Síða 1 af 1
Vantar hjálp með að velja fartölvu
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:24
af Plee
Ég er að fara að fá mér fartölvu, en hef bara ekki hugmynd hvað er gott og hvað ekki í þessu fartölvudæmi. Fartölvan sem ég þarf verður að styðja half-life 2 (1.2 GHz örri, 256mb minni, 128mb skjákort sem styður DirectX 7 eða hærra og WinXP). hún verður helst að vera frekar hljóðlát, með góðu hljóðkorti og helst með skrifara.
Svo er ég ekkert inní hvaða tölvubúðir eru að gera sig og hverjar ekki þannig ef það eru einhverjar búðir sem ég á alls ekki að versla hjá endilega látið mig vita
Hún má vera á verðbilinu 100-150 þ. og þessi fartölva mun koma í stað borðtölvunnar minnar, öll hjálp er mjög vel þegin
kk,
Palli.
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:40
af ICM
Ef þú ætlar að spila HL2 er algjört lágmark að kortið styðji Direct X 8
miðað við flestar lýsingarnar hjá þér myndi þetta duga vel fyrir Half-Life 1
Re: Vantar hjálp með að velja fartölvu
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:46
af MezzUp
Plee skrifaði:Ég er að fara að fá mér fartölvu, en hef bara ekki hugmynd hvað er gott og hvað ekki í þessu fartölvudæmi. Fartölvan sem ég þarf
verður að styðja half-life 2 (1.2 GHz örri, 256mb minni, 128mb skjákort sem styður DirectX 7 eða hærra og WinXP). hún verður helst að vera
frekar hljóðlát, með góðu hljóðkorti og helst með skrifara. Svo er ég ekkert inní hvaða tölvubúðir eru að gera sig og hverjar ekki þannig ef það eru einhverjar búðir sem ég á alls ekki að versla hjá endilega látið mig vita
Hún má vera á verðbilinu 100-150 þ. og þessi fartölva mun koma í stað borðtölvunnar minnar, öll hjálp er mjög vel þegin
kk,
Palli.
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:46
af Plee
hehe þetta er það sem valve gefur út sem algjörlega mininum requirements, að sjálfsögðu helst betra að hafa lappann aðeins betra en það sem ég gaf upp en þetta er bara lágmarkið
og já mezzup eins og ég segi veit ég alveg 0 um fartölvur og ef ég þarf að borga meira fyrir þessi requirements þá geri ég það ;P
Sent: Mán 18. Okt 2004 16:49
af ganjha
Þetta er góð vél fyrir þennan pening, en kemur ekki alveg í stað borðtölvu.
Þú þarft að fara í um og yfir 200þ til þess að vera kominn með borðtölvulíki.
Sent: Mán 18. Okt 2004 17:05
af Daz
Þessi tölva sem ganjah stingur uppá er nú ekki slæm, en skjákortið í henni er nú ekki það besta í leikina, það eru til þó nokkrar útgáfur af tölvum á undir 150 þúsund með Radeon 9000+ kort.
Getur skoðað MSI eða Acer tölvurnar (hjá t.d. Tölvulistanum), nú eða Mitac tölvurnar hjá Hugver.
Sent: Mán 18. Okt 2004 18:04
af Plee
jessir ég er búinn að velja tölvuna og það er vél frá alienware sem mun kosta mig um 200k, en verður vel þess virði >:D
Sent: Mán 18. Okt 2004 22:20
af gnarr
wtf.. hvar færðu alien ware tölvu á 200.000 kall? þú gerir þér vonandi grein fyrir sérstöku fyrirbæri hérna á íslandi sem nefnist virðisaukaskattur....
Sent: Sun 24. Okt 2004 18:40
af Sveinn
Nú veit ég ekki mikið um ferðatölvur.. en eruði þá að meina að alienware tölvurnar séu góðar eða vondar? hvað er svona gott við þær og hvað er eðlilegt verð á svoleiðis..
Sent: Sun 24. Okt 2004 19:00
af MezzUp
Sveinn skrifaði:Nú veit ég ekki mikið um ferðatölvur.. en eruði þá að meina að alienware tölvurnar séu góðar eða vondar? hvað er svona gott við þær og hvað er eðlilegt verð á svoleiðis..
Góðar, eða þ.e. háir spekkar, en maður er þá að sama skapi að fá minna price/performance ratio.