Síða 1 af 1

MSI megabook M510C

Sent: Fös 03. Sep 2004 17:11
af Daz
Ég lét loksins verða af því að kaupa mér MSI fartölvu og fannst við hæfi að gefa upp hvernig mér líkar við hana.

Dagur 1.
Eftir smá vandræði við að setja tölvuna upp (aðalega aulaháttur í mér :D) tókst mér að ræsa tölvuna upp í allri sinni Windows XP dýrð. Ég dreif mig í að setja upp alla rekla og rakst þá á þá óþægilegu staðreynd að ekkert fannst þráðlaust netkort. Ég prófaði alla diska sem fylgdu með og reyndi hjálpina í Windows en aldrei fann hún neitt þráðlaust netkort. Svo þegar ég var kominn á fremsta hlunn með að fara með tölvuna aftur niður í Tölvulista og láta athuga hvort það væri ekki örugglega virkt kort í tölvunni ákvað ég að prófa að tengja tölvuna við routerinn (með kapal) og leyfa henni að leita á netinu að driver. Af einhverjum ástæðum leysti það vandann því Windows fann réttan rekil á netinu. Lélegt reklasafn sem fylgir með WinXP ef það fylgja ekki með reklar fyrir Intel wireless kortin!

En þegar þetta vesen var úr sögunni ákvað ég að reyna aðeins á tölvuna og sótti mér 3dmark 2001 og 2003. Skoraði ca 10.200 stig í 2001 og 2600 í 2003, sem mér þótti nokkuð gott enda bara keyrt þessi próf á gömlu Geforce 420 mx korti áður. Svo prófaði ég að sækja Omega reklana fyrir skjákortið sem á víst að vera voðalega fínstill, en ég skoraði bara 400 meira í 2001 og 40 meira í 2003, svo ég skipti aftur yfir í MSI reklana, einhvernvegin vil ég trúa að þeir passi kortinu aðeins betur, fyrst það munaði svona litlu á afkastagetunni.

En þegar ég var rétt búinn að setja upp skjáreklana uppá nýtt tók ég eftir að ég var orðinn of seinn í vinnuna og fæ ekki að sjá nýju fínu tölvuna mína aftur fyrr en á morgun :( , ég sakna hennar nú þegar!

Já kannski ég gefi upp helstu mál á tölvunni:
1,7 GHZ Pentium M Dothan (2 mb cache osfrv)
512 333 mhz minni (einn kubbur)
Radeon 9600 64 MB mobile skjákort
60 GB 5400 RPM harður diskur
CDRW/DVD sambyggt drif
54 mb þráðlaust netkort
Fullt af öðru sem að flestum er nokk sama um
Stýrikerfislaus
Verð: 163.900 staðgreitt

Batterísending: Hef ekki hugmynd, ég hef ekki þorað að taka hana úr sambandi enþá :D (vonandi er þá ekki helv. batteríið bilað).

Einkunn (eftir 1 dag) 14 stjörnur af 5 mögulegum, ég hef ekki verið svona spenntur og kátur síðan um jólin 1986.

Sent: Fös 03. Sep 2004 17:16
af MezzUp
hmm, til hamingju með fartölvu :)

En þurftirru að setja upp alla rekla þegar þú fékkst hana? :shock:

En auðvitað áttirru að taka hana með þér í vinnu, enda FARtölva :)

Sent: Fös 03. Sep 2004 17:17
af Daz
MezzUp skrifaði:hmm, til hamingju með fartölvu :)

En þurftirru að setja upp alla rekla þegar þú fékkst hana? :shock:

En auðvitað áttirru að taka hana með þér í vinnu, enda FARtölva :)

Ég keypti hana stýrikerfislausa, svo já ég þurfti að setja hana upp. (ég kannski bara bæti því inni lýsinguna sem og verðinu).

Já ég gat tekið hana með í vinnuna, en þar sem ég er með 2 lyklaborð, 2 mýs, síma og 3 skjái á borðinu hjá mér var bara ekki pláss fyrir neitt meira :D

Sent: Fös 03. Sep 2004 17:20
af Snorrmund
hvað gerðist 86 :)

Sent: Fös 03. Sep 2004 17:23
af Daz
Snorrmund skrifaði:hvað gerðist 86 :)

Fyrstu jólin sem ég man almennilega eftir, vorum nýflutt í nýtt fínt hús og jólaboð á aðfangadag (and then he rambles on for a good 45 minutes...) Og ég fékk fjarstýrðan Ferrari sem var næstum því jafn langur og ég!

Re: MSI megabook M510C

Sent: Sun 05. Sep 2004 13:52
af gnarr
Daz skrifaði:Lélegt reklasafn sem fylgir með WinXP ef það fylgja ekki með reklar fyrir Intel wireless kortin!


má ég benda þér á að windows XP kom árið 2001.. það var soldið áður en intel wireless kortin vöru til.

Re: MSI megabook M510C

Sent: Sun 05. Sep 2004 13:55
af Daz
gnarr skrifaði:
Daz skrifaði:Lélegt reklasafn sem fylgir með WinXP ef það fylgja ekki með reklar fyrir Intel wireless kortin!


má ég benda þér á að windows XP kom árið 2001.. það var soldið áður en intel wireless kortin vöru til.

Réttrétt, en ég bara gerði ráð fyrir því að það kæmu einhverjir nýjir reklar í Servicepökkunum og ég var kominn með SP2.

Sent: Sun 05. Sep 2004 14:24
af MezzUp
Daz skrifaði:Já ég gat tekið hana með í vinnuna, en þar sem ég er með 2 lyklaborð, 2 mýs, síma og 3 skjái á borðinu hjá mér var bara ekki pláss fyrir neitt meira :D

Við hvað vinnurðu? :)

Sent: Sun 05. Sep 2004 14:36
af Daz
Ekkert spennandi, bara með fullt af skjám sem þarf að fylgjast með.

Sent: Sun 05. Sep 2004 15:13
af MezzUp
Daz skrifaði:Ekkert spennandi, bara með fullt af skjám sem þarf að fylgjast með.

ohh, núna er ég ennþá forvitnari :)

Sent: Sun 05. Sep 2004 16:39
af Daz
Dagur 2 og 3.

Prófaði batterísendinguna á tölvunni, entist í 3-4 klukkutíma og átti eftir rúm 30% þegar ég setti hana í hleðslu aftur. Var með hana í blandaðri vinnslu, smá DVD, smá innstall, mikið á netinu. Ef 5+ klukkutíma eru raunendingin (í léttir vinnslu og netrápi) þá er ég mjög ánægður.

Prófaði Doom3, hann frýs eftir ca 4-5 mínútur, en það er líka eini leikurinn sem ég hef lent í vandræðum með (búinn að reyna CM 03-04 og Star Wars kotor, svo ég ætla bara að telja mér trú um að þetta sé Doom vandamál). DVD playback virðist vera mjög fínt og drifið er hljóðlátt í DVD spilun. Heyrist svolítið í því þegar maður er að sækja gögn af diskum, en það er svosem ekkert verra en gengur og gerist.

Almennt er tölvan ásættanlega hljóðlát, hefur hátt þegar maður er að spila leiki (kælinging á örgjörva og skjákorti fer í gang) en annars er hún mjög hljóð. Reyndar sá galli að það slokknar aldrei alveg á viftunni svo maður heyrir alltaf eitthvað í henni, en alls ekki hávært. Harði diskurinn kom mér skemmtilega á óvart, hljóðlátari en ég er vanur af fartölvudiskum og mýkri hljóð sem heyrast þegar hann er í vinnslu.

Á morgun byrjar svo alvara lífsins, taka tölvuna í skólann og sjá hversu lengi batteríið dugar og hvort hún ræður við það sem ég þarf í skólanum.

Annars er ég enþá í níunda himni með tölvuna, þó að auðvitað sé tölvan ekki jafn vönduð og Thinkpad tölvurnar sem ég er vanur, þá finnst mér hún enþá vera peninganna virði.

Sent: Sun 05. Sep 2004 18:26
af goldfinger
Skiptir mestu máli að þú sért ánægður með tölvuna :8)

Sent: Þri 07. Sep 2004 13:58
af nomaad
RE: Frýs í Doom3

Tékkaðu á Omegadrivers. Virkuðu f. mig (Mobility Radeon 9700).

Sent: Þri 07. Sep 2004 23:52
af BerserK
Gildir þetta með http://www.omegadrivers.com fyrir öll ATI radeon 9700 skjákort? Tölvan mín hefur aldrei frosnað eða komið með einhver vandamál í t.d í doom 3 og fleiri krefjandi leikjum. Það kemur bara smá hljóð þegar viftan er að kæla örgjörvann og skjákortið. Þegar það er slökkt á viftunni þá heyrist svo mikið sem EKKERT í henni. Er með ACER aspire 2012 WLCI :twisted:

Sent: Mið 08. Sep 2004 08:24
af Daz
BerserK skrifaði:Gildir þetta með http://www.omegadrivers.com fyrir öll ATI radeon 9700 skjákort? Tölvan mín hefur aldrei frosnað eða komið með einhver vandamál í t.d í doom 3 og fleiri krefjandi leikjum. Það kemur bara smá hljóð þegar viftan er að kæla örgjörvann og skjákortið. Þegar það er slökkt á viftunni þá heyrist svo mikið sem EKKERT í henni. Er með ACER aspire 2012 WLCI :twisted:

Það fylgja ekki jafn nýjir driverar með öllum fartölvum og greinilega eru Acer menn duglegir að uppfæra.

Sent: Mið 08. Sep 2004 08:46
af goldfinger
á enginn hérna fartölvu sem spilar cm, ætla bara að fá mér fartölvu sem virkar vel fyrir cm 03/04, bara spurning hversu dýra tölvu þarf maður að fá sér til að hún dugi fyrir hann.... en hún má samt ekki verða úrelt eftir 2 ár eða eitthvað :P

(Cm er þónokkuð þungur i keyrslu fyrir þá sem ekki vita) :P

Sent: Mið 08. Sep 2004 09:03
af Daz
goldfinger skrifaði:á enginn hérna fartölvu sem spilar cm, ætla bara að fá mér fartölvu sem virkar vel fyrir cm 03/04, bara spurning hversu dýra tölvu þarf maður að fá sér til að hún dugi fyrir hann.... en hún má samt ekki verða úrelt eftir 2 ár eða eitthvað :P

(Cm er þónokkuð þungur i keyrslu fyrir þá sem ekki vita) :P

Þráðarþjófur.

Ég neita að segja þér oftar að hverju þú átt að leita. :roll:

Sent: Mið 08. Sep 2004 09:16
af goldfinger
hehe, sorry, þinn þráður, þú skoðar hann :D En get alveg eytt þessu ut ef þú villt :P

Þín tölva til dæmis, hvernig er hún að standa sig, geturu spilað einhverja leiki i henni :lol:

Sent: Mið 08. Sep 2004 09:30
af Daz
goldfinger: prófaðu bara að lesa það sem ég er búinn að skrifa á þessum þræði, ég minnist á leikjaspilun meðal annars.

Sent: Mið 08. Sep 2004 11:28
af goldfinger
Daz skrifaði:goldfinger: prófaðu bara að lesa það sem ég er búinn að skrifa á þessum þræði, ég minnist á leikjaspilun meðal annars.


ehe, ok :8)

Sent: Mið 08. Sep 2004 11:42
af Daz
Dagur 6

Setti inn Omega driverana til að sjá hvort Doom vandamálið myndi hverfa. Virkaði.
Fæ 31 fps í 800*600 medium detail (41 í 640*480 low detail) í demo1.

Batterísendingin virðist vera tæpir 5 tímar, en ég hreinlega tími ekki að keyra hana á batteríum nema ég neyðist til þess. Loftnetið á þráðlausa kortinu er gott, hef gott samband hvar sem ég hef farið (þar sem er þráðlaust net, augljóslega). Mjög þægilegt að það sé einn takki á tölvunni sjálfri sem slekkur á þráðlausa netkortinu, stundum vill maður bara ekki hafa það í gangi og að "disable" kortið í gegnum Windows er of mikið vesen.

Sent: Mið 08. Sep 2004 12:14
af goldfinger
tölvan þín greinilega að virka vel, kannski maður skelli sér bara á fartölvu eins og þú ert með :D