Síða 1 af 1

fartölva fyrir ömmu

Sent: Mið 18. Des 2013 11:42
af tomas52
sælir piltar ég er að leitast eftir fartölvu fyrir ömmu semsagt þarf ekki eitthverja svaka vel þarf bara að duga má kosta allt uppí 100 hvað á maður að skoða hp, packard bell, acer ??? eitthverjar hugmyndir ?

edit*
eitthvað af þessu sem væri fín lausn ?
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8261
http://kisildalur.is/?p=2&id=2443
http://tolvutek.is/vara/hp-650-c1n10ea-fartolva-svort

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Mán 30. Des 2013 12:03
af tomas52
er svakalegur munur á þessum tölvum ? http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-e1- ... olva-svort
http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-v5- ... -silfurlit
eina sem ég sé að harði diskurinn er sata2 og hin er sata3 og örgjafinn sem er smá munur á þeim en finnur maður muninn?

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Mán 30. Des 2013 13:46
af Viktor
Ég mæli með ASUS og SSD hörðum diski :)

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Mið 01. Jan 2014 15:30
af littli-Jake
þessu Asus vél hjá kísildal væri fín ef þú fengir að skipta venjulega HDD út fyrir SSD. Efast um að amma þín sé grimm í að ná í myndir ;)
Svo er líka spurning hvort það væri ekki líka betra fyrir hana að fá W7 frekar en W8.

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Fim 02. Jan 2014 15:42
af tomas52
fór í kísildal í dag og þá var seinasta asus tölvan að fara út um dyrnar þannig hvað á maður að fá sér sem er á svipuðu verði en samt mjög góð ?

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8467
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8458
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3803
http://tl.is/product/asus-d550ca-bh31-fartolva-i3

hef áhuga á þessum hver væri besta valið?

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Fim 02. Jan 2014 16:50
af I-JohnMatrix-I
Persónulega myndi ég aldrei versla mér toshiba vél, hef heyrt alveg hræðilega hluti um þær svo eru nokkrir fjölskyldu meðlimir með toshiba vélar og það er alltaf eitthvað vesen með þær. Annars lýta báðar þessar Asus vélar ágætlega út.

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Fim 02. Jan 2014 21:56
af littli-Jake
Toshiba véling er með of lítið vinsluminni fyrir minn smekk og Asus ekki með nægilega öflugan örgjörva.

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Fim 02. Jan 2014 22:29
af I-JohnMatrix-I
i3 er alveg feiki nóg fyrir ömmu sem þarf bara að komast í póstinn sinn og skoða mbl.is, er með i3 í skólatölvunni minni og það er ekkert vandamál að vinna í office og horfa á youtube video í FullHD á sama tíma.

Re: fartölva fyrir ömmu

Sent: Fös 03. Jan 2014 08:11
af tomas52
já kannski er asus tölvan alveg nóg bara :) langar ekkert sérstaklega að kaupa mér toshipa vél af því ég hef ekki góða reynslu af þeim en specið á þeim er samt betra .. en já held ða asus velin sé málið takk fyrir hjálpina