Hvað finnst mönnum um þetta? Flopp eða?? Datt í hug að kalla þetta Lego síma, hægt að kubba hann saman eftir hentugleikum
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 17:37
af KermitTheFrog
Hef ekki mikla trú á þessu. Hversu compact verða þessir símar? Einhverjir hlunkar? Hlakka samt til að sjá hvernig þessi "grunnur" eða það sem mætti kalla móðurborð kemur til með að vera.
Mig minnir einmitt að Motorola hafi farið í samstarf við þessa aðila eða tekið verkefnið að sér. Svo keyptu Google Motorola, eða hvort þeir hafi átt Motorola áður.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 18:27
af capteinninn
GullMoli skrifaði:
Skippó skrifaði:Sama concept og þetta hérna sýnist mér.
Mig minnir einmitt að Motorola hafi farið í samstarf við þessa aðila eða tekið verkefnið að sér. Svo keyptu Google Motorola, eða hvort þeir hafi átt Motorola áður.
Þeir keyptu Motorola og seldu svo aftur Lenovo en héldu eftir R&D deildinni sem voru held ég að vinna í þessu.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 18:27
af capteinninn
GullMoli skrifaði:
Skippó skrifaði:Sama concept og þetta hérna sýnist mér.
Mig minnir einmitt að Motorola hafi farið í samstarf við þessa aðila eða tekið verkefnið að sér. Svo keyptu Google Motorola, eða hvort þeir hafi átt Motorola áður.
Þeir keyptu Motorola og seldu svo aftur Lenovo en héldu eftir R&D deildinni sem voru held ég að vinna í þessu.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 18:46
af beatmaster
Þetta er Project Ara sem að kom frá Motorola, gott að lesa Vaktarþráð um Phonebloks hérna til að sjá samhengið
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 21:08
af appel
Hmm.... áhugaverð hugmynd, en margir gallar á hugmyndinni praktískt séð.
Einn faktor í þessu sem margir gleyma og það er "aesthetics" faktorinn. Apple mun aldrei gefa út síma á borð við þennan, þar sem það brýtur þeirra hugmyndafræði um heildstæða og fágaða hönnun. Svo eru símar í huga fjölmargra ekki bara eitthvert tól eða verkfærasett heldur hluti af lífsstíl, tísku og útliti, þannig að það er mikilvægt fyrir suma að eiga fallegan og fágaðan síma.
Svo er annað sem menn verða að pæla í. Ástæðan fyrir þeirri öru tækniþróun í farsímatækni er að fólk er sífellt að endurnýja allan símann sinn og fær nýjustu tæknina og staðlana. Ef sú þróun breytist og fólk endurnýjar ekki símann sinn í heilu lagi á 2-3ja ára fresti, heldur bara t.d. myndavélina sína, þá gæti orðið stöðnun í þróun á sumum hlutum símans. Slíkt gæti eyðilagt iðnaðinn og margir myndu hverfa af honum, fyrir vikið myndi nýþróun og fjárfestingar stöðvast og við sitjum uppi með tækni á endastöð. Þeir sem vita ekki hvað "planned obsolency" snýst um og hví það er mikilvægt ættu að skoða það, og alveg sama hvort þú ert á móti því eða ekki þá er "planned obsolency" það sem knýr áfram þróun í mörgum geirum.
Svo er einfaldleikinn það sem fólk sækist eftir. Þessi "lego" útfærsla á síma er áhugaverð fyrir tækninörda, en alls ekki fyrir venjulegt fólk sem hefur engan áhuga á svona, það vill bara síma sem virkar. Þetta project hjá Google er dæmigert fyrir "run away" project hjá Google sem tækninördar hafa ýtt áfram með áhuga sínum, en í raun ætti að killa þetta project.
Svo er ólíklegt að það verði alveg "seamless" virkni milli allra componenta. Ef þú kaupir síma núna þá virkar hann og allir componentarnir, en með svona lego síma er ekkert víst að allir componentar geti unnið saman þótt það sé staðlað, fyrirsjáanlegt er að það komi upp vandamál.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 21:18
af Viktor
Verð að segja það, mér finnst þetta ekki spennandi concept...
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 21:22
af KermitTheFrog
appel skrifaði:Svo er ólíklegt að það verði alveg "seamless" virkni milli allra componenta. Ef þú kaupir síma núna þá virkar hann og allir componentarnir, en með svona lego síma er ekkert víst að allir componentar geti unnið saman þótt það sé staðlað, fyrirsjáanlegt er að það komi upp vandamál.
Svo er líka spurning hvernig interface er á milli componenta. Ef þetta verða einhverjar júniversal tengingar geta líka komið upp flöskuhálsar með bandvídd og annað.
Eins og phoneblocks var með þetta uppsett þá var nokkurnveginn alveg sama hvernig þú raðaðir componentum. Það er absúrd, þetta hlýtur að vera aðeins meira fast með þennan Google síma.
edit: horfði á myndbandið hér að ofan
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 21:30
af GuðjónR
Ég hélt fyrst að þetta væri einhver fantasía og sem slíkt fannst mér það sniðugt, á ekki von á því að þetta ver'ði að veruleika. En hvað veit maður, fyrir nokkrum árum hefði maður talið 3D prentun útilokaða.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 22:32
af intenz
Svo missir maður símann og hann splúndrast og maður þarf að leita að öllum kubbunum.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 22:46
af appel
Svo er þessi form-factor dæmdur til dauða.
ATX form-factorinn t.d. í PC tölvum gerir það að verkum að PC tölvur eru ekkert vinsælar í dag, form-factorinn er staðlaður og veldur því að enginn getur vikið frá honum. Þessvegna sjáum við ekki betri form-factora í dag, að færa sig úr ATX form-factornum er bara alltof erfitt og mikið mál. Öll þróun í PC tölvum miðast við þennan gamla ATX form factor, sem er fáránlegt því hardware er orðið miklu nettara. Snjalltækin hafa tekið yfir á kostnað þessara gamaldags kassatölva.
Framtíðin í símum er mjög óljós. Að ætla að negla niður einhvern fastan form-factor er glapræði. Kannski einn daginn verður þetta allt saman í einu chippi, tengdu batterí og skjá. Til hvers þarftu þá eitthvað svona modular? Kannski verða símar bara einhverskonar piece í eyranu á okkur, alveg falið, svo verðum við með einhverskonar augnalinsur sem geta projectað augmented reality og við þurfum bara að interacta með handahreyfingum eða puttahreyfingum eða álíka. Að negla niður einhvern modular form-factor hægir á slíkri þróun þar sem allir aðilar hafa "vested interest" í því að viðhalda form-factornum.
Re: Nýr "LEGO" sími frá Google
Sent: Lau 19. Apr 2014 23:17
af gardar
appel skrifaði:Svo er þessi form-factor dæmdur til dauða.
ATX form-factorinn t.d. í PC tölvum gerir það að verkum að PC tölvur eru ekkert vinsælar í dag, form-factorinn er staðlaður og veldur því að enginn getur vikið frá honum. Þessvegna sjáum við ekki betri form-factora í dag, að færa sig úr ATX form-factornum er bara alltof erfitt og mikið mál. Öll þróun í PC tölvum miðast við þennan gamla ATX form factor, sem er fáránlegt því hardware er orðið miklu nettara. Snjalltækin hafa tekið yfir á kostnað þessara gamaldags kassatölva.
Þetta er nú ekki alveg rétt, framleiðendur eins og t.d. Dell hafa ekkert verið að eltast við standard ATX form. Það eru auðvitað ákveðnir aðilar að framleiða móðurborð í standard stærð en þau eru hugsuð fyrir ákveðinn markað. En svo eru líka til standardar fyrir minni og nettari móðurborð, nano-itx, pico-itx, mobile-itx.
Held að standardarnir séu ekkert að hamla þróun PC tolvunnar. Ef eitthvað er þá held ég að það séu onnur platform og nálgun eins og ARM orgjorvar sem séu að taka meiri bita af kokunni frá PC tolvunni heldur en nokkur tíman einhver stærð eða logun á móðurborði.