Síða 1 af 1

Halda batteríin ekki hleðslu?

Sent: Mán 13. Sep 2004 10:35
af Daz
Ég var að spjalla við tæknimann útaf nýju "fínu" fartölvunni minni og hann vildi halda því fram að það væri fullkomlega eðlilegt að hleðslan á fartölvubatteríi minnkaði um 1% ef hún væri ekki í sambandi í ca 6 klukkutíma (og slökkt á tölvunni augljóslega). Ég kannast ekki við að þetta hafi komið fyrir með öðrum fartölvum sem ég hef notað, en kannast einhver hérna á vaktinni við þetta?

Sent: Mán 13. Sep 2004 11:32
af axyne
ég myndi nú segja þetta vera alveg eðlilegt.

ertu þá að mein að droppa úr 100% í 99% ?

Sent: Mán 13. Sep 2004 15:24
af NortherWooD
smámunasemin að DREPA menn?

myndi telja þetta eðlilegt

Sent: Mán 13. Sep 2004 16:23
af nomaad
Fer þetta eina prósent ekki bara í að kveikja á henni?

Sent: Mán 13. Sep 2004 16:26
af jericho
hef ekki heyrt þetta - en það kæmi mér ekki á óvart
þið verðið að átta ykkur á því að ef tölvan endist í 5 klst á batteríum og hleðslan minnkar um 1%, þá erum við að tala um alveg 3 heilar mínútur :lol:

Sent: Þri 14. Sep 2004 09:58
af Daz
Ég er s.s. að tala um að tölvan er aldrei látin keyra á batteríum en tapar samt hleðslu. Og ef það er smámunasemi að tölvan endurhlaði sig á 2-3 daga fresti ÞEGAR HÚN ER ALDREI LÁTIN NOTA BATTERÍIN þá er ég herra ofur smámunasemi :)
Og ég meina að tölvan droppar úr 100 - 99, svo úr 99 - 98 98-97 (og fer þá að hlaða sig aftur), án þess að hún sé nokkurntíman í gangi án rafmagnssnúru.
Mér þykir þetta nefnilega mjög skrítið því að eins og ég sagði áður, þær tölvur sem ég hef notað hingað til að hafa aldrei gert þetta.
Batteríin þola bara ákveðið margar hleðslur, svo að augljóslega styttir þetta líftíma batterísins miðað við hvað ég er vanur.

Sent: Þri 14. Sep 2004 10:54
af gumol
Getur ekki bara verið að tölvan námundi ekki batterýsstöðuna heldur segi að td. 99,99999999999999999999% sé = 99% en ekki 100%

Sent: Þri 14. Sep 2004 10:57
af Daz
Afhverju lækkar þá alltaf meira og meira? Varla námundar hún 99 -> 98 og 98 -> 97? :D

Sent: Þri 14. Sep 2004 11:06
af gumol
Daz skrifaði:Afhverju lækkar þá alltaf meira og meira? Varla námundar hún 99 -> 98 og 98 -> 97? :D

Well, ég skildi það alalvega þannig að það væri eðlilegt að hún væri farin í 99% eftir ca. 6 tíma.

En hvernig sérðu að það sé búið 1% af batterýinu þegar þú ert ekki með kveikt á lappanum?

Sent: Þri 14. Sep 2004 11:14
af Daz
Því ég set hana í samband og kveiki á henni. Svo slekk ég á henni aftur og tek hana úr sambandi, kveiki svo aftur seinna (set í samband fyrst augljósleg) og þá er batteríið komið niður í 98%, slekk aftur, kveiki (alltaf með smá tíma á milli samt) og þá er batteríið komið í 97% og þá hleður það sig upp á nýtt. Og byrjar svo aftur.

Sent: Þri 14. Sep 2004 15:32
af Phanto
er það ekki bara rafmagnið sem fer í það að kveikja á henni

prufaðu að kveikja ekkert á henni í lengri tíma

Sent: Þri 14. Sep 2004 15:50
af Daz
Phanto skrifaði:er það ekki bara rafmagnið sem fer í það að kveikja á henni

prufaðu að kveikja ekkert á henni í lengri tíma

Afhverju ætti tölvan að nota batteríið til að kveikja á sér þegar hún er í sambandi?

Sent: Þri 14. Sep 2004 22:51
af axyne
ef þú hefur miklar áhygjur af þessu og ert lítið að nota batterýið, notar hana að mestu með tengda í rafmagn þá myndi ég taka batterýið úr.

færð betri endingu á batterýið þitt þannig.

gamla mitac ferðatölvan mín gerði alveg eins og þú lýsir.
það varð ónýtt eftir 12 mánuði. ég er heppinn ef ég næ að starta henni upp með fullri hleðslu :?

Sent: Þri 14. Sep 2004 23:52
af Voffinn
Þið vitið það að batterýin í laptopunum ykkar eyðileggjast (missa smá getu til að halda orku) við notkun. Enn meira ef þið notið þau aldrei.

Þetta er í rauninni bara eins með öll batterý. Ef þið eruð ekki að nota hleðslubatterý þá er best að tæma þau... ég hef þetta þannig að ég læt laptopinn minn tæmast öðru hverju.

Sent: Mið 15. Sep 2004 00:16
af axyne
það er alls ekki gott að geyma hleðslubatterý lengi tóm. betri ending að geyma þau fullhlaðin.

Sent: Mið 15. Sep 2004 09:55
af Daz
axyne skrifaði:ef þú hefur miklar áhygjur af þessu og ert lítið að nota batterýið, notar hana að mestu með tengda í rafmagn þá myndi ég taka batterýið úr.

færð betri endingu á batterýið þitt þannig.

gamla mitac ferðatölvan mín gerði alveg eins og þú lýsir.
það varð ónýtt eftir 12 mánuði. ég er heppinn ef ég næ að starta henni upp með fullri hleðslu :?


Ég er búinn að fara og kvarta, sé svo til hvort mér tekst að fá einhverjar "skaðabætur" eða þarf að sitja uppi með þetta.

Það sem mér finnst vera aðalmálið (og það sem ég var að reyna að fá svar við hér), er þetta eðlilegt. MSI og Mitac tölvur (af þessum 2 dæmum sem komin eru) þjást af þessu, IBM og HP virðast ekki þjást af þessu.