Síða 1 af 1

Skipta um skjá á Samsung s4

Sent: Sun 23. Mar 2014 16:43
af stefhauk
Lennti í því skemmtilega atviki að síminn minn datt í jörðina af ágætri hæð og skjárinn smallaðist samt var hann í bumper. Síminn virkar en það kemur ekkert á skjáinn enda vel brotinn.
Vitiði hvað nýr skjár er að kosta, og hvort þetta fari í gegnum heimilistrygginguna ? og ef svo er vitiði hver sjálfsábyrgðin er á þessu?

Aðalega velta því fyrir mér hvort það borgi sig að gera við hann eða kaupa mér nýjan síma.

Re: Skipta um skjá á Samsung s4

Sent: Sun 23. Mar 2014 17:23
af Ingi Hrafn
Ef sjálfsábyrgðin á heimilistryggingunni er ekkert svo há þá er það alveg málið
Elko skiptir um skjá tekur klukkutíma held það sé einhverstaðar á milli 20-30

Re: Skipta um skjá á Samsung s4

Sent: Sun 23. Mar 2014 18:50
af stefhauk
Ingi Hrafn skrifaði:Ef sjálfsábyrgðin á heimilistryggingunni er ekkert svo há þá er það alveg málið
Elko skiptir um skjá tekur klukkutíma held það sé einhverstaðar á milli 20-30


Ætla kanna hver sjálfsábyrðin er á honum ef hún er svipuð og að kaupa nýjan skjá þá vil ég frekar nýjan síma en síma sem búið er að gera við.

Re: Skipta um skjá á Samsung s4

Sent: Mán 24. Mar 2014 08:30
af audiophile
Kostar 23.999kr að skipta um skjá á S4 í Elko Lindum. Tekur cirka 30mín á meðan þú bíður.

Re: Skipta um skjá á Samsung s4

Sent: Mán 24. Mar 2014 12:48
af juggernaut
Kaupa nýjan skjá í Símabæ og skipta um sjálfur