Síða 1 af 1

er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fim 05. Des 2013 14:24
af tobbibraga
ég er að fara að kaupa mér svona tölvu, er einhver með reinslu af henni,

bæði kosti og galla??

http://www.notebookcheck.net/Review-HP- ... 221.0.html

Re: er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fim 05. Des 2013 15:09
af paze
Nei, en ég vill vita hvernig þeir fá þetta út:

The aluminium case should protect the laptop very well against dust, moisture, high temperatures, jolts and falls.


Hvernig verndar málmur betur gegn hita heldur en plast?

Re: er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fim 05. Des 2013 15:22
af dori
Hugsanlega dreyfir það hitanum betur?

Re: er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fim 05. Des 2013 15:23
af Oak
paze skrifaði:Nei, en ég vill vita hvernig þeir fá þetta út:

The aluminium case should protect the laptop very well against dust, moisture, high temperatures, jolts and falls.


Hvernig verndar málmur betur gegn hita heldur en plast?


Úr hverju er örgjörva kælingin þín eiginlega?

Re: er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fim 05. Des 2013 16:44
af AntiTrust
Ég notaði 8540p í smátíma, eins loaded og hún gat orðið, var ekkert annað en workstation beast. Leiðinlega þung og þykk samt, myndi persónulega ekki kaupa mér svona sjálfur nema hún færi lítið út fyrir hús. Konan er svo með 8470p úr vinnunni, sama dæmi - algjört workhouse en alltof bulky. Hún nennir aldrei að taka hana með sér heim.

Re: er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fim 05. Des 2013 19:59
af paze
Oak skrifaði:
paze skrifaði:Nei, en ég vill vita hvernig þeir fá þetta út:

The aluminium case should protect the laptop very well against dust, moisture, high temperatures, jolts and falls.


Hvernig verndar málmur betur gegn hita heldur en plast?


Úr hverju er örgjörva kælingin þín eiginlega?



Hugsanlega dreyfir það hitanum betur?


Ég býst við því að það sé vegna þess að áll dregur hita betur í sig heldur en plast þar sem hitinn kemur náttúrulega innra með en er maður þá ekki með brennandi heita tölvu í fanginu?

Re: er einhver með reinslu af svona tölvu?

Sent: Fös 06. Des 2013 11:17
af dori
Ég myndi frekar halda að þú værir með "jafnvolga" tölvu í fanginu frekar en frekar kalda tölvu sem er sjóðandi heit á einum punkti þannig að þú þarft að hafa hana skakkt í fanginu til að meiða þig ekki.