Rekja Garmin GPS tæki
Sent: Mið 30. Okt 2013 14:54
Er hægt að rekja Garmin GPS leiðsögutæki? GPS tækið okkar virðist hafa bókstaflega gufað upp á óskiljanlegan hátt :/ Vorum að skoða tækið seinast milli febrúar - apríl að okkur minnir. Erum með allar snúrur og fylgihluti en tækið sjálft er gufað upp :/ Höfum aldrei geymt það í bílnum eða hanskahólfi. Erum búin að fara í gegnum alla íbúðina og hvern einasta kassa niðrí kjallara en það bar ekki neinn árangur.... Þannig að ég var að velta því fyrir mér hvort það væri hægt að rekja tækið ef það sé einhverstaðar í notkun. Erum með viðbótartryggingu Elko sem er enn í gildi og rennur út á næsta ári. Þetta tæki var keypt fyrir 2 árum. Öll svör vel þegin