis markssetningu í öllum fjölmiðlum heims. Þú ert með fréttafólk sem sýnir frá því þegar fyrsti gæjinn í röðinni fær iPhoninn sinn, og svo eru allir blaðrandi um iPhone, þú finnur ekki tæknisíðu sem er ekki með 10 greinar um iPhone 6 á forsíðunni. Það er búið að breyta þessu tæki í einhverskonar helgigrip sem er tilbeðinn.

Ég segi bara, þetta er bara sími. Ég var meira spenntur fyrir fyrsta gsm símanum, nokia 5110 eða álíka, heldur en nýjustu kynslóð iPhone. Snjallsímar don't exite me anymore, enda er þróunin þar orðin mjög stale. Ég er að horfa til annarra hluta í tækniþróun.

*-*

biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf biturk » Sun 21. Sep 2014 19:25

Fólk er ekki skynsamt og apple nytir ser það :)

ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf Tesy » Sun 21. Sep 2014 19:34

Þetta fólk er ekki að bíða í röð fyrir iPhone.. Þau eru að bíða í röð fyrir RESPECT. Þú færð ekki 100% respect nema þú sért með apple vöru. Þetta er fact :guy .

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2479
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 459
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf Moldvarpan » Sun 21. Sep 2014 19:37

Heilaþvegið samfélag, ekkert annað.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7403
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1123
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf rapport » Sun 21. Sep 2014 19:57

Tesy skrifaði:Þetta fólk er ekki að bíða í röð fyrir iPhone.. Þau eru að bíða í röð fyrir RESPECT. Þú færð ekki 100% respect nema þú sért með apple vöru. Þetta er fact :guy .

Ef ég þyrfti apple vöru til að fá virðingu og virða sjálfan mig... þá væri ég s.s. blankur?

Þetta er hugsanlega e-h sem sálfræðingar og félagsþjónustan ættu að skoða... :guy :guy

Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf Tesy » Sun 21. Sep 2014 22:51

rapport skrifaði:
Tesy skrifaði:Þetta fólk er ekki að bíða í röð fyrir iPhone.. Þau eru að bíða í röð fyrir RESPECT. Þú færð ekki 100% respect nema þú sért með apple vöru. Þetta er fact :guy .

Ef ég þyrfti apple vöru til að fá virðingu og virða sjálfan mig... þá væri ég s.s. blankur?

Þetta er hugsanlega e-h sem sálfræðingar og félagsþjónustan ættu að skoða... :guy :guy

Jm, það kostar sitt að fá respect.

nonesenze
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Reputation: 99
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf nonesenze » Sun 21. Sep 2014 23:06

braudrist skrifaði:Já, því allir aðrir Android símar eru illa hannaðir og virka ekki...

Mynd

CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x16gb 7600mhz cl36
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Dark Power Pro 1600w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB
HDD: WD 12TB
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos

slapi
Gúrú
Póstar: 571
Skráði sig: Fös 19. Jún 2009 21:47
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf slapi » Sun 21. Sep 2014 23:11

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5585
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1050
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf appel » Sun 21. Sep 2014 23:31

Apple tískan er að detta úr tísku.
The universe tells me.

*-*

elight82
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Fös 24. Júl 2009 02:29
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf elight82 » Mán 22. Sep 2014 00:53

Ég er búinn að vera að nota Apple vörur í rúmlega átta ár, eftir að hafa átt fullt af PC tölvum sem mér fannst alltaf vera jafn mikið drasl.

Ég fíla Apple af því að OS X er notendavænasta stýrikerfi fyrir einkatölvur sem til er og iOS er notendavænasta stýrikerfi fyrir snjallsíma sem til er, að mínu mati.

Á þessum átta árum hef ég farið frá því að vera almennur hugbúnaðarnotandi yfir í að vera farinn að aðlaga stýrikerfið að mínum þörfum með ýmsum viðbótum, nota skelina alltaf meira og meira og svo framvegis.

Ég er grafískur hönnuður, en er nú á þriðja ári í tölvunarfræði og enginn í þessu námi hefur meiri sveigjanleika varðandi hugbúnað og stýrikerfi en OS X notendur. Það er hægt að setja upp Windows og óteljandi flavor af Linux, án þess að kveðja þægindi OS X.

Þegar kemur að útliti eru tölvurnar eins og sérhannað listaverk. Enginn annar framleiðandi en Apple hefur efni á því að kaupa 10 þúsund CNC vélar til að skera út unibody skeljarnar úr áli. Færustu iðnhönnuðir heims sjá til að það sé gert af þvílíkri snilld að tölvurnar væri hægt að setja á listasafn.

Annar vélbúnaður er eins framarlega og best verður á kosið. Þegar kemur að sjálfu innihaldinu er vísast hægt að fá flest af þessu í PC útgáfum. Það er góð ástæða fyrir Hackintosh-samfélaginu. Vélbúnaðurinn er dýr og margir sækjast eftir hugbúnaðarumhverfinu.

En Apple er líka orðið að stöðutákni, sérstaklega eftir að iPhone sló svona vel í gegn. Gullaldartíð Apple er líklega lokið sem einhverskonar tískubylgju, og það er eins og fyrirtækið sé hætt í eiginlegri nýsköpun. En það þýðir samt ekki að Apple muni hætta að framleiða vörur sem milljónir manna munu velja framyfir aðrar.

jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1761
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf jardel » Mán 22. Sep 2014 01:21

elight82 skrifaði:Ég er búinn að vera að nota Apple vörur í rúmlega átta ár, eftir að hafa átt fullt af PC tölvum sem mér fannst alltaf vera jafn mikið drasl.

Ég fíla Apple af því að OS X er notendavænasta stýrikerfi fyrir einkatölvur sem til er og iOS er notendavænasta stýrikerfi fyrir snjallsíma sem til er, að mínu mati.

Á þessum átta árum hef ég farið frá því að vera almennur hugbúnaðarnotandi yfir í að vera farinn að aðlaga stýrikerfið að mínum þörfum með ýmsum viðbótum, nota skelina alltaf meira og meira og svo framvegis.

Ég er grafískur hönnuður, en er nú á þriðja ári í tölvunarfræði og enginn í þessu námi hefur meiri sveigjanleika varðandi hugbúnað og stýrikerfi en OS X notendur. Það er hægt að setja upp Windows og óteljandi flavor af Linux, án þess að kveðja þægindi OS X.

Þegar kemur að útliti eru tölvurnar eins og sérhannað listaverk. Enginn annar framleiðandi en Apple hefur efni á því að kaupa 10 þúsund CNC vélar til að skera út unibody skeljarnar úr áli. Færustu iðnhönnuðir heims sjá til að það sé gert af þvílíkri snilld að tölvurnar væri hægt að setja á listasafn.

Annar vélbúnaður er eins framarlega og best verður á kosið. Þegar kemur að sjálfu innihaldinu er vísast hægt að fá flest af þessu í PC útgáfum. Það er góð ástæða fyrir Hackintosh-samfélaginu. Vélbúnaðurinn er dýr og margir sækjast eftir hugbúnaðarumhverfinu.

En Apple er líka orðið að stöðutákni, sérstaklega eftir að iPhone sló svona vel í gegn. Gullaldartíð Apple er líklega lokið sem einhverskonar tískubylgju, og það er eins og fyrirtækið sé hætt í eiginlegri nýsköpun. En það þýðir samt ekki að Apple muni hætta að framleiða vörur sem milljónir manna munu velja framyfir aðrar.

Apple vélarnar eru góðar ekki mikið hökkt í þeim.
Mér hefur alltaf þótt Apple vélar mjög ljótar og kerlingalegar? Það hlýtur bara að vera að ég er einn um það.

Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1575
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf audiophile » Þri 23. Sep 2014 09:46

GuðjónR skrifaði:Ætli besta samlíkingin sé ekki sú að iPhone (iOS) sé eins og vel hannaður 6 cylindra bíll með jöfnum lofþrýsingi í öllum dekkjum á móti hinum símunum (Android) sem er eins og 8 cylindra tryllitæki á fjórum loftlausum dekkjum.

iPhone er vinsæll af því er vel hannaður og virkar.

Ég skil hvert þú ert að fara með þessa samlíkingu en hún er ekki sanngjörn. Að hvaða leyti finnst þér Android stýrikerfi svona rosalega lélegra en iOS? Því það er greinilega margt í því sem Apple finnst flott, eins og tilkynningar, flýtistillingar, 3rd party lyklaborð osfv. sem er loksins komið í iOS.

Það er allt í lagi að mörgu fólki finnist gott að vera lokað innan veggja Apple en það er líka margir aðrir sem vilja frelsi til að velja og þeir kjósa Android.

Have spacesuit. Will travel.

thehulk
Fiktari
Póstar: 99
Skráði sig: Þri 20. Júl 2010 15:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf thehulk » Þri 23. Sep 2014 10:04

Er Android lélegt alls ekki? Er það illa skrifað stýrikerfi? Ég myndi segja það

Sjáum rafhlöðuendingu

http://www.phonearena.com/news/With-the ... id_id59571

HTC One M8 sem er með 12 tíma rafhlöðu þegar keyrt er í Android umhverfinu
HTC ONE M8 WP sem er með 24 tíma rafhlöðu í Windows Phone umhverfinu

Ég veit að þessi umræða snýst ekki um Android eða WP, það er samt greinagóður munur á rafhlöðuendingu á þessum 2 símum. Ég held að WP hafi stjórnina á þessu útaf lokuðu ecosystem eins og Apple eru að gera. ÞEAS... Þessir símar hafa ekki óþarfa bloatware, eins og Samsung með nokkur GB af bloatware og að auki að reyna búa til ecosystem inn í android símanum.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf dori » Þri 23. Sep 2014 10:21

thehulk skrifaði:Er Android lélegt alls ekki? Er það illa skrifað stýrikerfi? Ég myndi segja það

Sjáum rafhlöðuendingu

http://www.phonearena.com/news/With-the ... id_id59571

HTC One M8 sem er með 12 tíma rafhlöðu þegar keyrt er í Android umhverfinu
HTC ONE M8 WP sem er með 24 tíma rafhlöðu í Windows Phone umhverfinu

Ég veit að þessi umræða snýst ekki um Android eða WP, það er samt greinagóður munur á rafhlöðuendingu á þessum 2 símum. Ég held að WP hafi stjórnina á þessu útaf lokuðu ecosystem eins og Apple eru að gera. ÞEAS... Þessir símar hafa ekki óþarfa bloatware, eins og Samsung með nokkur GB af bloatware og að auki að reyna búa til ecosystem inn í android símanum.

Í fyrsta lagi tala þeir í þessari grein um 21 klst en ekki 24 (bara svona því að það lætur þetta lúkka ennþá verr sem er kannski óþarfi ;) ).

Svo er þetta uppgefinn endingartími. Núna ætla ég að gera ráð fyrir að þetta sé nákvæmlega sama hardware. Þú gætir ekki náð þessu nema með einhverju trixi. Það væri mun áhugaverðara að sjá raunverulegan endingartíma eins og í "hversu oft þarf ég að setja símann í hleðslu". Því að það er það eina sem skiptir raunverulega máli.

Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf upg8 » Þri 23. Sep 2014 10:29

Apple hefur gífurleg áhrif á fjölmiðla, þeir eru ekki hlutlausir.
http://9to5mac.com/2014/08/29/seeing-through-the-illusion-understanding-apples-mastery-of-the-media/

Hvernig fór Joan Rivers að því að dásama iPhone 6 á Instagram og Facebook mörgum dögum eftir andlát hennar?. Frægt fólk er keypt úr og almenningur gleypir við því. http://www.tmz.com/2014/09/19/joan-rivers-iphone-6-facebook-instagram

Skoðum svo Beats, það eru virkilega léleg heyrnatól miðað við verð en vegna þess hversu vel þau voru auglýst og fengu gott endorsemen frá fræga fólkinu þá er fjöldi fólks í dag sem virkilega trúir því að Beats séu að framleiða bestu heyrnatólin á markaðnum.

Munum það að þegar iPhone kom á markað þá voru engin apps, ekki 3G né heldur front facing myndavél, HTC voru t.d. að gera síma með meiri upplausn og fleiri eiginleikum en Apple gera það sem þeir gera best og það er að gera ráð fyrir skakka háskólanemanum.

Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

vesley
Kóngur
Póstar: 4257
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Nennir einhver að útskýra þetta iphone æði ?

Pósturaf vesley » Þri 23. Sep 2014 10:36

upg8 skrifaði:Apple hefur gífurleg áhrif á fjölmiðla, þeir eru ekki hlutlausir.
http://9to5mac.com/2014/08/29/seeing-through-the-illusion-understanding-apples-mastery-of-the-media/

Hvernig fór Joan Rivers að því að dásama iPhone 6 á Instagram og Facebook mörgum dögum eftir andlát hennar?. Frægt fólk er keypt úr og almenningur gleypir við því. http://www.tmz.com/2014/09/19/joan-rivers-iphone-6-facebook-instagram

Skoðum svo Beats, það eru virkilega léleg heyrnatól miðað við verð en vegna þess hversu vel þau voru auglýst og fengu gott endorsemen frá fræga fólkinu þá er fjöldi fólks í dag sem virkilega trúir því að Beats séu að framleiða bestu heyrnatólin á markaðnum.

Munum það að þegar iPhone kom á markað þá voru engin apps, ekki 3G né heldur front facing myndavél, HTC voru t.d. að gera síma með meiri upplausn og fleiri eiginleikum en Apple gera það sem þeir gera best og það er að gera ráð fyrir skakka háskólanemanum.

Þetta video á ekki bara við Beats heldur á þetta líka vel við Apple og mörg önnur fyrirtæki.
Síðast breytt af vesley á Þri 23. Sep 2014 23:14, breytt samtals 2 sinnum.