Setja upp síma
Sent: Fös 24. Jan 2014 13:00
Er með LG E510 sem lenti í smá tjóni. Núna þegar ég kveiki á símanum, þá hangir hann bara, kemur LG logo-ið, en ekkert gerist. Var að velta því fyrir mér hvort hægt sé að formata símann og setja hann uppá nýtt. Hef prófað að ýta á power takkann og volume down, hann byrjar en stoppar á leiðinni. Það er ekkert merkilegt á símanum, þ.a. gögn skipta engu máli.