Síða 1 af 1

Qi hleðslutæki

Sent: Mán 21. Júl 2014 23:00
af KermitTheFrog
Er einhver reynsla komin á þráðlausa hleðslu hér? Er eitthvað úrval af þessu hérlendis eða þarf maður að panta þetta að utan?

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Þri 22. Júl 2014 00:26
af Hvati
Ég á þennan: http://www.tolvutek.is/vara/adata-thrad ... snjallsima
Hann virkar fínt með mínum Lumia 920. veit til þess að hann virkar vel með Nexus 5 og Lumia 1520 líka.

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Þri 22. Júl 2014 02:59
af þorri69
er búinn að nota DT-900 frá nokia með lumia 920 í 1½ ár og nota ekki annað.
á morgunn góður dagur :) ætla að versla mér lumia 930 :megasmile og kem til að nota sama þráðlausa hleðslutækið :happy

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Þri 22. Júl 2014 09:16
af rattlehead
Keypti af ebay og virkar fínt. munur að geta skellt símanum bara á borðið og hann byrjar að hlaðast.

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Þri 22. Júl 2014 17:49
af Frantic
Var að kaupa mér LG G3 og það virðist engin nefna þráðlausa hleðslu á review síðunum.
Þarf ég að kaupa sérstakt bak á símann eða er þetta innbyggt?
Sorry með að stela þræðinum en ég hef ekki séð neina umræðu um þetta.

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Þri 22. Júl 2014 19:35
af KermitTheFrog
Frantic skrifaði:Var að kaupa mér LG G3 og það virðist engin nefna þráðlausa hleðslu á review síðunum.
Þarf ég að kaupa sérstakt bak á símann eða er þetta innbyggt?
Sorry með að stela þræðinum en ég hef ekki séð neina umræðu um þetta.


Fjórði punkturinn hér : http://www.technobuffalo.com/2014/05/28 ... id-phones/

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Þri 22. Júl 2014 21:44
af Frantic
KermitTheFrog skrifaði:
Frantic skrifaði:Var að kaupa mér LG G3 og það virðist engin nefna þráðlausa hleðslu á review síðunum.
Þarf ég að kaupa sérstakt bak á símann eða er þetta innbyggt?
Sorry með að stela þræðinum en ég hef ekki séð neina umræðu um þetta.


Fjórði punkturinn hér : http://www.technobuffalo.com/2014/05/28 ... id-phones/

Awesome, takk fyrir linkinn! :D
Ég hendi þá í svona þráðlaust thingy :)

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Mið 23. Júl 2014 18:47
af Swooper
Ég er með Nokia Qi-hleðslutæki sem ég keypti hjá Símanum í janúar, en er ekki lengur á síðunni þeirra svo ég er ekki viss hvað það heitir. Virkar fínt fyrir Nexusinn, get alveg mælt með því. Spurning bara hvort mönnum finnist það þess virði umfram venjulegt hleðslutæki.

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Fim 24. Júl 2014 00:44
af krissdadi
Er að nota Nokia DT-910 þráðlausa hleðslustandinn, flott græja sem ég er búinn að nota í tæp 2 ár
hann virkar eins og náttborðs klukka með Nokia Glance screen á, það eina sem pirrar mig stundum er lítil díoða framan á honum sem er alltof björt.
Notaði hann fyrst fyrir Lumia 920 og núna fyrir Lumia 1520 :happy
Mynd

Re: Qi hleðslutæki

Sent: Fim 24. Júl 2014 02:27
af Swooper
krissdadi skrifaði:Er að nota Nokia DT-910 þráðlausa hleðslustandinn, flott græja sem ég er búinn að nota í tæp 2 ár
hann virkar eins og náttborðs klukka með Nokia Glance screen á, það eina sem pirrar mig stundum er lítil díoða framan á honum sem er alltof björt.
Notaði hann fyrst fyrir Lumia 920 og núna fyrir Lumia 1520 :happy

Þetta er þessi sem ég á, virkar vel :happy