Síða 1 af 1

lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 13:33
af jardel
Ég er ekki að keyra nein forrit í bakgrunni. Að mér vitandi.
Er með slökkt á 4g 3g blátönn gps og hef skjá birtuna aldrei hærri en 20%.
Veit einhver hér hvað er að valda þessu?
Eða um eitthvað ráð?

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 14:25
af kizi86
betterbatterystats: https://play.google.com/store/apps/deta ... tats&hl=en

http://forum.xda-developers.com/showthr ... ?t=1179809

þar geturðu séð nákvæmlega hvaða forrit/app er að drain-a batteríið

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 16:58
af jardel
Er ekki til frí útgáfa ag þessu forriti?

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 17:07
af hfwf
Ef þú skráir þig á XDA þá færðu hana frítt

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 18:31
af audiophile
Stoppaðu og óvirkjaðu Vu Talk forritið.

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 19:33
af capteinninn
audiophile skrifaði:Stoppaðu og óvirkjaðu Vu Talk forritið.


Lenti í nákvæmlega sama, gerðu þetta. Skil ekki afhverju í fyrsta lagi þetta er ekki lagað og í öðru lagi afhverju símafyrirtækin geri þetta ekki fyrir mann fyrirfram eða láti mann vita.

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 20:17
af Haffi
Þessi galli í Vu Valk er víst bara staðbundinn við ísland.

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 22:06
af capteinninn
Haffi skrifaði:Þessi galli í Vu Valk er víst bara staðbundinn við ísland.


Okei það meikar sens, samt finnst mér að allir íslensku carrierarnir ættu að vita af þessum galla og láta vita strax við kaup á símanum

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Fös 14. Feb 2014 22:08
af jardel
Þetta var vu talk. Merkilegt hvað þetta gleypti rafhlöðuna og hvað síminn hitnaði

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Lau 15. Feb 2014 02:57
af jardel
Veit einhver hér hvernig ég slekk varanlega á vu talk?

Re: lg g2 sími hitar sig of mikið og rafhlaða eyðist hratt

Sent: Sun 16. Feb 2014 12:30
af capteinninn
jardel skrifaði:Veit einhver hér hvernig ég slekk varanlega á vu talk?


Settings - Apps - All - VuTalk og ætti að vera í efra hægri horninu disable takki