Síða 1 af 1

Innra minni alltaf fullt í Android síma!

Sent: Lau 28. Des 2013 20:29
af Krissinn
Ég er með Samsung GT-S5570 og Innra minnið er alltaf fullt í honum! Get ég með einhverju móti látið öll forrit vist-ast á SD kortið? Og einnig fært forrit sem fylgja Android stýrikerfinu yfir á SD kortið?

Re: Innra minni alltaf fullt í Android síma!

Sent: Lau 28. Des 2013 20:40
af hfwf
app2sd ætti að vera þitt svar við því.

Re: Innra minni alltaf fullt í Android síma!

Sent: Lau 28. Des 2013 23:33
af Starman
Í fullkomnum heimi væri það kannski, en app2sd er eitt mesta crapp ever.
Það eina sem virkar er að roota símann með nýju firmware og nota svo link2sd.
Meiri upplýsingar á http://forum.xda-developers.com

Re: Innra minni alltaf fullt í Android síma!

Sent: Sun 29. Des 2013 04:27
af Swooper
Wait, er "move app to SD card" í apps menuinu ekki stock android fídus?

Re: Innra minni alltaf fullt í Android síma!

Sent: Sun 29. Des 2013 04:51
af capteinninn
Held að þú sért fastur með bull síma þangað til þú uppfærir.

Ég var í sama pakka með G young sem var algert rusl en uppfærði í LGG2.
Myndi bara henda öllu út nema basic call function.

Það eru örugglega fullt af góðum roms til að roota sem hjálpa þér þannig að ég myndi prófa það ef þú ert til í það.
Ég skal láta þig vita ef ég finn góð roms sem hjálpa því þetta er ömurlegt

Re: Innra minni alltaf fullt í Android síma!

Sent: Mán 30. Des 2013 03:23
af Krissinn
hannesstef skrifaði:Held að þú sért fastur með bull síma þangað til þú uppfærir.

Ég var í sama pakka með G young sem var algert rusl en uppfærði í LGG2.
Myndi bara henda öllu út nema basic call function.

Það eru örugglega fullt af góðum roms til að roota sem hjálpa þér þannig að ég myndi prófa það ef þú ert til í það.
Ég skal láta þig vita ef ég finn góð roms sem hjálpa því þetta er ömurlegt


Ég hef ákveðið að fá mér síma seinnipart næsta árs, Þá verður vonandi 4G búið að þróast meira og orðið útbreiddara :p, búinn að eiga þennan síðan mitt ár 2011. Veit að þessi sími er svosem ekki uppá marga fiska og eftir að ég setti Gingerbread uppfærsluna þá minnkaði minnið til muna og síminn varð hægvirkari og fleira.... Er reyndar löngu búinn að root-a hann og ég hef prófað öll þessi forrit og er td með Foldermount en það er ekki að virka finnst mér :S En ætla að prófa þetta sem Starman benti mér á :) Takk fyrir.