Síða 1 af 1
Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 15:44
af netverjinn
sælir
ég keypti Mobii 925 9" android spjaldtölvu í gjöf um jólin. Hún virkaði ágætlega í búðinni en handónýt þegar heim er komið. Afar hæg og virðist ekki draga neitt með Wifi. Browser sífrjósandi. ENgin leið að fara í Google Play og ná í Chrome, það kom alltaf time out. MBL.iS tók einhverjar mínútur að hlaðast inn.
Hefur einhver reynslu af þessum vélum. Ég ætla að skila henni í Tölvutek eftir Jól, gaman að heyra hvað þeir segja .. þið vitið "should work" er alltaf svarið sem maður fær.
Aðrar spjaldtölvur, símar ferðatölvur virkar mjög vel á netinu hjá mér.
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 15:53
af thunderwolf
Made in China
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 16:59
af Saber
thunderwolf skrifaði:Made in China
Eins og hver einasta tölva í dag.
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 17:29
af Arena77
Þær eru svona flestar á þessu verði, mjög hægvirkar og leiðinlegar.
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 17:59
af Swooper
Arena77 skrifaði:Þær eru svona flestar á þessu verði, mjög hægvirkar og leiðinlegar.
Akkúrat, veit ekki hverju OP var að búast við af 25 þúsund krónu spjaldtölvu... Þarft að eyða aðeins meira en það til að fá almennilegt tæki. Ódýr Android tæki eru yfirleitt ekki peninganna virði...
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 18:29
af KermitTheFrog
Þær eiga nú að performa betur en þetta. Mæli með því að kíkja með hana niðureftir eftir jól.
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 20:42
af Hrotti
Swooper skrifaði:Arena77 skrifaði:Þær eru svona flestar á þessu verði, mjög hægvirkar og leiðinlegar.
Akkúrat, veit ekki hverju OP var að búast við af 25 þúsund krónu spjaldtölvu... Þarft að eyða aðeins meira en það til að fá almennilegt tæki. Ódýr Android tæki eru yfirleitt ekki peninganna virði...
ég keypti einhvern tímann ódýra android spjaldtölvu af gæja hérna á vaktinni og hún var svo léleg að ég hafði það ekki í mér að selja hana aftur, lét hana bara flakka í ruslið.
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 21:06
af oskar9
félagi minn keypti sér United tölvu í TL, Wifi drífur ekki neitt, lítið FPS í öllum leikjum, skjárinn er frekar pixlaður og tölvan mjög hægvirk, hann setti hana oní skúffu nokkrum vikum eftir hann keypti hana.
Betra er að spara aðeins lengur en að kaupa sér þessar 15-30 þús króna tablets IMO
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mið 25. Des 2013 22:08
af sakaxxx
Ef maður vill ódýra góða spjaldtölvu þá er langbest að fara í notaðan ipad eða eitthvað frá þekktum framleiðenda t.d samsung eða asus. Þessar ódýri spjaldtölvur eru allar sorp.
Re: Spjaldtölvur Mobi II frá Tölvutek
Sent: Mán 30. Des 2013 20:57
af jojoharalds
No fake just verry good copy;)MADE IN CHINA/TAIWAN