Síða 1 af 1

Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 19:31
af hfwf
Sælir menn, er að reyna setja upp póst í símanum hjá mér (búið þó). Hinsvegar þaþð sem virðist ekki virka þrátt fyrir þær upplýsingar sem tal.is gefur upp þá virkar ekki að senda póst frá mér, svinvirkar að fá hann.
Er einhver hér með þessar stillingar á hreinu og með reynslu á akkúrat þessu internetfyrirtæki og uppsetningar á póst í snjallsíma.

kv hfwf

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 19:57
af Swooper
Ertu með outgoing stillt á sama mail server og incoming? Það á nefninlega ekki að vera eins af einhverjum ástæðum, amk er ég með imap.hi.is:993 sem incoming og smtp.hi.is:465 sem outgoing hjá mér, fyrir HÍ mail augljóslega.

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:05
af hfwf
Samkvæmt tal.is segja þeir "Hverjar eru stillingar fyrir póstþjón?
POP3: mail.talnet.is
SMTP: mail.talnet.is (einnig þekkt sem "Outgoing Mail Server")
IMAP: mail.talnet.is (einnig þekkt sem "Incoming Mail Server")"

Og þetta er stillt eftir því.

smtp og imap.talnet.is svarar ekki.

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:11
af Hjaltiatla
Ég myndi halda að vandamálið væru portastillingar á Outgoing mail server: Prófaðu port 587

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:18
af hfwf
587 er stillt þannig, prufaði einnig að setja in ssl/tls og þá náðist ekki tenging.

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:28
af Hjaltiatla
465 outgoing með ssl, haka við My outgoing server requires authentication (Gæti virkað)

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:31
af intenz
hfwf skrifaði:Samkvæmt tal.is segja þeir "Hverjar eru stillingar fyrir póstþjón?
POP3: mail.talnet.is
SMTP: mail.talnet.is (einnig þekkt sem "Outgoing Mail Server")
IMAP: mail.talnet.is (einnig þekkt sem "Incoming Mail Server")"

Og þetta er stillt eftir því.

smtp og imap.talnet.is svarar ekki.

Eru það nú leiðbeiningar, segja ekki einu sinni port. :thumbsd

En prófaðu smtp.tal.is (var það áður hjá þeim). Nú ef allt bregst, sendu þeim línu á tal@tal.is eða hringdu í 1817 á morgun.

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:37
af hfwf
No go, ætli það sé ekki málið að bjalla í þá á morgun (verst bara hvað þeir vita ekkert í sinn haus þarna).

Grazi fyrir hjálpina.

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:42
af Viktor
Þú stillir outgoing server eftir því hvaða neti þú ert á. Incoming er serverinn þar sem netfangið er hýst.

Outoing þjónar:
Síminn: mail.simnet.is / postur.simnet.is
Vodafone: mail.internet.is
Tal: mail.talnet.is
Hringdu: mail.hringdu.is
Hringiðan: smtp.vortex.is
HÍ: smtp.hi.is
HR: smtp.ru.is

Nenni ekki að lista fleiri ;)

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:47
af hfwf
Þetta er komið. Þurfti að setja port 25, var ekki einfaldara en svo :)

Takk aftur fyrir hjálpina.

Re: Uppsetning póst á snjallsíma.

Sent: Mið 20. Nóv 2013 20:48
af Hjaltiatla
:) gott mál