Síða 1 af 1

Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 15:34
af Manager1
Daginn.

Hver er munurinn á hraða milli 2g, 3g og 4g og eru svo ekki mismunandi þrep innan 2g og 3g og 4g, ég er t.d. stundum í 3g sambandi en svo er stundum H eða H+ - þetta táknar allt mismunandi hraða er það ekki?

Re: Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 15:46
af Viktor
Mynd

Re: Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 15:47
af hkr

Re: Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 15:52
af tlord
ca 10x

2g - 0.2 mb
3g - 2 mb
4g - 20 mb

það er nokkuð stór plúsmínus á þessu öllu

Re: Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 15:55
af AntiTrust
Ágætis útskýringarmynd:

Mynd

Re: Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 16:28
af dori
Það sem skiptir samt alveg jafn miklu máli og er sjaldan talað um er biðtími. Hann styttist svo gott sem ekkert með 4g og því mun flest venjuleg notkun (vefsíðuráp etc.) væntanlega ekki breytast mikið. Mun samt verða geðveikt fyrir t.d. HD myndefni og eitthvað slíkt þar sem þú þarft slatta af gagnamagni og skiptir ekki öllu máli hversu hratt það kemur.

Re: Hver er hraðamunurinn á 2g, 3g o.s.frv.

Sent: Fös 05. Apr 2013 17:52
af Manager1
Glæsilegt, takk kærlega fyrir þetta.

Ætli það sé raunhæft að vonast eftir því að það verði 4g netsamband útum allt land innan skamms(1-2 ár)? Síminn ætlar svosem að koma með ljósnetið út á land en ég bý ca. 2km frá símstöðinni þannig að ég fæ ekki ljósnet fyrr en guðmávitahvenær. Kannski verður bara komið 4g samband löngu áður :)