Síða 1 af 1

Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Þri 19. Ágú 2014 23:49
af Frantic
Þetta hljómar of gott til að vera satt:
http://www.aliexpress.com/item/Samsung- ... 62784.html
25.000 kr- kominn til landsins?
Það hlýtur að vera eitthvað skrítið við þetta, sjáið þið hvað það er?

Edit: Sé bara mun á CPU. Á að vera Quad-core 2.5 GHz Krait 400 miðað við http://www.gsmarena.com/samsung_galaxy_s5-6033.php

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Þri 19. Ágú 2014 23:55
af Daz
Lýsingin segir skrifaði:full size and original logos copy 1:1 from original phone ! high quality and best Severs we promised !
Notice: This is 1:1 high copy s5 phone!!!!

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 00:06
af Frantic
Daz skrifaði:
Lýsingin segir skrifaði:full size and original logos copy 1:1 from original phone ! high quality and best Severs we promised !
Notice: This is 1:1 high copy s5 phone!!!!

Good spotting!
Var ekki að finna þetta.

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 09:37
af playman
svo auðvitað þetta líka
3. We promise that all the phones and accessories have logos like the original one.


En ef þú ákveður að skella þér á hann endilega komdu þá með myndir og smá review, væri gaman að sjá það.

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 12:49
af AntiTrust
Hef höndlað nokkur svona replica tæki frá Ali og þetta er nær undantekningarlaust ónothæft. Lélegt batterý, lélegir skjáir, hitna mikið, oft vesen með Play store og fleira. In the end hef eg aldrei séð svona tæki vera þess virði.

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 14:16
af Halli25
Hef heyrt um nokkra sem hafa fengið sér síma frá iNew Mobile:
http://www.inewmobile.com/

hafa verið sáttir við þá og ég handlék einn um helgina og hann sýndist bara vera nokkuð fínn miðað við lent verð undir 30 þúsund..

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 14:56
af Frantic
Ég myndi sjálfur aldrei kaupa þetta.
Er ánægður með minn LG G3 :D

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 14:56
af danniornsmarason
ég kepyti einn svona kína síma fyrir 1 1/2 ári síðanog hann virkar enn "vel", miðað við það að ég keypti hann á 5.000 kr, leitaði fyrsdt á bland.is og allstaðar eftir bara ódýrustu símunum.. fann nokkra sem voru að selja gömlu nokia símana á 5.000 og lægsta verðið á síma sem ég fann var 4.000 og hann var seldur.. þannig ég hugsaði mér bara að kaupa ódýrann af netinu og fann þá þennann.. 4" snertiskjá með slot fyrir 2 símkort 120mb fyrir storage og síðan pláss fyrir mini sdkort
keypti þennann síma bara því að mig vantaði eitthvað til að hringja úr því ég týndi símanum rétt áaðurn en ég keypti þennann
allt virkar vel, er með wifi getur hringt getur notað bæði kortin batteríið endist í 1-2 daga fer eftir notkun
bara 2 sem ég var ekki sáttur með var að síminn höndlaði ekki stóra leiki eða laggaði líka stundum þegar farið var inná youtube til að horfa á myndbönd og það að maður þurfti að hugsa hvaða öpp maður náði í því það var svo lítið pláss á símanum, en þetta er nú ekkert til að kvarta yfir, allavegna á miðað við að þetta var jafn ódýrt og að kaupa ódýrasta notaða símann sem ég fann saem var bara hægt að spila snakes í og hringa og senda sms

er að fara kaupa annann svona síma á 10.000 kall sem á víst að vera fínn quadcore og læti

kanski ekki allir sem eru eins og ég, bara sáttir með síma sem hringir og kemst á netið :fly

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Mið 20. Ágú 2014 15:09
af Daz
Ef þú vilt bara random ódýran kínasíma þá eru Kazam hjá Sjónvarpsmiðstöðinni örugglega ekki verri.

Re: Samsung Galaxy S5 nánast gefins?

Sent: Fim 21. Ágú 2014 09:17
af Halli25
Daz skrifaði:Ef þú vilt bara random ódýran kínasíma þá eru Kazam hjá Sjónvarpsmiðstöðinni örugglega ekki verri.

og sakar ekki að fá ábyrgð hérlendis :)