Síða 1 af 2

Dell Inspiron 8600 - Pöntuð frá www.dell.com

Sent: Lau 09. Okt 2004 17:50
af goldfinger
er þetta ekki massíf fartölva :D

Intel® Pentium®M Processor 725(1.60A GHz/400MHz FSB) 15.4 WSXGA+
512MB DDR SDRAM 1 Dimm
60GB-7200rpm Hard Drive
128MB DDR ATI's MOBILITY® RADEON™ 9600 PROTURBO
24X CD-RW/DVD Combo Drive with Sonic RecordNow Upgrade!
72 WHr Primary Battery
Dell® Wireless 1450 Internal Wireless (802.11a/b/g, 54Mbps)
10/100 Network Card and Modem (innifalið í verði)
Productivity Pack including WordPerfect® (fylgir)
Microsoft® Money 2004 Standard (fylgir)
Norton Internet Security™, 90 day trial (fylgir)
Dell Media Experience™ (fylgir)
Dell Jukebox - easy-to-use music player and CD burning software (fylgir)
Paint Shop™ Pro® Trial plus Photo Album™ Starter Edition (fylgir)
Microsoft® Windows® XP Home Edition
Straumbreytir: AC adapter -90w, 19.5v

Svo ætla ég að fá mér cover utan á:
Burlwood QuickSnap™ Cover
Mynd

Ætti að vera fær í flestann sjó ekki satt ?
Um það bil 136.000kr. (ath. frá USA, http://www.dell.com)

Sent: Lau 09. Okt 2004 18:08
af MezzUp
Ert að reikna með flutningskostnaði og vsk.? Ert búinn að kanna hvort að straumbreytirinn taki líka 230 volt? Ertu búinn að athuga hvort að ábyrgðin gildir hérlendis? Ég held að þú þurfir að kaupa einhverja auka ábyrgð til þess.

Svo er þetta cover viðbjóðslegt!

ps. og afhverju varstu að telja upp allt crap software'ið sem fylgir.......

Sent: Lau 09. Okt 2004 18:13
af WarriorJoe
Flott cover, fínt að hafa þetta aðeins öðruvísi.. En þetta er góð ferðatölva, gott merki.. Batterýsendingin mætti vera betri en eins og þú sagðir í hinum póstinum þá geturðu sett hana i hleðslu allstaðar..

Annars ef þú ert að leita að vél sem er góð i skólann ( létt, góð batterýsending ) og góð í leikina þá mæli ég með Asus M6800NE

Ætla mjög sennilega að fá mér þessa á næsta ári þegar ég kaupi mér lappa..

http://www.bodeind.is/tilboda.html - neðsta vélin..

Sent: Lau 09. Okt 2004 18:21
af Pandemic
Straumbreytirinn á okkar Dell vél virkar á íslandi skiptum bara um kló

Sent: Lau 09. Okt 2004 18:40
af goldfinger
MezzUp skrifaði:Ert að reikna með flutningskostnaði og vsk.? Ert búinn að kanna hvort að straumbreytirinn taki líka 230 volt? Ertu búinn að athuga hvort að ábyrgðin gildir hérlendis? Ég held að þú þurfir að kaupa einhverja auka ábyrgð til þess.

Svo er þetta cover viðbjóðslegt!

ps. og afhverju varstu að telja upp allt crap software'ið sem fylgir.......


enginn flutningskostanður og mun ekki þurfa að borga vsk þar sem einhver amerikani sem kemur með vinkonu systur minnar til landsins verður með hana þegar þau koma og það verður búið að setja hana upp og svona svo það verður bara eins og hann eigi hana :wink:

og ég valdi þetta cover afþvi að það er einmitt öðruvisi, skemmtilegt að hafa ekki eins og allir aðrir, og það er hægt að taka það af og þá er það bara grátt.

og Warrior Joe, þessi vél asus vél sem þú nefnir er alveg ágæt en þessi sem ég er að nefna er með betri hdd og betra skjákort. En engu að síður finnst mér dell vélin flottari þar að auki :P

og MezzUp, með ábyrgðina, ég veit ekki hvort hún gildi hérlendis en það er allavega ekki vandamál alltaf einhver á ferðinni, til USA og Frá USA til íslands sem ég þekki.

Sent: Lau 09. Okt 2004 22:23
af Voffinn
Ekki ætlarðu virkilega að láta sjá þig með þetta cover einhver staðar?

Sent: Lau 09. Okt 2004 22:51
af goldfinger
þetta betra ?

Mynd

Sent: Lau 09. Okt 2004 22:59
af Hannesinn
Mig minnir að með Dell vélar, þá eru það bara Latitude línan sem er með 3 ára international ábyrgð. Inspiron eru meira stílaðar á heimilin, og aðeins með 1 árs ábyrgð, og ekki international.

Sent: Lau 09. Okt 2004 23:28
af goldfinger
Hannesinn skrifaði:Mig minnir að með Dell vélar, þá eru það bara Latitude línan sem er með 3 ára international ábyrgð. Inspiron eru meira stílaðar á heimilin, og aðeins með 1 árs ábyrgð, og ekki international.


ehh ekki alveg....

ég get alveg valið frá hálfs árs til 4 ára ábyrgðar, allavega ef maður sérpantar :wink:

Sent: Lau 09. Okt 2004 23:47
af Dannir
mér finnst seinna coverið mjög flott

Sent: Sun 10. Okt 2004 00:16
af SolidFeather
Nett cover :8)

Sent: Sun 10. Okt 2004 00:31
af goldfinger
jamm, hugsa að ég taki þetta seinna, hitt er of mikið wild :twisted:

Sent: Sun 10. Okt 2004 00:45
af WarriorJoe
goldfinger, betri harðidiskur en last time i checked er 9700pro betra en 9600pro? :?

Svo er batterýsendingin það betri í ASUS vélinni að ég myndi frekar taka hana, eini gallinn við hana að ASUS er ekki jafn "stórt" ferðatölvu merki og Dell.. Ég veit t.d. ekkert um bilanatíðni ASUS tölvanna, en veit að dell tölvunnar eru mjög traustar..

Sent: Sun 10. Okt 2004 01:04
af goldfinger
varla mikill munur á 9600PRO og 9700 PRO, en það er ágætis munur á 128mb og 64MB ekki satt ? :P En samt örugglega ekkert mikill munur á þessum kortum þá :wink:

En batterísending skiptir mig ekki máli...

Og afhverju ætti ég að fá mér þessa asus vél á 219.000kr. þegar ég get fengið þessa dell vél á rétt tæpar 140.000kr. frá USA... :wink:

Og þótt ég gæti fengið Asus vélina á 120þús´þarna úti þá myndi ég frekar taka dell vélina þar sem mér finnst hún mun flottari :8)

Sent: Sun 10. Okt 2004 10:11
af MezzUp
Voffinn skrifaði:Ekki ætlarðu virkilega að láta sjá þig með þetta cover einhver staðar?

thank you! :P

Sent: Sun 10. Okt 2004 18:24
af goldfinger
hehehe :P

Sent: Lau 16. Okt 2004 16:10
af ganjha
WarriorJoe skrifaði:goldfinger, betri harðidiskur en last time i checked er 9700pro betra en 9600pro? :?

Svo er batterýsendingin það betri í ASUS vélinni að ég myndi frekar taka hana, eini gallinn við hana að ASUS er ekki jafn "stórt" ferðatölvu merki og Dell.. Ég veit t.d. ekkert um bilanatíðni ASUS tölvanna, en veit að dell tölvunnar eru mjög traustar..


Bilanatíðnin á ASUS fartölvum er mjög lág.
Og svo er ASUS einn af 5 stærstu framleiðendum fartölvna í heiminum.

Sent: Lau 16. Okt 2004 16:22
af einarsig
goldfinger : mér finnst red lava coverið flottast af þessum dell frontum annars geggjuð vél, lýst mjög vel á speccana ég myndi hugsanlega stækka örrann svolítið. :boxeyed

Sent: Mán 18. Okt 2004 03:46
af addi illmenni
Ef þú ert að panta vél af http://www.dell.com verðuru að muna eftir coupons, þá færð svakalegan afslátt. td þessi: "NKDP1HNP271J00" (rennur út 18.10.2004) hann gefur þér 30% afslátt. sem er ekkert nema turbo sweet.

það er hægt að finna svona coupons á forums út um allt.

Sent: Mán 18. Okt 2004 15:49
af goldfinger
addi illmenni skrifaði:Ef þú ert að panta vél af http://www.dell.com verðuru að muna eftir coupons, þá færð svakalegan afslátt. td þessi: "NKDP1HNP271J00" (rennur út 18.10.2004) hann gefur þér 30% afslátt. sem er ekkert nema turbo sweet.

það er hægt að finna svona coupons á forums út um allt.


kemur sér að góðum notum þar sem ég panta hana ekki fyrr en 1-2 des :oops:

Sent: Mán 18. Okt 2004 16:05
af Voffinn
goldfinger skrifaði:
addi illmenni skrifaði:Ef þú ert að panta vél af http://www.dell.com verðuru að muna eftir coupons, þá færð svakalegan afslátt. td þessi: "NKDP1HNP271J00" (rennur út 18.10.2004) hann gefur þér 30% afslátt. sem er ekkert nema turbo sweet.

það er hægt að finna svona coupons á forums út um allt.


kemur sér að góðum notum þar sem ég panta hana ekki fyrr en 1-2 des :oops:


Ég myndi panta hana í dag... þetta rennur út í dag.

Sent: Mán 18. Okt 2004 20:04
af goldfinger
get ekki pantað sjalfur af þessari siðu, :wink: það þarf kort frá USA :wink:

og ég á ekki fyrir henni núna tbh

Sent: Þri 19. Okt 2004 00:59
af Cary
Mér fannst viðarlíkið flott. Fæ á tilfinninguna að ég sitji inní oldsmobile or some..
Allar fartölvur eru orðnar gráar, silfraðar, makkahvítar eða mögulega rauðar og heita bílanafni(ávísun á að vera kýldur).
Og ef öllum finnst coverið ógeð þá getru hann verið viss um að enginn stelur henni..

Sent: Þri 19. Okt 2004 01:12
af Pandemic
The girl has spooken.

æ want one of thoes

Sent: Þri 19. Okt 2004 18:02
af Birkir
lol!