Síða 1 af 1
Google Music
Sent: Fös 20. Des 2013 17:00
af Swooper
Þar sem ekki er útlit fyrir að 128GB símar komi á markaðinn á næstunni og iPodinn minn er nú loksins sprunginn, þá ákvað ég að prófa þetta Google Music sem allir hérna virðast nota. Ég fann eitthvað
guide um hvernig maður skráir sig í það, en það virðist vera úrelt. Það var ekkert mál að sækja Music Managerinn (fann bara mirror sem checkar ekki á staðsetningunni manns), og Music appið sjálft fylgdi með ROMinu sem ég er að nota á símanum. Music Manager krefst þess hins vegar að maður skrái sig inn í Google Music á vafra, og þar lendi ég á vegg. Ég er búinn að prófa bæði proxy forritin sem guidið á einstein.is mælti með, nokkur mismunandi proxy addon fyrir bæði firefox og chrome og ekkert virkar. Fæ alltaf bara "The Google Play music player is currently available in select territories."
Hvað er til ráða?
Re: Google Music
Sent: Fös 20. Des 2013 18:42
af hfwf
Testað hola. Ég gerði þetta fyrir löngu með tor minnir mig, tók sinn tíma en hóft á endanum, laaaaangt síðan
Re: Google Music
Sent: Fös 20. Des 2013 18:55
af AntiTrust
En að setja bara upp Subsonic music server á servernum/PC og streyma í tæki? Til clients fyrir flest tæki. Ég gafst amk upp á Google Music og fór þá leið fyrir löngu síðan.
Re: Google Music
Sent: Fös 20. Des 2013 19:26
af intenz
AntiTrust skrifaði:En að setja bara upp Subsonic music server á servernum/PC og streyma í tæki? Til clients fyrir flest tæki. Ég gafst amk upp á Google Music og fór þá leið fyrir löngu síðan.
Yep sama hér. Checkaðu á DSub Android appinu, miklu betra en official Subsonic appið.
Re: Google Music
Sent: Fös 20. Des 2013 19:35
af Swooper
AntiTrust skrifaði:En að setja bara upp Subsonic music server á servernum/PC og streyma í tæki? Til clients fyrir flest tæki. Ég gafst amk upp á Google Music og fór þá leið fyrir löngu síðan.
Ég er ekki með borðvélina í gangi alltaf, slekk yfirleitt á henni þegar ég fer út og meðan ég sef svo það er ekki option. Af hverju gafstu upp á Google Music, annars?
Re: Google Music
Sent: Fös 20. Des 2013 19:43
af Swooper
hfwf skrifaði:Testað hola. Ég gerði þetta fyrir löngu með tor minnir mig, tók sinn tíma en hóft á endanum, laaaaangt síðan
Prófaði það núna, virkar ekki. Það kemur svona popup í horninu sem segir að Hola hafi "unblockað" síðuna, en ég fæ samt sömu "google says no" skilaboðin áfram...
Re: Google Music
Sent: Mán 03. Nóv 2014 23:16
af ponzer
Góðar fréttir frá Google í dag... Google Music All Access er officially komið til Íslands
http://www.androidcentral.com/google-pl ... -expansion
Re: Google Music
Sent: Þri 04. Nóv 2014 00:51
af Swooper
Sweet! BRB uploada 80GiB af tónlist
Re: Google Music
Sent: Þri 04. Nóv 2014 20:55
af JReykdal
Og movies var að mæta líka!
Re: Google Music
Sent: Þri 04. Nóv 2014 21:50
af Swooper
Snilld. Ætli við fáum ekki sjónvarpsþættina næst?
Re: Google Music
Sent: Mið 05. Nóv 2014 00:31
af bigggan
Snilld kanski maður er að fara hugsa að kaupa sig chromecast núna
Re: Google Music
Sent: Mið 05. Nóv 2014 01:15
af Swooper
Splæsti einmitt í þannig í ágúst, sé alls ekki eftir því og sérstaklega ekki núna!
Re: Google Music
Sent: Sun 14. Des 2014 17:53
af Swooper
Ég lenti í skrýtnu vandamáli með Google Music í dag. Fékk nýjan síma í vikunni, og í staðinn fyrir að vera að vesenast með að flytja tónlistarfæla yfir á hann af tölvunni ákvað ég að láta bara Google sjá alfarið um það, svo ég lét hann downloada nokkrum playlistum, samtals líklega svona 30GB. Ég er með Google Music Manager á tölvunni minni, svo allar breytingar sem ég geri á playlistum á iTunes syncast beint við Google Music... en það er langt frá því að vera fullkomið. Í dag lagaði ég nafnið á einu lagi í iTunes. Music Managerinn tók því sem nýju lagi, og uploadaði því aftur svo það var í tvíriti á Google Music. Við það tók síminn minn upp á að downloada megninu af playlistanum sem það var á (sá lang stærsti, 27GB) upp á nýtt, ég held öllu sem kom á eftir laginu sem breyttist.
Hefur einhver lent í svipuðu? Ég vil helst koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig, bæði af því að ég hef ekki endalausa download heimild og líka af því að það tekur marga klukkutíma að sækja þetta allt aftur, og maður má ekki alltaf vera að því.
Edit: OK þetta gerðist aftur, án þess að ég breytti neinu í iTunes. Wtf?