Síða 1 af 1

Toshiba Satellite ræsir sig ekki

Sent: Mið 04. Sep 2013 12:34
af bingo
Ég er með þriggja vikna gamla Toshiba Satellite P55-A5200 sem ræsir sig ekki.

Þegar ég slökkti á henni í gærkvöldi og tók hana úr sambandi þá tók ég eftir því að Led ljósið sem sýnir að hún sé fullhlaðin logaði ennþá.
Ég var ekkert að pæla neitt í því neitt frekar en svo í morgun þá logaði það ennþá og tölvan ræsir sig ekki.

Er einhver sem hefur lent í einhverju sambærilegu eða hefur hugmynd um hvað gæti verið að?

Re: Toshiba Satellite ræsir sig ekki

Sent: Mið 04. Sep 2013 12:41
af playman
Búin að taka rafhlöðuna úr í 15 mín, setja hana svo aftur í og reyna að starta henni aftur?
Taka rafhlöðuna úr í 15 mín og starta henni án rafhlöðunnar?

Annars er bara að heyra í þeim sem þú verslaðir hana af.

Re: Toshiba Satellite ræsir sig ekki

Sent: Fim 05. Sep 2013 03:15
af bingo
Þetta virkaði, var reyndar vesen. Þurfit að losa plasthlífina á botninum til að komast að rafhlöðunni.
Takk fyrir skjótt svar.

Re: Toshiba Satellite ræsir sig ekki

Sent: Fim 05. Sep 2013 08:53
af playman
Jæja það er flott að heyra.
En einnig gæti verið sniðugt fyrir þig að heyra í söluaðilanum þínum og
spyrja þá út í þetta, hvort að þetta sé þekkt vandamál os.f.