Síða 1 af 1

Fartölva hvernig?

Sent: Fös 20. Sep 2013 14:51
af Jakob C
Eins og svo margir kannski þá vantar mér aðstoð við að kaupa fartölvu.
Mig vantar sem sagt fartölvu sem má alveg kosta svona um 180 þús ca.
Er aðalega að pæla í hvernig tölvu, ég hef verið með Dell og hefur reynst nokkuð vel, hef dáltið verið að pæla í Lenovo hjá nýherja.
Ég mun nota þessa tölvu í margt en aðalega sem ég er að pæla í er að klippa video í henni. Er ekki í neinum leikjum eða neitt svoleiðis.
Ég mun nota t.d. Adobe Premire klippiforrit og er að klippa klippur sem eru teknar eru í HD.
Annars mun þetta vera venjulega tölva.

Re: Fartölva hvernig?

Sent: Sun 22. Sep 2013 17:32
af Jakob C
Enginn sem veit eitthvað um þetta?
Er nefnilega að pæla í að fara kaupa eitthvað á næstu dögum/vikum :)

Re: Fartölva hvernig?

Sent: Sun 22. Sep 2013 18:34
af NiveaForMen
http://www.netverslun.is/Verslun/produc ... 19213.aspx

Ég á svona. Solid og góð en veit ekki hvort þetta sé sú rétta fyrir klippivinnu.

Þarftu fartölvu?

Re: Fartölva hvernig?

Sent: Sun 22. Sep 2013 18:57
af Viktor
Ég er með Asus Zenbook og gæti ekki verið sáttari.
Hef bara heyrt gott um Asus í þeim efnum.

Annars ef þú ert að hugsa um að klippa HD videos þá færðu þér ekki fartölvu fyrir 180 k :)

Annaðhvort færðu þér borðtölvu fyrir 180k, eða fartölvu fyrir 200-250 þúsund :-$

Re: Fartölva hvernig?

Sent: Sun 22. Sep 2013 21:48
af Jakob C
Já ég hef verið að pæla í borðtölvu líka.
Hvar er best að kaupa? ég hef ekki verið með borðtölvu síðan ég veit ekki hvenær.