Síða 1 af 1
Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 18:44
af tikitaka
Þarf að versla mér fartölvu fyrir námið sem hefst í haust. Einhverjir reynsluboltar hér sem geta mælt með því hvað er nauðsynlegt fyrir þetta nám.
Hræddur um að taka overkill á þetta. Verð uppí 150 þúsund.
Valkvíði dauðans.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 18:49
af Skari
Ættir ekki að þurfa að vera með neitt sérstaka tölvu fyrir þetta, persónulega myndi bara taka einhverja létta með góða batteríendingu.
Þá ekki hugsa þessa fyrir leiki líka.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 18:55
af Hvati
Persónulega færi ég allavega ekki í stærra en 14" tölvu fyrir skólavinnu.
Yoga2 er að koma sterk inn:
http://www.tolvutek.is/vara/lenovo-yoga ... -silfurgra Einnig U430 sem er öflugari en er þyngri, þykkari og með lakari skjá:
http://www.tolvutek.is/vara/lenovo-idea ... -silfurgra
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 19:02
af KermitTheFrog
Yoga2 pro er mjög flott vél. Mæli með því að taka létta og þægilega tölvu fram yfir specca. Ég keypti mér Asus Zenbook fyrir tveimur árum og hún hefur reynst mér vel. Endilega skoða líka upplausnina á skjánum. Mér hryllir við fartölvum sem enn eru með x768 upplausn. Það virðist vera meiri áhersla á að bæta vélbúnaðinn en skimpa á skjáina í mainstream fartölvuframleiðslu. Ég er með gamla HP fartölvu með Pentium single core örgjörva og 1280x768 skjá.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 19:22
af hagur
Hvaða vél sem er dugar í þetta. Myndi aðallega spá í fyrirferð og batterísendingu.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 19:26
af depill
hagur skrifaði:Hvaða vél sem er dugar í þetta. Myndi aðallega spá í fyrirferð og batterísendingu.
Ætla ða taka undir þetta. Sérstkalega varðandi fyrirferðina. Og ekkert pæla í grafísku korti eða einhverju þannig.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 21:23
af Olafst
Ef þú ætlar að hafa íslenska lyklaborðs-layoutið í gangi á meðan þú forritar þá er ágætt að athuga að < > og | takkarnir séu til staðar, vinstra megin á lyklaborðinu.
Það er þannig á vélum með nordic-layout, en ekki us/uk.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 21:33
af Klaufi
Vél sem er 14" eða undir, og þetta eru atriðin sem ég myndi skoða:
-Rafhlöðuending
-Fyrirferð
-Upplausn og gæði á skjá.
-Lyklaborð með hornklaufum
Athugaðu líka að skoða hleðslutækið, það eru til dæmi um að vélar með þrjár sellur í staðinn fyrir 6-9 í batterýpakkanum komi með algjörum hlunka hleðslutækjum fyrir hraðhleðslu.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 23:20
af I-JohnMatrix-I
Myndi alvarlega spá í þessari, frábær vél fyrir þennan pening.
Lenovo U430 14", Intel i7-4500U, 8GB, 500GB SSHD, GT730M 2GB
Rafhlaða: Li-Polymer, allt að 10klst ending!
159.900 kr
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2699
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 07. Ágú 2014 23:34
af GullMoli
150k ætti að geta reddað þér virkilega flottri vél, held einmitt að Yoga og U430 vélarnar séu einmitt málið fyrir þá upphæð.
Ég er sjálfur að fara í þetta nám og nældi mér í eina 5-6 ára gamla Thinkpad T61 vél á slikk; 2.2GHz dual core, 4GB Ram, 14.1" 1400x1050 (4:3) skjá. Svo tróð ég bara SSD í hana og núna er þetta megafín vél í námið. Rafhlaðan dugar reyndar bara í um 3 tíma sem er svona helsti ókosturinn miðað við nýrri vélar
Lenovo (Thinkpad) <3
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 14. Ágú 2014 08:40
af zazou
GullMoli skrifaði:150k ætti að geta reddað þér virkilega flottri vél, held einmitt að Yoga og U430 vélarnar séu einmitt málið fyrir þá upphæð.
Ég er sjálfur að fara í þetta nám og nældi mér í eina 5-6 ára gamla Thinkpad T61 vél á slikk; 2.2GHz dual core, 4GB Ram, 14.1" 1400x1050 (4:3) skjá. Svo tróð ég bara SSD í hana og núna er þetta megafín vél í námið. Rafhlaðan dugar reyndar bara í um 3 tíma sem er svona helsti ókosturinn miðað við nýrri vélar
Lenovo (Thinkpad) <3
Það er einmitt ódýrast í heimi að skella SSD í gamla Core 2 Duo rellur og þá fara þær að fljúga. Er með eldgamla L300 Toshiba sem dl server heima og eftir að Evo diskurinn fór í er hún eksjúllí nothæf.
Ókosturinn eru jú slæm batterísending.
En til að svara upphaflegu spurningunni þá er það vinnsluminni (8GB minimum) > SSD > CPU.
Þróunarvélin mín er með i7 4500U + 8GB DDR3 + PCIe disk og það nægði mér þegar ég var að skrifa MVC + SQL Server verkefni fyrr á árinu. Visual Studio 2013 og SQL 2012 keyrandi locally. Nb. ég hef nákvæmlega enga þolinmæði þegar kemur að því að bíða eftir því að 'tölvan sé að hugsa'
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 14. Ágú 2014 11:38
af jericho
Hvað sem þú gerir, hafðu SSD í vélinni
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 14. Ágú 2014 12:54
af Viktor
Asus Zenbook, engin spurning, útrætt mál.
Klaufi skrifaði:-Lyklaborð með hornklaufum
Það er samt skynsamlegra að venja sig á US layout fyrir forritun
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 14. Ágú 2014 14:35
af Some0ne
Sallarólegur skrifaði:Asus Zenbook, engin spurning, útrætt mál.
Klaufi skrifaði:-Lyklaborð með hornklaufum
Það er samt skynsamlegra að venja sig á US layout fyrir forritun
Ég vinn við að forrita og er í tölvunarfræði, og mér finnst ekkert verra að vera með íslenskt keyboard.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 14. Ágú 2014 15:07
af depill
Some0ne skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Asus Zenbook, engin spurning, útrætt mál.
Klaufi skrifaði:-Lyklaborð með hornklaufum
Það er samt skynsamlegra að venja sig á US layout fyrir forritun
Ég vinn við að forrita og er í tölvunarfræði, og mér finnst ekkert verra að vera með íslenskt keyboard.
Sama hér . Mer finnst það ekkert trufla mig. Held þetta sé bara að spurning um vana.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Fim 14. Ágú 2014 16:13
af dori
Ég hef einmitt líka unnið við forritun í 4-5 ár og stundað mun lengur og mér finnst fínt að nota íslenskt lyklaborð. Og ég nota þennan takka líka miklu meira í terminal en nokkurntíma í einhverjum "IDE" forritum og þar þarf ég líka að nota íslenska stafi (við og við) og mér finnst það hassle að þurfa að skipta á milli keyboard layout heldur en að nota meta takka smá meira til að búa til allskonar sviga/slaufusviga/hornklofa/kommu tákn.
Fyrir utan það er þetta ekki spurning um software layout. Þetta er spurning um ANSI eða ISO hardware layout. Enter takkinn á ANSI lyklaborði fer miklu meira í taugarnar á mér en þessi takki sem vantar.
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Lau 16. Ágú 2014 10:32
af KermitTheFrog
dori skrifaði:Enter takkinn á ANSI lyklaborði fer miklu meira í taugarnar á mér en þessi takki sem vantar.
Hann fór í taugarnar á mér fyrsta klukkutímann sem ég notaði tölvuna mína. Það venst allt ef maður notar það nógu mikið
Re: Fartölva fyrir tölvunarfræði.
Sent: Lau 16. Ágú 2014 12:50
af Viktor
dori skrifaði:Ég hef einmitt líka unnið við forritun í 4-5 ár og stundað mun lengur og mér finnst fínt að nota íslenskt lyklaborð. Og ég nota þennan takka líka miklu meira í terminal en nokkurntíma í einhverjum "IDE" forritum og þar þarf ég líka að nota íslenska stafi (við og við) og mér finnst það hassle að þurfa að skipta á milli keyboard layout heldur en að nota meta takka smá meira til að búa til allskonar sviga/slaufusviga/hornklofa/kommu tákn.
Fyrir utan það er þetta ekki spurning um software layout. Þetta er spurning um ANSI eða ISO hardware layout. Enter takkinn á ANSI lyklaborði fer miklu meira í taugarnar á mér en þessi takki sem vantar.
Það er samt alveg tíu sinnum skynsamlegra að venja sig á US layout - ef þú pælir í staðsetningu crucial takka eins og allra sviganna. Allir "forritunar" takkarnir eru á sama stað á US layout - enda er US layoutið hannað af forriturum - fyrir forritara. Íslenska layoutið er tómt rugl í því samhengi.
[] {} () <> Þessir takkar.
Töluvert tímafrekara að þurfa alltaf að halda ALT inni til þess að fá þessi tákn - og goggarnir eru náttúrulega úti úr korti þarna við hliðina á Z.